04.05.1982
Efri deild: 84. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4663 í B-deild Alþingistíðinda. (4472)
292. mál, kirkjuþing og kirkjuráð
Geir Gunnarsson:
Herra forseti. Vegna þeirra orða, sem hafa fallið um hækkun á útgjöldum til ráðuneyta, vil ég geta þess, að sú hækkun, sem nefnd var, 90% hygg ég, er ekki á þann veg að fjölgað hafi verið stöðum í þeim mæti eða aukin rekstrarútgjöld, heldur var fyrst og fremst um að ræða leiðréttingu á vanáætluðum útgjöldum miðað við þær stöður sem heimilaðar voru fyrir. Hér er hins vegar um það að ræða að taka beina ákvörðun um raunverulega útgjaldaaukningu. Það er verulegur munur á því.