04.05.1982
Neðri deild: 83. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4654 í B-deild Alþingistíðinda. (4453)
273. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Mér þótti sem í máli hv. síðasta ræðumanns væri ekki mikill sannfæringarkraftur að óska eftir ítarlegum svörum af minni hálfu varðandi þau efni sem hann vék að, þó að ég skilji vel bæði áhuga hans og áhyggjur í sambandi við atvinnuþróun í hans kjördæmi og reyndar í Norðlendingafjórðungi.
Ég skal í örstuttu máli reyna að leysa úr því helsta, sem hv. þm. vék að, og leyfi mér að gera það undir þessum dagskrárlið, þar sem hann tengdi spurningu varðandi hugsanlega stækkun járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga við uppbyggingu stóriðnaðar á Norðurlandi.
Hvað snýr að því máli sem hér er til umr., breytingu á lögum um járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga, þá er þar ekki um að ræða tillögur um stækkun eins og stendur, heldur að bjarga því fyrirtæki við með fjárhagsfyrirgreiðslu til þess að sú verksmiðja, sem þar stendur, geti haldið áfram sínum rekstri. Það eru eins og er ekki horfur á því, að skynsamlegt sé að ráðast í viðbót við þá verksmiðju. Ég segi: því miður eru rekstrarhorfur fyrirtækisins ekki þannig að það séu líkur á því, að það verði alveg á næstunni, en með þessum málum hefur verið fylgst og verður fylgst, hvernig úr rætist í sambandi við járnblendiverksmiðjuna.
En hvað Norðurland snertir, þá finnst mér það ekki réttmætt, sem fram kom hjá hv. 7. landsk. þm., að iðnrn. hafi gleymt Norðurlandi í sambandi við meiri háttar iðnað, nýiðnað og orkufrekan iðnað. Ég minni í því sambandi á tillögur af minni hálfu sem liggja fyrir hæstv. ríkisstj. og tengjast málum hér á Alþingi, um byggingu steinullarverksmiðju á Sauðárkróki, sem er tiltölulega myndarlegt fyrirtæki miðað við það, sem gerist hérlendis, og greinilega mjög eftirsótt, miðað við þær umr. sem hér fara fram í þinginu um staðsetningu þess, og síðan það fyrirtæki sem hv. þm. nefndi ítrekað í sínu máli, hugsanlega trjákvoðuverksmiðju á Húsavík. Sé það svo, að hv. þm. telji sig ekki hafa haft tök á að fylgjast með því máli upp á síðkastið sem skyldi — og það e. t. v. um lengri tíma, þá tel ég bæði rétt og skylt að reyna að bæta úr því, t. d. með því að greiða fyrir fundi hans með þeim mönnum sem að því máli vinna. Ég vil fullvissa hv. þm. um það, að unnið er af fullum krafti að athugun og undirbúningi þess máls. Hefur verið gert bindandi samkomulag við finnska aðila um hagkvæmniathugun á uppbyggingu slíks fyrirtækis hérlendis, og hefur verið litið á Húsavík fyrst og fremst í sambandi við staðsetningu á slíku fyrirtæki, sem eðlilegt er miðað við það frumkvæði sem heimamenn þar hafa haft um undirbúning málsins og eru þar hvataaðilar. Fyrir utan samstarf við finnska aðila um hagkvæmniathugun hafa markaðsmál varðandi aðföng verið í athugun og fyrirhuguð ferð þeirra, sem að málinu vinna, til Kanada ásamt finnskum aðilum til þess að fara nánar ofan í saumana á kaupum á hráefni fyrir það fyrirtæki. Margt mætti um það segja, sem ég tel ekki rétt að fara að tíunda úr þessum ræðustól, en þarna er um að ræða umtalsvert fjármagn, sem ráðstafað er af því, sem heimildir liggja fyrir um að verja til athugana í orkufrekum iðnaði, einmitt til þessa fyrirtækis, trjákvoðuverksmiðjunnar.
Vegna þess að hv. þm. vék sérstaklega að Eyjafjarðarsvæðinu og taldi þar vera mikla eyðu, þá vil ég fullvissa hann um að það er engan veginn minn hugur — né vil ég segja þeirra sem að ríkisstj. standa — að gleyma Eyjafjarðarsvæðinu í sambandi við atvinnuþróun. Ég trúi ekki öðru en hv. þm. hafi fengið um það vitneskju, að fyrir nokkru hafði iðnrn. um það forgöngu að heimamenn tækju þátt í athugun málsins, þ. e. athugun á möguleikum á iðnþróun í víðum skilningi á Eyjafjarðarsvæðinu, bæði þróunarmöguleikum þess iðnaðar sem fyrir er, almenns iðnaðar sem svo er kallaður, og möguleikum á nýjum iðngreinum allt upp í orkufrekan iðnað. Slík samstarfsnefnd um þetta mál er í fullum gangi, með aðild heimamanna fyrst og fremst, og ég á von á að fá innan skamms áfangaálit frá nefndinni ásamt áætlun um frekari störf á hennar vegum. Ég gæti nefnt aðila sem þarna standa að verki. Formaður í þessari samstarfsnefnd er Helgi Guðmundsson trésmiður á Akureyri, en með honum starfa ýmsir valinkunnir menn þar nyrðra, þ. a. m. forstjóri Slippstöðvarinnar sem ég hygg að hv. þm. eigi greiðan aðgang að eins og að öðrum mönnum sem eru að sinna atvinnumálum á Eyjafjarðarsvæðinu.
Það er mitt viðhorf í sambandi við staðsetningu og uppbyggingu meiri háttar iðnaðar þar eins og annars staðar, að það eigi ekki að vera að troða slíkum fyrirtækjum upp á heimamenn af hálfu utanaðkomandi aðila, af ríkisvaldinu eða öðrum, heldur þurfi menn að ná saman heima fyrir um áform í þessu efni og það þurfi að skapast um það sem bestur friður. Það mál, sem hér var til umr. fyrr í kvöld, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði, er ágætt dæmi um hvernig skapast hefur ágæt samstaða í héraði og reyndar í heilum landsfjórðungi um stórmál á þess landssvæðis vísu og skiptir miklu um það, að við þm. svæðisins höfum getað talað heils hugar og af fullum sannfæringarkrafti fyrir þessu máli. Ég sem iðnrh. hef að sjálfsögðu átt miklu auðveldara með að mæla með því og undirbúningi þess heldur en ef menn hefðu verið með margar skoðanir uppi um stefnu í því máli. Þess hefur gætt, því miður vil ég segja, varðandi Eyjafjarðarsvæðið eins og víðar, að þar eru skoðanir býsna skiptar um æskilega atvinnuþróun á svæðinu. En ég vænti þess, að sú samstarfsnefnd, sem er að störfum þar nú, hún og hennar störf verði til þess að menn átti sig betur bæði á möguleikum á þróun þess iðnaðar, sem fyrir er, og um hvað menn geta náð saman í sambandi við meiri háttar fjárfestingu og iðnfyrirtæki.
Hv. þm. spurðist fyrir um staðarvalsnefnd og hennar störf, — nefndar sem unnið hefur í hálft annað ár, að mig minnir, á vegum iðnrn. Hún hefur ekki horft fram hjá Norðurlandi eystra og ekki framhjá Eyjafjarðarsvæðinu. Hún hefur haft það mjög til athugunar með tilliti til staðsetningar á meiri háttar iðnaði, og ég má fullyrða að í þessum mánuði komi nokkuð gild skýrsla frá þessari nefnd, þingmönnum og öðrum til upplýsingar um stöðu mála og athuganir hennar, en gert er ráð fyrir að hún ljúki starfi í lok þessa árs eða byrjun hins næsta og hafi þá gert yfirlitsathugun á landinu í heild með tilliti til staðarkosta, félagslegra atriða og umhverfisþátta varðandi æskilega eða hugsanlega staðsetningu meiri háttar iðnaðar í landinu.
Þetta vildi ég að kæmi hér fram sem svör við ítrekuðum fyrirspurnum hv. þm. Ég óska að sjálfsögðu eftir góðu samstarfi við hann um þessi efni og að geta greitt úr óskum hans í sambandi við upplýsingar um mál er varða hans kjördæmi ekki síst. Það er bæði rétt og skylt. Og ég vænti að við getum tekið saman á því máli og ég geti leyst betur úr hans fyrirspurnum við hentugra tækifæri en nú er.