10.11.1981
Sameinað þing: 16. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 590 í B-deild Alþingistíðinda. (435)
320. mál, myndvarp
Böðvar Bragason:
Herra forseti. Ég tel rétt að segja nokkur orð um það mál sem hér er til meðferðar, því að mér er þetta mál nokkuð kunnugt úr starfi mínu og einnig hef ég haft á því nokkurn áhuga.
Rætt er um að sú nefnd, sem skilaði áliti 1979, hafi lagt til reglubundna skoðun áfram, en að vísu ekki neina á fjögurra ára fresti, annars færi þessi skoðun fram á bifreiðaverkstæðum. Ég tel þetta út af fyrir sig gott að því leyti, að það er minnst á að fela megi bifreiðaverkstæðum þessa skoðun. Ég tel að það sé rétt að fara inn á þá braut, en þó þannig að eftirlitið sjálft annist áfram skoðun og þá kannske sérstaklega á eldri bifreiðum.
En e. t. v. er mér það efst í huga varðandi skoðun bifreiða, að það sé ekki nóg að þær séu skoðaðar árlega, heldur verði að leggja áherslu á það, að þær séu skoðaðar fyrirvaralaust í umferðinni. Ég er viss um að eins og ástandi bifreiða er yfirleitt háttað — og það er því miður víða lélegt — sé áhrifaríkara, að bifreiðaeigendur og ökumenn megi búast við því að þurfa að hlíta skoðun á bifreiðum sínum fyrirvaralítið, en að þeir séu skyldaðir til þess að koma einu sinni á ári með þær í skoðun.
Ég vildi koma þessu atriði að vegna þess að þetta þarf ekki að þýða aukningu mannafla. Það er hægt að láta bifreiðaeftirlitsmenn annast þetta verk á landsbyggðinni og það er einnig hægt að ítreka það við löggæslumenn landsins, að þeir hafi þetta í huga á ferðum sínum við eftirlit og löggæslustörf.
Ég nefndi bifreiðaeftirlitið á landsbyggðinni. Það er að vísu ágætt og hefur komið fram, að Bifreiðaeftirlitið virðist standa undir sér kostnaðarlega séð. En við megum ekki einblína á það. Bifreiðaeftirlitið er þeirrar náttúru, eins og margar aðrar stofnanir ríkisvaldsins, að það á að veita þjónustu. Og því miður er það svo, að það þarf að auka hana víða. Ég vil því koma þeirri ósk á framfæri, að þetta verði tekið með í athugun þess hóps sem nú athugar þetta á vegum rn.
Að lokum þetta: Það þarf að huga að fleiru en bifreiðunum. Það eru mörg ökutæki eða verktæki notuð á vegunum sem ekki síður þurfa skoðunar við en bifreiðar, en enn þá eru þau mál í miklum ólestri.