04.05.1982
Neðri deild: 83. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4641 í B-deild Alþingistíðinda. (4448)
279. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði
Páll Pétursson:
Herra forseti. Iðnn. Nd. hefur þurft að leggja mjög mikla vinnu í þetta mál nú á skömmum tíma og ég get ekki verið sammála frsm. nefndarinnar hv. 4. þm. Vesturl., Skúla Alexanderssyni, um að þetta hafi verið vel í hendur okkar búið. Mér finnst að þetta sé dæmi um hvernig ekki eigi að biðja Alþingi að vinna.
Þetta mál kom mjög seint fram. Þingflokkur Framsfl. hafði ekki nema örstuttan tíma — eða við tókum okkur ekki nema örstuttan tíma til að líta á þetta mál og kusum heldur vegna þess hve seint það kom til okkar, að koma því til nefndar. Við vildum ekki tefja tímann eða láta tímann hlaupa frá okkur og samþykktum að leggja það fram án þess að við hefðum unnið í því neitt að ráði. Það var reyndar örfáum atriðum breytt eftir okkar beiðni í því frv. sem okkur var sýnt. Það var svo hugmynd okkar að reyna að laga það í nefndarstarfi, og ég vil meina að það hafi tekist býsna vel.
Þetta frv. hefur, eins og menn sjá ef þeir bera saman upphaflegt frv. og brtt., ef brtt. verða samþykktar, algerlega umskapast og stendur orðið lítið eftir af því upphaflega frv. sem við fengum í hendur. Ég held að það hafi tekist að lagfæra, sníða af eða skjóta á frest þeim agnúum sem á því voru og gerðu ómögulegt að samþykkja það. Ég held að hér höfum við ratað á skynsamlega leið að samþykkja að ákveða það sem ákveða þarf á þessu stigi. Það verður stofnað þarna félag, því verður valin ábyrg stjórn, málið fært af kontórum í iðnrn. og sett undir forustu sem ég vona sannarlega að okkur takist að velja vel. Stjórn þessa félags fær nokkur fjárráð, 25 millj. kr. af hlutafé félagsins í stað 220 millj. kr. í frv. Síðan á þessi stjórn að vinna að bráðnauðsynlegum undirbúningsathugunum og gera raunhæfar áætlanir um hvernig menn gætu staðið að byggingu þessarar verksmiðju og rekstri hennar. Á grundvelli þessara áætlana getur Alþingi tekið endanlega afstöðu til þessarar verksmiðjubyggingar. Vonandi — ég segi vonandi — kemur í ljós að hér sé um gott og lífvænlegt fyrirtæki að ræða. Ef svo fer að menn komist að því við nákvæmari athugun að svo sé ekki, þá er hægt að stöðva það áður en það er orðið of seint. Ég vona sannarlega að menn beri þá gæfu til þess að sjá að sér, ef svo fer, og asnist ekki út í ógöngur, eins og einstöku sinnum hefur hent okkur Íslendinga. Austfirðingar eiga að mínum dómi betra skilið en það, að ríkið fari að setja niður hjá þeim vandræðafyrirtæki, mengandi „fallít“ -verksmiðju, sem ekki kæmi til með að hafa rekstrarmöguleika, bara af því að menn langar til að nota rafmagn.
Það er út af fyrir sig gott að finna leiðir til orkunýtingar og til þess að koma í verð, til þess að koma í gagnið okkar miklu vatnsorku. Það kostar peninga að afla rafmagnsins og það borgar sig ekki að framleiða rafmagn bara til þess að framleiða það, ef ekki er markaður fyrir það, ef þarf að selja það undir kostnaðarverði. Helst þurfum við að hafa svolítinn hagnað af því að framleiða rafmagnið. Það er nú þannig í dag, að stóriðja á Íslandi ber samkv. þeim upplýsingum, sem iðnn. Nd. hefur fengið undanfarna daga, ekkert rafmagnsverð. Jafnvel þótt þau stóriðjufyrirtæki, sem hér eru til, fengju rafmagnið gefins, mundu þau koma út með tapi.
Eitt atriði, eitt af mörgum atriðum sem hefur vafist fyrir okkur í iðnn., er tímasetning þeirrar verksmiðju sem í frv. var gert ráð fyrir að mundi fara í gang, fyrri ofn, 1985. Það er ekki endilega sannfærandi að þetta sé heppilegasta tímasetning. Það getur svo sem verið að hún sé rétt, en það getur skeð að hún sé röng. Það þarf miklar fjárfestingar í raforkukerfinu til að gera mögulegt að verksmiðjan fari í gang á þessum tíma. Að vísu ber Landsvirkjun og Rafmagnsveitunum ekki saman um hversu miklar eða hverjar fjárfestingar mætti telja í tengslum við þessa verksmiðju. Landsvirkjun telur að þurfi að leggja línu af Þjórsár/Tungnaársvæðinu og norður til Akureyrar áður en þessi verksmiðja fer í gang og jafnframt þurfi að koma virkjun við Búrfell II. Það er dýrt að flytja rafmagn um langan veg. Ég held að það hafi verið hárrétt ábending við 1. umr. málsins hjá hv. þm. Garðari Sigurðssyni, þar sem hann gerði að umtalsefni hvað það væri skothent að hugsa sér að fara að framleiða 5% af kísilmálmframleiðslu veraldarinnar í því kjördæmi landsins sem verst væri sett með virkjanir. Það liggur auðvitað fyrir að innan skamms verður virkjað mikið á Austurlandi, þar eru miklir orkuöflunarkostir. En það er spurning hvort ekki ætti að reyna að stemma orkunýtinguna saman við framleiðsluna því að það er dýrt að flytja rafmagnið um langan veg og töp við óhagstæð skilyrði geta orðið allt að 20% á rafmagnsflutningunum.
Ég ætla ekki að orðlengja þetta meira. Ég vona að næst þegar við sjáum frv. um nýiðnaðarkosti í iðnn. Nd. verði það með skaplegri hætti en nú hefur verið, við fáum frv. á skaplegum tíma þannig að eðlilegt tóm gefist til að athuga málið og í þeim búningi að hægt sé að taka undir það og þurfti ekki að umsemja. Ég vona, að okkur hafi tekist að finna farsælla stjórnarform á þetta félag en upphaflega var hugsað, og vona sannarlega að hæfir og gætnir menn veljist í forustu, ekki bara tæknimenn. Ég hef engar grunsemdir um annað en þetta frv. hafi verið í upphafi skynsamlega unnið frá tæknilegu hliðinni og ég hef ekki vit á því að tortryggja neitt í því sambandi. Það verkaði allt saman trúverðuglega á mig. Hins vegar fannst mér fjármálahliðin öll vera fremur í þoku. Ég vona að þeir hægu og gætnu menn, sem ég ætlast til að veljist í forustu þessa fyrirtækis, kanni málið með gætni og leggi síðan trúverðug gögn fram svo að Alþingi gefist kostur á að taka endanlega afstöðu til málsins. Með öðrum hætti verður ekki reist farsælt fyrirtæki á Reyðarfirði til framleiðslu á kísilmálmi.