04.05.1982
Neðri deild: 80. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4609 í B-deild Alþingistíðinda. (4397)

291. mál, lagmetisiðnaður

Frsm. minni hl. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Frv. þetta fjallar um beiðni stjórnar Sölustofnunar lagmetis um að framlengja núverandi starfsréttindi stofnunarinnar, sem falla eiga úr gildi um næstu áramót, um eitt ár til viðbótar. Ég tel eðlilegt að sölusamtök í lagmetisiðnaði starfi á sama grundvelli og önnur útflutningssamtök. Ljóst virðist vera að viðleitni löggjafans til að efla samtök og samvinnu með niðurlagningarverksmiðjum hefur ekki borið þann árangur sem til var ætlast. Sýnist mér því eðlilegt að umrædd lög falli úr gildi um næstu áramót, svo sem samþykkt var á Alþingi í fyrra, og hef ég ekki heyrt þau rök er mæla með framlengingu laganna. Ég legg því til að frv. verði fellt.