04.05.1982
Neðri deild: 83. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4627 í B-deild Alþingistíðinda. (4446)
279. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði
Birgir Ísl. Gunnarsson:
Herra forseti. Eins og fram kemur á nál., sem hv. 4. þm. Vesturl., Skúli Alexandersson, formaður iðnn., mælti hér fyrir, höfum við þm. Sjálfstfl., ég og hv. þm. Sigurlaug Bjarnadóttir, flutt brtt., en stöndum að öðru leyti með þeim brtt. sem meiri hl. n. hefur lagt hér fram. Eins og sjá má af þeim brtt. er hér um mjög mikla breytingu að ræða frá því frv. sem upphaflega var lagt fram hér á hv. Alþingi og iðnn. hefur unnið að.
Iðnn. hefur unnið mjög vel í þessu máli. Hún hefur fengið til fundar við sig mjög marga aðila, hún hefur leitað skriflegra umsagna fjölmargra aðila og í nefndinni hefur verið gott samstarf og samvinnuvilji á alla bóga, vil ég segja. En ástæðan fyrir því, að þessar miklu brtt. eru fluttar við þetta frv., er sú, að því fer fjarri að þetta mál hafi verið nægilega undirbúið þegar það var lagt fram á hv. Alþingi og ætlast til að Alþingi afgreiddi það á þeim stutta tíma sem það hefur haft til ráðstöfunar til þess.
Á vegum iðnrn. hefur starfað sérstök verkefnisstjórn að undirbúningi þessa máls. Hún gekk frá lokaskýrslu sinni í mars, en iðnrn. samdi síðan frv. á grundvelli lokaskýrslu og mælti iðnrh. fyrir því í Nd. 14. apríl s. l. Alþingi hefur því haft þetta frv. til meðferðar í um það bil þrjár vikur, sem er allt of stuttur tími í svo veigamiklu máli.
Iðnn. hafa verið að berast mikilvæg gögn í þessu máli atveg fram á síðustu stundu. Slík vinnubrögð eru óverjandi með öllu. Það er eins og það sé hæstv. iðnrh. áskapað að temja sér þessi vinnubrögð þing eftir þing í stórum og mikilvægum málum sem Alþingi þarf að fjalla um. Ég vil einnig benda á í þessu sambandi að þm. stjórnarandstöðu hafa ekki fengið nægileg tækifæri til að kynna sér þetta mál fyrr en það var lagt fram á hv. Alþingi. Það er mjög ólíkt þeim vinnubrögðum sem t. d. voru viðhöfð þegar frv. um járnblendiverksmiðjuna var lagt fram á hv. Alþingi á sínum tíma. Sérstök þingmannanefnd, skipuð þm. úr öllum flokkum, stjórnarsinnum jafnt sem stjórnarandstæðingum, vann með fulltrúum ríkisstj. að undirbúningi þess máls í eitt og hálft ár áður en frv, um það var lagt fram. Alþingi tók sér marga mánuði til að fjalla um það frv., og reyndar kom málið aftur fyrir Alþingi síðar, þegar breyting varð á samstarfsaðila við íslenska ríkið í því félagi, og þá tók Alþingi sér enn góðan tíma til að fjalla um það mikilvæga mál. Það verður því að átelja harðlega þá vanvirðu, sem hæstv. iðnrh. sýnir hv. Alþingi hvað eftir annað í jafnmikilvægum málum og hér eru á ferðinni, og jafnframt að mótmæla því tillitsleysi sem hann og hæstv. ríkisstj. sýna stjórnarandstöðu í svo mikilvægum málum.
Í máli þessu eru mjög margir efnisþættir sem iðnn. hefur fjallað um. Ég vil með nokkrum orðum grípa á þessum þáttum til að skýra hvers vegna hv. iðnn. treystir sér ekki til að samþykkja frv. eins og það upphaflega var lagt fram og hvers vegna nefndin gerir á því jafnveigamiklar breytingar og hér er lagt til.
Ég vil fyrst víkja að þeim þætti sem snertir rannsóknir á lífríki og umhverfi. Um þennan þátt málsins fékk iðnn. umsögn Heilbrigðiseftirlits ríkisins og sameiginlega greinargerð frá Heilbrigðiseftirliti ríkisins og Náttúruverndarráði og að auki sérstaka umsögn frá Vinnueftirliti ríkisins. Í umsögn Heilbrigðiseftirlits ríkisins kemur m. a. eftirfarandi fram, með leyfi hæstv. forseta:
„Við val á staðsetningu verksmiðja og iðjuvera er mikilvægt að fyrir liggi athuganir sem sýni að staðsetning sé forsvaranleg út frá mengunar- og heilbrigðissjónarmiðum. Enn fremur er mikilvægt að fylgst sé með hugsanlegum mengunaráhrifum frá verksmiðjurekstrinum eftir að starfsemi er hafin. Varðandi staðarval á Reyðarfirði fyrir kísilmálmverksmiðju hafa ekki farið fram nauðsynlegar forrannsóknir til að ganga úr skugga um að staðsetning hennar megi teljast forsvaranleg. Ákvæði 2. mgr. 10. gr. frv. um mengunarvarnir virðist því litlum tilgangi þjóna þar sem staðsetning verksmiðjunnar hefur verið ákveðin án þess að áður hafi verið gengið úr skugga um að hún væri forsvaranleg út frá mengunar- og heilbrigðissjónarmiði.“
Þetta kemur fram í því skriflega áliti sem nefndinni barst frá Heilbrigðiseftirliti ríkisins. Þá komu fulltrúar Náttúruverndarráðs á fund í nefndinni til upplýsingagjafar. Á þeim fundi kom fram að nauðsynlegar grundvallarrannsóknir hefðu ekki farið fram áður en verksmiðjunni var valinn staður. Nefndu þeir sérstaklega að ekki hefði farið fram athugun á hvort um viðkvæmt lífríki eða viðkvæmt vistkerfi væri að ræða né heldur hefðu þar farið fram mætingar á veðurfari og straumum. Lýstu þeir óánægju sinni með að slíkar rannsóknir hefðu ekki farið fram. Sérstaklega var vitnað til greinargerðar Veðurstofu Íslands sem fylgdi með skýrslu Heilbrigðiseftirlits ríkisins og Náttúruverndarráðs, en þar er sérstaklega fjallað um aðstæður í Reyðarfirði. Þar kemur fram að ætla megi — og nú vitna ég til skýrslunnar: „að stöðugleiki lofts sé tiltölulega mikill í Reyðarfirði og hitahvörf alloft í lítilli hæð, en þá liggur eins og lok yfir firðinum og dreifing mengunarefna verður lítil, einkum þegar samfara er logn eða hægviðri.“
Í þessari greinargerð er gerður samanburður við Grundartanga að þessu leyti og segir um það í skýrslunni:
„Eðlilegt er að gera nokkurn samanburð og styðjast við reynstu frá járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga, þar sem mengunarefni þar eru hin sömu og í fyrirhugaðri kísilmálmverksmiðju. Ljóst er að Grundartangaverksmiðjan er á miklu opnara svæði. Þar er til muna vindasamara, logn miklu fátíðara og skilyrði til loftskipta og dreifingar mengunarefna öll betri.“
Í skýrslu Veðurstofunnar kemur og fram að kísilmálmverksmiðja gefi af sér mun meira af efninu SO2, eða brennisteinstvíoxíði, en kísiljárnverksmiðja eins og er á Grundartanga. Veðurstofan áætlar að heildarmagn af brennisteinstvíoxíði sé um 72% meira í kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði. Segir um þetta orðrétt í skýrslu Veðurstofunnar:
„Þegar ofanritað er haft í huga, sem og það sem áður var sagt um óhagstæðar aðstæður og tiltölulega litla dreifingu mengunarefna í Reyðarfirði, virðist augljóst að mengun af brennisteinstvígildi eða brennisteinstvíoxíði gæti orðið alvarlegt vandamál á verksmiðjustaðnum sjálfum og næsta nágrenni hans. Er nauðsynlegt að taka tillit til þessa við hönnun verksmiðjunnar.“
Það verður að gagnrýna að slíkar nauðsynlegar undirbúningsrannsóknir skuli ekki hafa farið fram áður en verksmiðjunni var valinn staður og áður en lagt er til að endanleg ákvörðun um staðarval sé tekin. Óhjákvæmilegt er í þessu sambandi að minna á mjög harðan áróður Alþb. um mengunarhættu þegar járnblendiverksmiðjan var byggð. Það kemur því óneitanlega á óvart að undir forustu Alþb. skuli þessi mikilvægi þáttur jafnvanræktur og raun ber vitni um.
Í greinargerð Heilbrigðiseftirlits ríkisins og Náttúruverndarráðs kemur fram — og nú vitna ég til greinargerðarinnar: „að ítarlegrar rannsóknar sé þörf meðan uppbygging kísilmálmverksmiðjunnar stendur, er miði fyrst og fremst að því að fá gott yfirlit yfir núverandi ástand lífríkis og umhverfis svo að unnt verði að greina áhrif þessarar verksmiðju og annars hugsanlegs verksmiðjureksturs á svæðinu, séu þau nokkur.“ Slíkar rannsóknir auka mjög líkur á því, að kleift verði að grípa til réttra gagnráðstafana beri eitthvað út af síðar meir.
Greinargerðinni fylgir verkáætlun og kostnaður yfir rannsóknir á lífríki og umhverfi, en heildarkostnaður rannsókna er metinn á 4 millj. 585 þús. kr. Ekki virðist gert ráð fyrir þeim kostnaði í stofnkostnaðaráætlun verksmiðjunnar, en þó er gert ráð fyrir að verksmiðjan beri nauðsynlegan kostnað vegna rannsóknanna.
Ég ætla þá næst að víkja nokkuð að eignaraðild að verksmiðjunni, en samkv. 2. gr. frv., eins og það liggur fyrir, er ríkisstj. heimilt að kveðja aðra aðila, sem áhuga hafa, til samvinnu um stofnun eða starfsemi tilhlutafélags. Þó skal ekki minna en 51% af hlutafé félagsins jafnan vera í eigu ríkisins og stjórn þess skipuð fulltrúum ríkisins að meiri tilhluta. Samkv. þessari grein, eins og frá henni er gengið í frv., hefur ríkisstj. alveg á valdi sínu hvaða aðila hún kveður til samstarfs í þessu hlutafélagi. Í grg. frv. segir að það gæti verið um að ræða sveitarfélög, innlend hlutafélög, samvinnufélög og aðra innlenda aðila. Í ræðu, er iðnrh. hélt við 1. umr. um frv., sagði hann: „Það er ekkert sem í lagatextanum útilokar einhverja aðild erlendra aðila, ef þeir vildu leggja hlutafé í þetta fyrirtæki.“ Samkv. þessu er ljóst að ríkisstj. hefur mjög frjálsar hendur við að velja aðila til samstarfs í þessu hlutafélagi, eða allt frá því, að ríkissjóður eigi einn félagið 100%, í það að samið sé við erlenda um 49% eignaraðild. Þá hefur, eins og frv. var lagt fram, ríkisstj. og fullkomlega frjálsar hendur um með hvaða kjörum verði samið við aðila um samstarf í þessu hlutfélagi. Með þessu er ríkisstj. veitt óeðlileg heimild og undir þann leka er reynt að setja í þeim brtt. sem fluttar eru af hálfu iðnn. þar sem gert er ráð fyrir að samstarfssamningar, sem gerðir séu við þá aðila sem kvaddir séu til samstarfs, verði lagðir fyrir Alþingi til staðfestingar.
Rétt er að taka fram að það er skoðun okkar, mín og hv. þm. Sigurlaugar Bjarnadóttur, að það sé alls ekki nauðsynlegt að ríkið eigi undir öllum kringumstæðum meiri hluta í slíku félagi. Við höfum því flutt brtt. á sérstöku þskj. um að sú skylda sé lögð á hæstv. ríkisstj. að hún kveðji til aðra aðila til samstarfs í þessu félagi og jafnframt að niður falli það ákvæði frv. að það sé skilyrði að ríkið undir öllum kringumstæðum eigi minnst 51% í félaginu. Það hefur komið glögglega fram að hér er um mjög mikið áhættufyrirtæki að ræða. Ég segi það sem mína skoðun, að ég tel að eðlilegt sé að dreifa þessari miklu áhættu með því að leita að einhverju leyti samstarfs við erlenda aðila um eignaraðild, a. m. k. fyrst um sinn. Öll fjármálaleg rök mæla með slíku fyrirkomulagi.
Ég vil þá næst víkja að þeim þætti að undirbúningi þessa máls sem lýtur að fjármögnun fyrirtækisins. Um fjármögnunarþátt verksmiðjunnar er ítarlega fjallað í þeirri umsögn sem iðnn. barst frá Seðlabanka Íslands. Í upphafi kaflans um fjármögnun segir svo í greinargerð Seðlabankans:
„Í skýrslu verkefnisstjórnar er mjög lítið fjallað um fjármögnun verksmiðjunnar. Virðist svo að þessi mikilvægi þáttur málsins hafi nánast verið lagður til hliðar.“
Í skýrslu Seðlabankans er síðan fjallað um það sem greinir í skýrslu verkefnisstjórnar um áætluð vaxtakjör, og kemur fram að Seðlabankinn telur að forsendur verkefnisstjórnar varðandi vaxtakjör á lánum til verksmiðjunnar þurfi nánari athugunar við. Telur Seðlabankinn að niðurstaðan varðandi áætlaða vexti skipti miklu máli vegna samanburðar við afkastavexti verksmiðjunnar eins og þeir hafa verið áætlaðir.
Um áætlað rekstrarfjármagn segir svo í umsögn Seðlabankans:
„Að því er varðar áætlun verkefnisstjórnar um rekstrarfjármagn er það skoðun Seðlabankans, að þrátt fyrir það að verkefnisstjórn hafi ekki gert ráð fyrir neinum greiðslufresti á aðföngum, þá sé hér um vanáætlun að ræða. Þessi skoðun kemur einnig fram í greinargerð ráðgjafarfyrirtækisins RDG“ — sem er skammstöfun fyrir Resources Development Group. — „Hversu mikið á vantar hafa ekki verið tök á að meta, enda mun það m. a. ráðast af stærðum sem ekki eru þekktar, svo sem greiðslukjörum til umboðsmanna og fleira slíku.
Í ábendingum hér að ofan að því er varðar rekstrarkostnað hefur verið nefnt að í áætlunum er ekki gert ráð fyrir neinum verulegum sveiflum í verðlagi og sölu milli ára. Ef gera á raunhæft mat á stöðu fyrirtækisins verður að gera ráð fyrir því, að meira fé í rekstrarfjárformi þurfi til öryggisins vegna til að mæta slíkum sveiflum, ef greiðslugeta fyrirtækisins á að vera tryggð. Nægir í því sambandi að benda á þá fjármagnsþörf sem nú er til umfjöllunar á Alþingi vegna hliðstæðra rekstrarerfiðleika Íslenska járnblendifélagsins hf.“
Þetta var tilvitnun í skýrslu Seðlabankans. Í þessum kafla í skýrslu Seðlabankans er einnig rætt um veitingu ríkisábyrgða og sú skoðun sett fram, að æskilegast sé að komast hjá ríkisábyrgðum á fjárfestingarlánum til verksmiðjunnar í eins ríkum mæli og mögulegt sé. Æskilegt sé að takmarka, hversu langt íslenska ríkið gangi í veitingu ábyrgða, og í þessu tilviki sé um að ræða stórar ábyrgðir sem komi til viðbótar væntanlegum lántökum ríkissjóðs vegna kaupa á hlutabréfum í fyrirtækjum. Ákvörðun fyrir fram um ríkisábyrgð á lántökum vegna fyrirtækisins dragi úr því öryggi, sem fólgið sé í áhættumati einstakra lánastofnana á fjárfestingunni, því að með ríkisábyrgð að baki skiptir áhætta í fyrirtæki miklum mun minna máli fyrir lánveitandann en ella. Því sé eðlilegt að gefa ekki fyrirheit um tilteknar ríkisábyrgðir fyrr en alvarlegar viðræður hafi farið fram við hugsanlega lánveitendur. Seðlabankinn telji æskilegt með tilliti til áhættu að fá fram álit erlendra fjármálastofnana .á hagkvæmni fjárfestingarinnar og jafnframt áhættu með því að leita eftir lánum án ríkisábyrgða.
Lokaþátturinn í þessum kafla í umsögn Seðlabankans er svohljóðandi:
„Ef dregið er saman það, sem sagt er hér að ofan um fjármögnun, er niðurstaðan sú, að fjármögnun hinnar fyrirhuguðu verksmiðju hafi ekki verið nægilegur gaumur gefinn af verkefnisstjórn. Það er skoðun bankans, að ræða þurfi við hugsanlega lánveitendur áður en lengra er haldið um ákvarðanatöku, þannig að hægt sé að leggja fram raunhæfa fjármögnunaráætlun samhliða öðrum áætlunum sem verkefnisstjórn hefur unnið að. Meðan slík áætlun er ekki fyrir hendi verður ekki sagt að undirbúningsathugunum sé lokið. Liður í undirbúningi slíkar fjármögnunaráætlunar væri áhættumat á fjárfestingunni og hinum ýmsu liðum hennar. Eins og áður hefur verið vikið að fælist slíkt áhættumat óbeint í undirtektum lánveitenda við lánsbeiðnum, en væntanlegur eigandi verksmiðjunnar þarf sjálfur að mynda sér skoðun um þá áhættu sem verið er að taka. Þessi atriði, sem hér eru tekin til umr., geta að sjálfsögðu haft áhrif á arðsemi fyrirtækisins til hins betra eða verra.“
Hér lýkur tilvitnun í þessa umsögn Seðlabankans, en eins og fram kemur af hinum tilvitnuðu orðum úr umsögninni hefur fjármögnunarþætti væntanlegrar verksmiðju ekki verið nægilega sinnt. Er ljóst að Alþingi getur á engan hátt sleppt þessu máli frá sér án þess að tryggja að fjármögnunaráætlun komi til Alþingis til staðfestingar. Ein af þeim brtt., sem meiri hl. iðnn. flytur, er gerð til að tryggja að svo verði.
Ég vil þá aðeins víkja að stofnkostnaðaráætlun, en í lokaskýrslu verkefnisstjórnar kemur fram áætlun um stofnkostnað væntanlegs fyrirtækis.
Innlendi kostnaðurinn er áætlaður 57% af heildarkostnaði og sá erlendi 43%. Heildarstofnkostnaður verksmiðjunnar á verðlagi 1. mars 1982 er áætlaður 747.1 millj. kr. Til viðbótar þessu kemur svo ýmis annar stofnkostnaður, sem alfarið má rekja til byggingar kísilmálmverksmiðjunnar. Þar má nefna hafnargerð við Mjóeyri í Reyðarfirði, áætlaður stofnkostnaður er um 29.5 millj. kr., gerð vatnsveitu fyrir verksmiðjuna, áætlaður stofnkostnaður 10–15 millj. kr., lagningu 35 km raflínu frá Hryggstekk í Skriðdal til Reyðarfjarðar, lauslega áætlaður kostnaður gæti verið 18–20 millj. kr. Þjóðhagsstofnun gerði sérstaka áætlun um þennan annan stofnkostnað, sem ekki kemur fram í stofnkostnaðaráætlun sem tengist tilkomu verksmiðjunnar, og hann gæti verið á bilinu 65–75 millj. kr. eða um allt að 10% af tilgreindum stofnkostnaði.
Iðnn. Nd. hefur fengið í hendur áætlun frá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens um frumgerð að stofnkostnaðaráætlun, sem gerð var af Almennu verkfræðistofunni. Lagði Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsens aðallega mat á byggingarkostnað verksmiðjunnar. Áætlun þeirrar verkfræðistofu er um 3% hærri en áætlun verkefnisstjórnar, sem talið er innan óvissumarka. Ég held að það sé ekki ástæða til að gagnrýna sérstaklega verkefnisstjórn fyrir þessa stofnkostnaðaráætlun, ég býst við að hún sé gerð af eins mikilli samviskusemi og unnt er og ekki ástæða að vefengja sérstaklega þann þátt í starfi verkefnisstjórnarinnar.
Ég vil þá víkja lítillega að framkvæmdaáætlun, en það atriði kom oft til umræðu í iðnn., hvort ekki væri nauðsynlegt, jafnframt því sem gerð væri fjármögnunaráætlun, að gera ítarlega framkvæmdaáætlun um þetta fyrirtæki. Í umsögn Seðlabanka Íslands er fjallað um þetta atriði og þar segir:
„Síðasti kafli í lokaskýrslu verkefnisstjórnar fjallar um framkvæmdaáætlun fyrir verkið. Þar kemur fram að ef tímasetningar eiga að standast þarf aðvera búið að semja um kaup á ofnum eigi síðar en 1. sept. 1982. Til þess eru nú fjórir mánuðir. Á þeim tíma þarf að stofna fyrirtækið ef lögin ná fram að ganga, skipa stjórn og ráða starfsmenn. Taka þarf mikilvægar ákvarðanir varðandi uppbyggingu verksmiðjunnar, semja um fjármögnun a. m. k. á þeim hluta er varðar ofnakaupin. Hér er um mikið og vandasamt verkefni að ræða, sem mikið veltur á að vel takist. Þegar Kísiliðjan hf. og Íslenska járnblendifélagið hf. voru stofnuð með þátttöku íslenska ríkisins var sá tími, sem til umráða var til undirbúnings, mun rýmri. Að auki komu í báðum tilvikum til erlendir samstarfsaðilar sem veittu mikilvæga aðstoð að því er varðaði stjórnunarlega uppbyggingu fyrirtækjanna.
Í því frv., sem hér er lagt fram, er ekki í neinu vikið að því, með hvaða hætti yrði staðið að stjórnunarlegum undirbúningi verksins. Stjórnunarþekking, sem til þarf, kann að vera til í landinu á þessari stundu, t. d, hjá Járnblendifélaginu á Grundartanga, en ekki verður séð í frv. að ætlunin sé að nýta hana við uppbyggingu þessa fyrirtækis. Öllum má þó vera ljóst að á fáu veltur meira í uppbyggingu og rekstri á svo stóru og áhættusömu fyrirtæki en styrkri og hæfri stjórn.“
Um þetta atriði er einnig fjallað í umsögn frá Jóni Sigurðssyni framkvæmdastjóra Íslenska járnblendifélagsins, en hann sendi iðnn. minnisblað og kom auk þess á fundi hjá nefndinni til viðræðna um mál þetta. Í minnisblaði hans segir:
„Ég tel að eftir að stefnan um nýtingu vatnsorkunnar hefur verið mörkuð og þar með bygging kísilmálmverksmiðju ákveðin þurfi að ætla þeim aðilum, sem farin verður ábyrgð á að reisa og reka þetta mikla mannvirki, rúman tíma og talsverða fjármuni til þess eins að komast að niðurstöðu um hvernig þessari verksmiðju skuli hagað í smáatriðum með tilliti til hagkvæmni í byggingu og rekstri. Þetta var ekki gert í nægilegum mæli þegar Grundartangaverksmiðjan var byggð, m. a, vegna krafna íslenskra stjórnvalda um að byggingunni væri flýtt (vegna þess að Sigalda var fullgerð). Þetta verk geta ekki unnið aðrir en menn sem hafa þekkingu og reynslu á þessu sviði og geta varið tíma til starfsins.
Án slíkra vinnubragða yrði verksmiðjan dýrari en hún þarf að vera og fleiri hlutir yrðu ekki eins og best yrði á kosið. Ég hef raunartrú á, að kostnaður við þessa vinnu fengist þegar uppi borinn í markvissari stjórn á verkfræðilegri hönnun og því lægri kostnaði við hana.
Slík vinnubrögð féllu auk þess vel að aðstæðum, því að ekki verður séð markaðsleg ástæða til annars en flýta sér hægt að byggja.“
Af þessu má m. a. sjá að nauðsynlegt er að traust framkvæmdaáætlun sé gerð um verk þetta, og hlýtur sú áætlun að tengjast fjármögnunaráætlun, sem fyrr getur. Nauðsynlegt er að Alþingi fjalli um slíka áætlun áður en endanlegar heimildir eru veittar til að hefja framkvæmdir og rekstur. Út á það gengur ein af þeim brtt. sem iðnn. hefur flutt.
Ég vil þá víkja að rekstraráætlun fyrirtækisins. Miklar umr. hafa farið fram í iðnn. um rekstraráætlun fyrirtækisins og væntanlega arðsemi þess. Í lokaskýrslu verkefnisstjórnar er birt áætlun hennar um rekstrarkostnað. Þá hefur nefndin fengið í hendur skýrslu frá breska fyrirtækinu Commodity Research Unit Limited, eða CRU skammstafað, en þar er fjallað um hinn alþjóðlega kísilmarkað og samkeppnisstöðu íslenskrar kísilmálmverksmiðju á þeim markaði. Þá hefur iðnn. og fengið í hendur skýrslu frá fyrirtækinu RDG, sem ég gat um áðan, en boðað var að sú skýrsla fæli í sér endurskoðun á þeim áætlunum sem fyrir lægju frá verkefnisstjórn eða eins konar ,,second opinion“, eins og það hefur verið orðað úr þessum ræðustól áður. Við þá skýrslu verður að gera þá aths., að hér er ekki um endanlega endurskoðun að ræða og fyrirtækið sjálft kallar skýrslu sína Preliminary Analysis, svo að ég vitni nú í það tungumál sem skýrslan er á, en það er eins konar forathugun. Það verður að gagnrýna hér og er eitt dæmi um þau vinnubrögð sem iðnrn. hefur tamið sér í þessu máli, að iðnrn. tók sig til og lét þýða-þessa skýrslu sérstaklega fyrir iðnn. Nd., en í þessari þýðingu er því algerlega sleppt, það er ekki eitt orð um það, að hér sé um að ræða forathugun eða bráðabirgðaathugun þessa fyrirtækis. Því er algerlega sleppt að rekja það sem fram kemur í formála að þessari skýrslu, að hér sé um að ræða skýrslu sem eigi að taka sem forleiðbeiningarathugun, en alls ekki endanlegt mat, eins og segir í upphafi skýrslunnar. Iðnrn. lætur þýða þessa skýrslu og sendir okkur hana sem endanlega endurskoðun þessa fyrirtækis á áætlunum sem fyrir lágu. Þetta eru forkastanleg vinnubrögð og þetta ásamt mörgum fleiri atriðum, sem upp hafa komið í umr. um þetta mál í iðnn. Nd., gerir það að verkum, að nefndin treystir ekki iðnrn. lengur fyrir forræði þessa máls. Því er það svo, að lagt er til að þetta félag verði nú þegar stofnað með bráðabirgðafyrirkomulagi, eins og fram kemur í brtt., og að þingkjörin stjórn taki við stjórn þessa máls.
Ljóst er að viðkvæmasti þátturinn í rekstraráætluninni er spá um afurðaverð verksmiðjunnar, Um þetta atriði segir m. a. í umsögn Seðlabankans, að í skýrslu verkefnisstjórnar komi fram að kísilmálmverð hafi verið í lægð undanfarin tvö ár, því sé ekki hægt að ganga út frá markaðsverði nú um þessar mundir, heldur þurfi að finna raunverð eða rétt verð sem grundvöll fyrir arðsemismatið. Orðrétt segir í skýrslu Seðlabankans um þetta:
„Niðurstaða verkefnisstjórnar er meðalverð 1525 bandaríkjadollarar á tonn, og er þá miðað við að helmingur kísilmálmsins sé seldur til álsteypa á 1485 dollara tonn og helmingur til sílikoniðnaðarins á 1565 dollara hvert tonn.“ — Ég skýt því hér inn, að frá síðari tveim tölum á eftir að draga sölukostnað og flutningskostnað til þess að þær séu sambærilegar við 1420 dollara meðalverðið. — „Þetta virðist heldur lægra en það raunverð sem ráðunautar verkefnisstjórnar ganga út frá. Þannig er raunverð RDG 1540 dollarar hvert tonn, en raunverð CRU heldur hærra. Á hinn bóginn kemur fram hjá ráðgjafarfyrirtækinu CRU, að lykilatriði varðandi hagkvæmni þessarar verksmiðju sé að hún komist inn á sílikonframleiðendamarkaðinn. Slíkt tekur að mati fyrirtækisins nokkurn tíma, eða allt að 4 ár ef vel tekst til með gæði framleiðslunnar, þannig að óvarlegt er að gera ráð fyrir þessu raunverði fyrstu ár rekstrarins. Verkefnisstjórn tekur að vísu tillit til þessa þar sem verðið er lækkað um 10% á fyrsta starfsári og 5% á því öðru, en það gæti verið álitamál, hvort hér sé nægileg aðgætni sýnd. Einnig kemur fram hjá ráðunautum verkefnisstjórnar að ekki er gert ráð fyrir efnahagskreppum af því lagi sem gengið hafa yfir síðan 1979.“
Í umsögn Þjóðhagsstofnunar er enn fremur fjallað um kísilmálmverð frá þessari verksmiðju. Niðurstaðan í umsögn Þjóðhagsstofnunar er svohljóðandi:
„Miðað við núverandi innflutningsverð til Þýskalands, Bretlands og Japans og núverandi gengi mynta þessara ríkja gagnvart dollar þarf kísilmálmverð að hækka um nær 25% á næstu árum umfram alþjóðlega verðbólgu til þess að ná þeirri verðmiðun, sem notuð er í skýrslu verkefnisstjórnar. Þótt gera megi ráð fyrir einhverri hækkun á næstu árum vegna þess að markaður er nú í lægð og ónýtt framleiðslugeta mikil, en líkur á vaxandi notkun þessa efnis á næstu áratugum, virðist varasamt að nota viðmiðun verkefnisstjórnar, þegar meta á arðsemi kísilmálmverksmiðju á Íslandi. Hér á eftir verður því einnig tekið dæmi af 10% lægra verði.“
Í umsögn Jóns Sigurðssonar framkvæmdastjóra Íslenska járnblendifélagsins hf. er fjallað um þetta efni einnig og þar segir:
„Ég er ekki í aðstöðu til að leggja sjálfstætt mat á forsendurnar um verðlag söluvörunnar. Hitt er víst, að mjög náin fylgni er milli verðlags kísilmálms og kísiljárns, þegar litið er yfir lengri tíma. Áætlanir fyrir Járnblendifélagið, sem byggðar væru á sambærilegu verði við það sem hér er gert ráð fyrir, þyrftu ekki að vera óraunhæfar, en ég teldi bjartsýni að miða við þær til að reiða sig á þær. Áhættustigið, sem því fylgir að þessar lykilforsendur framkvæmdarinnar gætu brugðist, er því hátt.“
Þessar tilvitnanir sýna að það er mat þeirra íslensku aðila, sem iðnn. hefur leitað upplýsinga og umsagna hjá, að verðviðmiðun verkefnisstjórnar sé of bjartsýn. Varðandi áætlun verkefnisstjórnar um verð á hráefni verksmiðjunnar hefur komið fram ábending um það, m. a. frá Seðlabanka, að ekki sé líklegt að hráefni til kísilmálmiðnaðar muni haldast nær óbreytt ef markaðsverð fyrir kísilmálm hækkar á bilinu frá 20–30%. Bent er á að samkv. útreikningum verkefnisstjórnar hefur 10% hækkun hráefniskostnaðar verksmiðjunnar í för með sér um það bil 2% lækkun arðsemis fyrirtækisins metið í afkastavöxtum. Raforkuverð skiptir þó miklu máli þegar meta skal arðsemiverksmiðjunnar, en raforkukostnaður er 19% rekstrarkostnaðar. Þjóðhagsstofnun bendir á að reiknað sé með 15 mills á kwst. í rafmagnsverð fyrstu 10 árin, en 20 mills á kwst. í rafmagnsverð næstu 10 árin, en þessi skipting hafi hins vegar ekki verið rædd við Landsvirkjun sem hafi reiknað með 17.5 meðalverði. Hinir erlendu ráðgjafar hafa sérstaklega bent á að til að tryggja arðsemi verksmiðjunnar sé æskilegt að raforkuverð verði lægra en það sem reiknað er með í áætlun verkefnisstjórnar.
Miðað við þær forsendur, sem fram koma í áætlun verkefnisstjórnar, er talið að afkastavextir fjárfestingar verði 10.4% og er þá miðað við fast verðlag. Í skýrslu RDG kemur fram að miðað við þær forsendur, sem þar komu fram um söluverð afurðanna, verði afkastavextir 11.9%. Fram kemur í skýrslu verkefnisstjórnar að ef söluverð lækkar um 10% muni arðsemin minnka úr 10.4 í 5.5. Af þessu má sjá hve mjög þessir útreikningar eru viðkvæmir fyrir því verði sem hægt verður að fá fyrir afurðir fyrirtækisins. Ljóst er að hér er um mjög áhættusaman rekstur að ræða. Rekstrarkostnaður er hár miðað við það sem þekkist í sambærilegum verksmiðjum annars staðar að mati allra ráðunauta og allmikil óvissa er ríkjandi um söluverð kísilmálms. Jafnframt er líklegt að fyrirtækið búi við greiðsluhalla fyrstu rekstrarárin. Það er því eindregin skoðun mín, að nauðsynlegt sé við allan undirbúning þessa máls að minnka eins og mögulegt er þá miklu áhættu sem fyrirtæki þetta getur haft í för með sér. Allan undirbúning þarf því vel að vanda til að reyna að treysta sem best möguleika okkar á þessum viðkvæmu mörkuðum, og þær brtt., sem meiri hl. iðnn. flytur, miða allar við að vanda enn betur undirbúning og að Alþingi fái málið aftur til athugunar þegar ýmsum þáttum í þessum undirbúningi er lokið.
Ég vil þá aðeins víkja að markaðsmálum, en í framsöguræðu sinni fyrir frv. þessu ræddi hæstv. iðnrh. um væntanlegan markað þessarar verksmiðju og sagði þá m. a.:
„Samkomulag hefur verið gert við Japani um þau 7500 tonn, sem þangað er ætlað að selja, og samningar eru á lokastigi við Þjóðverja um sölu á um 10 þús. tonnum af kísilmálmi á ári þangað. Áætlað er að þessi tvö lönd taki við um 70% af heildarframleiðslu tveggja ofna kísilmálmverksmiðju. Samningar þessir eru að sjálfsögðu gerðir með fyrirvara um stofnun fyrirtækisins og samþykkt væntanlegrar stjórnar þess.“ — Þetta voru orð hæstv. ráðh.
Í iðnn. var sérstaklega óskað eftir því að fá að sjá þá samninga sem hæstv. iðnrh. vitnaði til. Í ljós hefur komið að hér er ekki um sölusamninga að ræða í venjulegum skilningi þess orðs. Hér um að ræða svokallað „letter og intent“, en þar er um að ræða eins konar viljayfirlýsingu þess efnis, að japanska fyrirtækið sé reiðubúið að taka til sölu allt að 7500 tonnum af kísilmálmi í Japan og hið þýska fyrirtæki allt að 10 þús. tonnum af kísilmálmi í Þýskalandi, en fyrirvarar í þessu „letter of intent“ eru mun fleiri en fram komu í ræðu hæstv. iðnrh. þegar hann var að kynna þessa svokölluðu sölusamninga hér á hv. Alþingi. Af hálfu japanska fyrirtækisins og þess þýska eru gerðir fyrirvarar um magn, um verð, um öll sölukjör, þannig að með engu móti er hægt að halda því fram, að hér sé um sölusamninga að ræða. Með þessu hefur verkefnisstjórn gert ákveðna tillögu og stigið ákveðið skref um visst sölufyrirkomulag á afurðum þessarar verksmiðju. Sölufyrirkomulag það, sem verkefnisstjórn mælir með og hefur stigið fyrstu skref til að koma í framkvæmd, er að kísilmálmverksmiðjan selji afurðir sínar í gegnum eigin umboðsmenn í einstökum löndum.
Ýmsir sem mætt hafa hjá nefndinni til viðtals hafa mjög dregið í efa að þetta sé æskilegasta söluaðferðin. Má þar nefna Jón Sigurðsson, forstjóra Íslenska járnblendifélagsins, og fulltrúa Seðlabankans. Það er mat okkar að það sé nauðsynlegt að kanna þennan þátt betur og að Alþingi eigi að marka ákveðna stefnu í þessum mikilvæga þætti í rekstri verksmiðjunnar.
Ég vil aðeins víkja að tækniþekkingu varðandi stofnun og framleiðslu í þessari verksmiðju.
Ekki er í tillögu verkefnisstjórnar né í grg. með frv. tekin afstaða til þess, hvernig afla skuli þeirrar tækniþekkingar sem vitað er að nauðsynlegt er að afla til að fyrirtækið geti gengið. Fram kemur að vísu að tækniþekking varðandi uppsetningu véla og tækja muni fylgja með í kaupverði þeirra og að íslenskir aðilar ráði yfir nægilegri tækniþekkingu til að standa að byggingu verksmiðjunnar að öðru leyti. Hins vegar er ekki mörkuð ákveðin stefna um hvernig afla skuti tækniþekkingar um rekstur verksmiðjunnar. Í viðtölum við Jón Sigurðsson forstjóra járnblendiverksmiðjunnar kom fram að hér væri um mjög mikilvægt atriði að ræða. Hann benti sérstaklega á að Járnblendifélagið hefði haft veigamikinn stuðning af norska fyrirtækinu Elkem í gegnum tækniþekkingarsamninga sem gerðir voru við það fyrirtæki. Hins vegar kostuðu þeir samningar allmikið og því væri hér e. t. v. spurning um það í fyrsta lagi, hvaða áhættu menn vildu taka um að tækniþekkingin væri fullkomin, og í öðru lagi um það, hvaða verð menn vildu greiða fyrir það. Það virðist vera stefna verkefnisstjórnar, að tækniþekking vegna rekstrar sé keypt eftir hendinni frá ýmsum aðilum. Nauðsynlegt er að fjalla mun betur um þennan þátt málsins og marka ákveðna stefnu varðandi hann, og því er gert ráð fyrir að þetta sé eitt af þeim atriðum sem búið verði að kanna betur áður en Alþingi fær mál þetta aftur til meðferðar.
Ég vil að lokum aðeins fjalla um orkuöflunina. Iðnn. hefur fengið á fundi fulltrúa frá Landsvirkjun og Rafmagnsveitum ríkisins. Hafa þeir gefið munnlegar upplýsingar og látið nefndinni í té ýmis skrifleg gögn. Gerð hafa verið drög af rafmagnssamningi við Landsvirkjun, en Landsvirkjun hefur haft marga fyrirvara um þau samningsdrög. Þeir fyrirvarar varða bæði orkuafhendingu og rafmagnsverð. Í sérstöku bréfi Landsvirkjunar til iðnn. segir um þetta efni:
„Landsvirkjun lítur svo á, að verði reiknað með því, að fyrirtækið geti séð kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði, sem komin yrði í rekstur árið 1985, fyrir raforku með sæmilegu öryggi, þá þurfi eftirfarandi skilyrðum að vera fullnægt.
1. Samningar takist milli ríkisins og Landsvirkjunar um byggingu og rekstur nýrra virkjana samkv. lögum um orkuver og yfirtöku byggðalína.
2. Kvíslaveitur, stækkun Þórisvatnsmiðlunar og Búrfellsvirkjunar verði fullgerðar 1985–1986. Ný virkjun (Blönduvirkjun) verði byggð af Landsvirkjun og komin í rekstur 1987–1988. Háspennulína frá Þjórsársvæðinu til Akureyrar fullgerð 1986.
3. Fjárhagsstaða Landsvirkjunar verði tryggð á viðunandi hátt.
Í þeim samningsdrögum um raforkusölu frá Landsvirkjun, sem fyrirtækið hefur gert og fylgja þessu bréfi, kemur fram, að það verð, sem nefnt er (17.5 mills á kwst.), verður háð nánara samkomulagi. Það er hins vegar ekki unnt að gera, fyrr en ofangreind atriði skýrast, auk þess sem verðbótaákvæði skipta máli í þessu efni svo og hvort verðið verður í íslenskum krónum eða erlendri mynt.“
Þetta var tilvitnun í bréf Landsvirkjunar.
Ljóst er að enn hafa ekki verið teknar ákvarðanir um ýmsar þær framkvæmdir sem Landsvirkjun telur skilyrði fyrir því, að hægt sé að tryggja afhendingu orku til kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði. Má þar nefna ákvörðun um stækkun Búrfellsvirkjunar, en til þess þarf lög frá Alþingi og enn hefur slíkt lagafrv. ekki verið lagt fram. Þá hefur ekki verið tekin ákvörðun um háspennulínu frá Þjórsársvæðinu til Akureyrar. Nauðsynlegt er að þessi atriði séu fulltryggð áður en endanleg ákvörðun er tekin um byggingu kísilmálmverksmiðju, og því er það eitt af þeim atriðum sem við leggjum til í okkar brtt. að verði reynt að tryggja áður en lengra er haldið.
Herra forseti. Ég hef nú gert grein fyrir um tíu efnisatriðum sem miklu máli skipta varðandi undirbúning og meðferð þessa máls. Eins og fram hefur komið af tilvitnuðum umsögnum, sem nefndinni hafa borist frá ýmsum stofnunum, fer því fjarri að mál þetta sé nægilega vel undirbúið. Ég skal viðurkenna að vissir þættir þess eru ágætlega vel undirbúnir, og ég hef m. a. getið í því sambandi um stofnkostnaðaráætlun, en aðrir þættir hafa ekki verið eins vel undirbúnir og sumir virðast hafa verið vanræktir með öllu. Það er hins vegar eindregin skoðun mín, að kísilmálmframleiðsla, eins og gert er ráð fyrir í þessari verksmiðju, sé einn vænlegasti kostur til nýtingar inntendrar orku til útflutningsframleiðslu. Við þm. Sjálfstfl. í nefndinni höfum því viljað fjalla um þetta mál með eins jákvæðu hugarfari og mögulegt er. Við höfum því talið að það væri nauðsynlegt að þannig yrði á þessu máli haldið að undirbúningur stöðvaðist ekki, enda væri hægt að halda undirbúningi áfram af fullum krafti. Því miða þessar brtt., sem hér hafa verið lagðar fram, að því, að það félag, sem stofnað verði eftir að Alþingi hefur gefið þær heimildir sem í frv. greinir, hafi á sér einkenni undirbúningsfélags þar til Alþingi hefur endanlega fjallað um málið að nýju. Því er hlutafé takmarkað við það fjármagn sem talið er að nauðsynlegt sé að hafa til ráðstöfunar á þessu ári til frekari undirbúnings, en að ekki sé heimilt að hækka hlutaféð né hefja framkvæmdir við byggingu verksmiðjunnar fyrr en Alþingi hefur fjallað um mál þetta að nýju.
Við höfum verið jákvæð fyrir þeirri staðsetningu sem gert er ráð fyrir í þessu frv. Við teljum eðlilegt að slíkum stóriðjurekstri sé dreift um landið. Austfirðir eru mjög vænleg staðsetning, miðað við þá miklu orku sem þar er ónýtt og fyrirhugað er að virkja innan tíðar.
Herra forseti. Ég læt nú lokið máli mínu um þetta frv.