04.05.1982
Sameinað þing: 88. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4599 í B-deild Alþingistíðinda. (4356)

243. mál, steinullarverksmiðja í Þorlákshöfn

Frsm. minni hl. (Ólafur Þ. Þórðarson):

Herra forseti. Með leyfi forseta vil ég lesa hér upp nál. minni hl. atvmn.: „Með lögum nr. 61/1981, 1. gr., heimilaði Alþingi ríkisstj. að taka þátt í stofnun hlutafélags, er reisi og reki steinullarverksmiðju, og að leggja fram í því skyni allt að 40% af hlutafé þess, enda verði hlutafé minnst 30% af stofnkostnaði, sbr. þó ákvæði til bráðabirgða.

Þar sem ekkert liggur fyrir um hlutafé annarra en ríkisins, þykir ekki á þessu stigi ástæða til að skerða ákvæði 1. gr. nefndra laga um tilhlutafjárframlög og eðlilegt að ríkisstj. vinni áfram að frekari framgangi málsins. Þar sem ríkisstj. með lögum eru veittar heimildir, er eðlilegt að bera fram brtt. við þau lög ef menn telja þeim áfátt, en óeðlilegt að bera fram þáltill., sem ekki hefur lagagildi, og ætla að takmarka lögin með þeim hætti.

Iðnaðarnefndir, þingsins fjölluðu um heimildarlögin og ef ætti að breyta þeim væri eðlilegt að þeim gæfist tækifæri til að fjalla um þær breytingar. Það hefði verið hægt ef lögð hefði verið fram till. um lagabreytingu.

Að framansögðu leyfi ég mér að leggja til að málinu verði vísað til ríkisstj.“

Ég vil vekja á því athygli, að við erum ekki að fjalla hér um gömul lög sem sett voru einhvern tíma í fyrndinni. Við erum að fjalla hér um lög sem samþykkt voru á Alþingi Íslendinga 25. maí 1981. Ég hygg að það reki engar nauður til að fara að breyta þeim lögum, í ljósi þess sérstaklega að í þeim er ákvæði til bráðabirgða sem setur framkvæmdavaldinu allþröngar skorður. En þar stendur, með leyfi hæstv. forseta:

„Ekki er ríkisstj. heimilt að taka þátt í stofnun hlutafélags samkv. 1. gr. né leggja fram fé ríkissjóðs sem hlutafé samkv. 1. tölul. 2. gr. né veita ríkisábyrgð eða taka lán samkv. 2. tölul. 2. gr. fyrr en tryggð hafa verið til hlutafjárframlög annarra aðila fyrir 60% af tilhlutafé væntanlegs félags og aflað hefur verið öruggra viðskiptasambanda.“

Það hefur nú gerst, að lögð var fram þáttill. um steinullarverksmiðju í Þorlákshöfn. Lögð var fram brtt. sem miðar að því að breyta fram lagðri þáltill. á þann veg, að reist verði steinullarverksmiðja á Sauðárkróki. Og nú seinast hefur það gerst, að tveir af flm. upprunalega tillögunnar hafa hér staðið að flutningi á nýrri tillögu í þessu máli. Mér sýnist að hér hafi verið nokkuð hratt unnið og e. t. v. hafi menn ekki að öllu leyti sést fyrir. Sú brtt., sem meiri hl. atvmn. hefur lagt til, sker ekki úr um á hvorum staðnum beri að reisa verksmiðju eða yfirleitt hvar beri að reisa steinullarverksmiðju eða hvort beri að reisa steinullarverksmiðju, þannig að heldur fátt virðist þar á hreinu. Aftur á móti leiðir hún ekki til lausnar heldur þó að safnað yrði hlutafé af mörgum aðilum. Segjum að tveir, þrír, fjórir eða fimm aðilar söfnuðu nú hlutafé fyrir steinullarverksmiðju. Það er til skeljasandur á Vestfjörðum líka. Ég hygg að öllum sé ljóst að ekki er skynsamlegt að reisa nema eina steinullarverksmiðju.

Ríkisvaldið hefur verið að byggja upp atvinnufyrirtæki í iðnaði í hinum ýmsu kjördæmum. Þannig hefur fjármagni skattborgaranna verið varið til atvinnuuppbyggingar í þeirri góðu trú að það efli þjóðartekjur og komi þannig þjóðfélaginu til góða síðar meir. Ég lít svo á að ríkisvaldið verði að gæta jafnvægis milli kjördæma og bera nokkra ábyrgð á tillögugerð sinni í þeim efnum. Ef sú brtt. yrði að lögum, sem meiri hl. hefur lagt til, kemur ríkisvaldið til með að bera allverulegar ábyrgðir á fjárhæðum í þessu fyrirtæki. Það kemur líka til með að gefa eftir sölugjöld af vélum og tækjum og aðflutningsgjöld yrðu felld niður. Segja má að þjóðarheildin sé á þann veg að leggja fjármagn til þessarar starfsemi, en hið opinbera væri þá ekki eignaraðili og ætti verra með að fylgjast með þróun mála þrátt fyrir sínar ábyrgðir.

Ég veit ekki hvort það er heldur í alla staði sanngjörn stefna að ætla að setja iðnaðarhugmyndir á almennt uppboð fjármagnsmarkaði þjóðarinnar. Í mínum huga gæti það haft allalvarlegar afleiðingar fyrir byggðaþróun, ef það yrði gert.

Ég hygg að e. t. v. sé brtt. meiri hl. saman sett og orðuð á þann veg að flm. hafi fyrst og fremst verið að leita að einhverri útgönguleið sem þeir gætu varið fyrir sjálfum sér, en jafnframt komið sér undan að taka afstöðu til hinna upprunalegu tillagna sem lágu fyrir. Og það skal játað að það er ekkert skemmtilegt að fá mál eins og þetta inn í þingið.

En fyrst Alþingi Íslendinga taldi það rétt 25. maí 1981 að viðhafa þau vinnubrögð sem lög um steinullarverksmiðju kveða á um þykir mér einsýnt að ekkert hafi gerst sem réttlætt geti það eftir svo skamman tíma að fara að breyta þeim lögum.

Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu.