05.05.1982
Neðri deild: 85. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4679 í B-deild Alþingistíðinda. (4506)

279. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég lýsti því yfir við 2. umr. málsins í gær, að ég mundi við 3. umr. málsins fara nánar út í þau sjónarmið sem ég lýsti þá. Ég bað um tilteknar upplýsingar hjá hæstv. iðnrh. sem hann lét að sumu leyti í té. Jafnframt lýsti ég því yfir, að ég mundi ræða málið nánar við 3. umr. Þetta var forseta deildarinnar ljóst, — ég man nú ekki hvor sat í stólnum þá, 1. varaforseti eða forseti. Þetta var hæstv. iðnrh. einnig ljóst, því að hann sat hér í salnum. Ef þm. boðar framhaldsumr. um mál þýðir það náttúrlega að hann ætlar að taka aftur til máls. Ef menn hefðu hlustað á það sem sagt var hefðu þeir haldið umr. áfram og þær stæðu þá enn, svo að það hefði engu breytt.