10.11.1981
Sameinað þing: 16. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 591 í B-deild Alþingistíðinda. (436)
323. mál, ellilífeyrir sjómanna
Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):
Herra forseti. 29. maí 1980 var samþykkt hér á hv. Alþingi svohljóðandi þáltill.:
„Alþingi ályktar að fela samgrh. að láta athuga nú þegar með hvaða hætti tryggja megi sem bestar og öruggastar flugsamgöngur við Vestfirði.
Athugun þessi skal fyrst og fremst beinast að eftirfarandi:
l. Lýsingu og öryggistækjum vegna aðflugs og lendingar á Ísafjarðarflugvelli.
2. Endurbótum og lengingu á flugbrautinni við Holt í Önundarfirði og flugbrautinni í Bolungarvík með það í huga að þær gegni því hlutverki að vera varavellir fyrir Ísafjarðarflug.
3. Öryggisbúnaði og lýsingu á Þingeyrarflugvelli.
4. Lýsingu og öryggistækjum vegna aðflugs og lendingar á Patreksfjarðarflugvelli.
Athugun þessari skal hraðað svo sem frekast er kostur.“
Í ljósi þessarar samþykktar hef ég leyft mér að leggja fram á þskj. 34 svohljóðandi fsp. til hæstv. samgrh.:
„1. Er lokið athugun þeirri á úrbótum í flugsamgöngum við Vestfirði, sem samþykkt var á Alþingi 29. maí 1980?
2. Ef svo er, hverjar eru niðurstöður hennar?“
Það þarf ekki að fara öllu fleiri orðum um það, hversu nauðsynlegt það er Vestfirðingum að að þessum málum sé unnið og það vel, vegna þess að þeir hafa búið og búa enn við þá sérstöðu að 7–9 mánuði á ári verða þeir svo til eingöngu að treysta á flugsamgöngur við aðra landshluta. Það er því knýjandi nauðsyn að fá úr því skorið, með hvaða hætti hægt er að tryggja betur þennan samgönguþátt, og síðan í áframhaldi af slíkri könnun að fá til þess fjármagn að hrinda framkvæmdum af stað til þess sem nauðsynlega þarf að vinna.