10.11.1981
Sameinað þing: 16. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (444)

334. mál, ráðstafanir vegna myntbreytingar

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Vegna fsp. hv. 2. þm. Austurl. hef ég snúið mér til Verðlagsstofnunar og beðið hana um upplýsingar, en eins og kunnugt er, þá er framkvæmd á lögum um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta verslunarhætti í höndum verðlagsráðs, samkeppnisnefndar og Verðlagsstofnunar. Við Verðlagsstofnun starfar, eins og kunnugt er, sérstök deild, neytendamáladeild, sem annast framkvæmd á V. kafla þessara laga. Ég vil strax taka það fram, að ég ræddi þessi mál ítrekað við verðlagsstjóra snemma á þessu ári vegna þess að mér bárust upplýsingar um að það væru einhver brögð að því að smærri hlutir væru seldir við óeðlilega háu verði.

Spurningar hv. þm. eru á þessa leið:

1. Hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar til að koma í veg fyrir, að myntbreytingin um s. l. áramót valdi sérstökum verðhækkunum, einkum á smærri vörum og minni háttar þjónustu, umfram aðrar verðhækkanir?

Eins og ég sagði áður leitaði ég að sjálfsögðu til Verðlagsstofnunar um svör við þessum spurningum, þannig að svörin eru nánast svör Verðlagsstofnunar.

Í brbl. um viðnám gegn verðbólgu, sem sett voru 31. des. s. l., var kveðið á um hert aðhald í verðlagsmálum, m. a. vegna myntbreytingarinnar. Á því tímabili, sem lögin voru í gildi, eða fram til 30. apríl s. l., var enn þá fylgt mjög aðhaldssamri stefnu og verðhækkunum haldið í lágmarki. Í framhaldi af brbl. voru 30. apríl s. l. sett lög um verðlagsaðhald o. fl. og er gildistími þeirra laga til n. k. áramóta. Í lögunum um verðlagsaðhald er kveðið á um að verðlagsákvarðanir skuli miðast við ársfjórðungsleg meginmarkmið, sem ríkisstj. setur á hverjum tíma. Það er skoðun Verðlagsstofnunar, að vel hafi tekist að framfylgja markmiðum ríkisstj. í verðlagsmálum á þessu ári og virðist fyrirsjáanlegt að almennar verðhækkanir frá upphafi til loka ársins verði innan þess ramma sem ríkisstj. upphaflega setti sér, myntbreytingin hafi því ekki haft í för með sér sérstakar verðhækkanir umfram aðrar verðhækkanir, sem mælanleg áhrif hafa á heildarútgjöld heimilanna, en nokkur slík dæmi er hins vegar að finna í smærri vörum, og kem ég nánar að því í svari við spurningu 3 hér á eftir.

2. spurning: Hvernig hefur Verðlagseftirlitinu verið beitt til aðhalds og eftirlits?

Verðlagseftirlitið hefur einkum beinst að þeim vöru- og þjónustuliðum sem hvað þyngst vega í framfærslukostnaði almennings. Það hefur verið stefna verðlagsyfirvalda um langt skeið að beina þeim takmarkaða starfskrafti, sem þau hafa yfir að ráða, inn á þá braut aðallega, í stað þess að dreifa honum á öll svið verðlagsmála. Sem dæmi um þá flokka, sem mest áhersla hefur verið lögð á, má nefna matvörur, hreinlætisvörur, fatnað, búsáhöld, bifreiðar, bensín, heimilistæki, heitt vatn, rafmagn, síma, fargjöld ýmiss konar, afnotagjöld hljóðvarps o. fl. Hækkanir, sem orðið hafa á árinu á þessum liðum, eiga sér eðlilegar skýringar og eru innan þess ramma sem kostnaðarhækkanir hafa gefið tilefni til. Eftirlit með öðrum greinum hefur að mestu verið fólgið í innköllun og athugun á verðlistum, en bein afskipti af verðmynduninni hafa verið lítil.

3. spurning: Eru til frá Verðlagseftirliti samanburðarskýrslur varðandi ýmsar smærri vörur fyrir og eftir myntbreytingu, og ef svo er, hvað hafa þær þá leitt í ljós?

Eins og fram kemur í svari við 2. spurningu hefur Verðlagseftirlitinu fyrst og fremst verið beint að þýðingarmestu þáttum í útgjöldum heimila. En jafnframt hefur verið fylgst með þróun verðlags á ýmsum smærri vörum, sem ekki eru bundnar hreinum verðlagsákvæðum. Eins og ég sagði áður hef ég ítrekað rætt þessi mál sérstaklega við Verðlagsstofnunina. Því er ekki að leyna að í sumum tilvikum hafa þessar smærri vörur hækkað meira á árinu en verðlag almennt, en þó hefur verið mun minna um slíkt en gefið hefur verið til kynna í opinberri umræðu um þetta mál að undanförnu, segir Verðlagsstofnun. Ábendingar, sem verðlagsyfirvöld hafa fengið um verðlagshækkanir, hafa í flestum tilvikum átt sér eðlilegar skýringar.

Margt bendir til þess, að þær verðhækkanir á smávörum, sem verið hafa umfram almennar kostnaðarhækkanir á þessu ári, megi rekja til myntbreytingarinnar og hafi seljendur, m. a. til hagræðis, freistast til að láta verð standa á heilum tölum. Hins vegar virðist of snemmt á þessu stigi að leggja mat á hver verðþróun þessara vara verður í samanburði við almennar verðlagshækkanir þegar til lengri tíma er litið. Búast má við að verðlag það, sem hér um ræðir, muni gilda lengur en ella og eru reyndar nú þegar fyrirliggjandi upplýsingar sem styðja þá skoðun. Verðlagsyfirvöld hafa ekki til þessa talið ástæðu til að grípa að marki inn í verðmyndun þessara vara, en munu fylgjast náið með þróun mála og gera viðeigandi ráðstafanir verði vandamálið stærra en það er nú. Stefnan verður hins vegar áfram sú að leggja megináherslu á eftirlit með þeim vöru- og þjónustuliðum er verulega skipta máli í útgjöldum hins almenna neytanda.

Eins og kemur fram í þessum svörum mínum er alveg ljóst að það hafa verið nefnd dæmi um verðlagshækkanir á smáhlutum sem eru úr hófi og Verðlagsstofnun segist ekki hafa gripið inn í að marki, en þó hefur hún fylgst með þessum málum og gripið inn í að vissu marki. Hins vegar leggur Verðlagsstofnun áherslu á að of snemmt sé að meta hvaða áhrif þetta muni hafa á verðlagsþróun þegar til lengri tíma er litið.

4. og seinasta spurningin er á þessa leið: Hefur rn. leitað til Neytendasamtakanna um þetta mál, og ef svo er, hvað hefur verið gert af hálfu samtakanna?

Eins og gerð hefur verið grein fyrir hér að framan er þetta mál ekki þannig vaxið að ástæða hafi verið til að taka það sérstaklega upp við Neytendasamtökin, enda er Verðlagsstofnun betur í stakk búin en þau til að fylgjast með verðlagsbreytingum. Að gefnu tilefni skal tekið fram, að á undanförnum 2–3 árum hefur samstarf Verðlagsstofnunar og Neytendasamtakanna aukist verulega, m. a. á sviði verðlagskannana. Rn. telur, að samstarf þessara aðila hafi haft jákvæð áhrif á verðskyn neytenda og örvað samkeppni á milli verslana, og bindur vonir við að þetta samstarf geti þróast enn frekar í framtíðinni. Rn. hefur jafnframt stuðlað að því, að afstaða stjórnvalda til Neytendasamtakanna hefur gjörbreyst að undanförnu. Hefur það m. a. komið fram í auknum fjárveitingum til þeirra. Þannig gerir fjárlagafrv. fyrir næsta ár ráð fyrir tvöföldun á fjárframlagi til Neytendasamtakanna.