05.05.1982
Neðri deild: 84. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4667 í B-deild Alþingistíðinda. (4494)
279. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Eins og glögglega kom fram í nál. hv. þm. Magnúsar H. Magnússonar viljum við Alþfl.-menn mjög styðja að því, að haldið verði áfram án nokkurra tafa undirbúningi að starfrækslu kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði. Það kom hins vegar fram í umr. hér á Alþingi í gær hjá fulltrúum allra stjórnmálaflokka í iðnn. að einum undanteknum, að mikið vantaði enn á að fullnægjandi grein hefði verið gerð fyrir ýmsum þáttum í væntanlegri starfrækslu verksmiðjunnar til þess að unnt væri að taka endanlega ákvörðun um hvernig verksmiðjurekstrinum skyldi hagað. Sú afgreiðsla, sem hér fer fram, er því í rauninni aðeins um að halda áfram undirbúningnum, enda öll mikilvæg atriði í frv., þ. á m. um eignaraðild, með ýmsum hætti skilyrt í frv. og taka ekki gildi fyrr en Alþingi hefur fjallað um málið síðar. Brtt. okkar Alþfl.-manna um að efni afgreiðslunnar sýni ljóslega fram á hvers eðlis hún er hafa ekki verið samþykktar. Engu að síður er ljóst að frv. eins og það er úr garði gert fjallar um áframhaldandi undirbúning að kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði, en endanlegar ákvarðanir verða teknar síðar. Þrátt fyrir þennan galla á framsetningu málsins er efnisatriðið ljóst og ég vil eins og aðrir þm. Alþfl. styðja að áframhaldandi undirbúningi að þessum verksmiðjurekstri og segi því já.