04.05.1982
Efri deild: 84. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4664 í B-deild Alþingistíðinda. (4474)

292. mál, kirkjuþing og kirkjuráð

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Mér er ánægjuefni að verða við þeirri áskorun hv. síðasta ræðumanns að ávarpa þessa virðulegu þingdeild örfáum orðum nú undir miðnættið.

Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um það frv. sem hér er til umr. Það er skylda okkar að skoða vandlega mál sem koma frá kirkjuþingi og kirkjuráði og leggja okkar mat á þau frv. að sjálfsögðu. Ég get ekki séð betur en þessu frv. vegni vel hér í hv. þd. því að menntmn. hefur einróma lagt til að það verði samþykkt óbreytt, að vísu einn hv. þm. með fyrirvara, sem hann mun hafa gert grein fyrir nú þegar. En ég fellst alveg á þau ummæli síðasta hv. ræðumanns, að þegar nál. er svo eindregið mundi ég a. m. k. skoða mig bundinn af slíkri undirskrift. Ég vænti þess, að ég megi treysta hv. þdm. til að veita þessu máli gott brautargengi.