10.11.1981
Sameinað þing: 16. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í B-deild Alþingistíðinda. (434)
320. mál, myndvarp
Fyrirspyrjandi (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. svör hans við þessari fsp. minni og fagna því, að tillagna skuli að vænta og það vonandi fyrr en síðar, um nokkur þeirra atriða sem þessi nefnd gerði tillögur um á sínum tíma og horfa til hagræðingar.
Hæstv. dómsmrh. tók það fram, að Bifreiðaeftirlit ríkisins væri ekki baggi á ríkissjóði. Það má e. t. v. reikningslega komast að þeirri niðurstöðu. Hins vegar ef unnt er að hagræða þeim rekstri og spara verulegar fjárhæðir, 13 mannár var það talið í skýrslu starfshópsins, þá ber auðvitað að fylgja slíkum ráðleggingum hvar sem er í rekstri ríkisins.
Eitt eða tvennt var það í máli hæstv. ráðh. sem ástæða er til að gera aths. við.
Það fólst engan veginn í tillögum þessarar nefndar að slaka bæri á þeim öryggiskröfum sem gerðar eru varðandi skoðun bifreiða. Í niðurstöðum starfshópsins sagði m. a.: „Starfshópurinn telur, að ekki beri að slaka á reglubundinni skoðun bifreiða og annarra ökutækja, og gerir ráð fyrir að þær verði eftir sem áður skoðaðar einu sinni á ári Hins vegar var gerð tillaga um að þessi skoðun þyrfti ekki endilega að eiga sér stað hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins, hún gæti átt sér stað á venjulegum bifreiðaverkstæðum um leið og menn kæmu með bifreiðar sínar þangað til eftirlits eða viðgerðar. Slíkt mundi hafa mikið hagræði í för með sér og horfa til sparnaðar sömuleiðis.“ Eftir sem áður var gert ráð fyrir að Bifreiðaeftirlit ríkisins framkvæmdi ítarlega skoðun á hverri bifreið á fjórða ári sem og á áttunda ári og upp frá því árlega.
Ég held að það sé ástæðulaust að hafa öllu fleiri orð um þetta. Þær till., sem gerðar voru um breytingu á númerakerfi, hefur áður borið á góma hér á hinu háa Alþingi, en ekki hlotið náð hér, svo einfali og sjálfsagt sem það mál er og hefur verulegan sparnað í för með sér í sambandi við skráningu bifreiða. Það er vonandi að till. frá dómsmrn. um breyttar reglur í þessum efnum sjái sem fyrst dagsins ljós hér á hinu háa Alþingi.