04.05.1982
Neðri deild: 79. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4603 í B-deild Alþingistíðinda. (4375)
303. mál, ábyrgð á lánum til kaupa á ferjuskipi Skallagríms
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar þm. Vesturlands þakka hv. fjh.- og viðskn. fyrir skjóta afgreiðslu á þessu máli. Ég ætla ekki að fara að lýsa því, að hér er um mál að ræða sem er mikið hagsmunamál fyrir íbúa Vesturlands, eins og raunar alla landsmenn. Ég get vel fellt mig við þá skoðun, sem kom fram hjá frsm. hv, fjh.- og viðskn., að það er ekkert óeðlilegt við að það verði leitað eftir hlutafjáraukningu hjá þeim aðilum sem standa að þessu fyrirtæki, og ég mun beita mér fyrir því að svo verði. En ég legg áherslu á að þetta mál fái afgreiðslu.