05.05.1982
Neðri deild: 85. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4680 í B-deild Alþingistíðinda. (4507)

279. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Mér þykir afar leitt að heyra að hér sé verið að brjóta samkomulag. En ég verð að segja eins og aðrir, sem á undan mér hafa talað, að ég kannast ekki við að það hafi verið gert. Það er ekki ætlun mín að ræða þetta mál á nokkurn hátt eða flytja um það langa ræðu, heldur að fá tækifæri til að segja örfá orð við 3. umr., ekki síst vegna þess að hér hafa þegar þrír hv. þm. tekið til máls og rætt nokkuð um einn þátt málsins sem er ákaflega gagnlegur.

Ég held að ég verði að byrja á að þakka hv. þm. Halldóri Blöndal fyrir að vekja athygli á einum þætti þessa máls, þ. e. þýðingu stóriðju fyrir heimafólk, og að vekja athygli á nauðsyn þess, að Norðlendingar hefjist nú þegar handa um að koma upp stóriðjuveri á Norðurlandi, hugsanlega í Eyjafirði, og þá mjög líklega álveri.

Hér er verið að ræða um kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði, sem hefur verið tengd að nokkru leyti svokallaðri Fljótsdalsvirkjun þótt slík verksmiðja taki aðeins mjög lítið brot af þeirri orku sem sú virkjun, ef byggð verður í fullri stærð, getur framleitt. Það er ljóst að á undanförnum árum var vöxtur þjóðartekna, þjóðarframleiðslu, undir fiskveiðum kominn, en nú gera menn sér það fyllilega ljóst að slíkur vöxtur getur ekki haldið áfram á sömu forsendum. Það er hins vegar, og það þarf að koma skýrt fram og kom ágætlega fram hjá hv. síðasta ræðumanni, Ragnhildi Helgadóttur, einmitt hægagangurinn á stóriðjuuppbyggingunni sem hefur verið okkur fjötur um fót. Hann á fyrst og fremst skýringu í því, að innan Alþb. — ég segi innan Alþb. því að þar eru ekki allir Alþb.-menn á sama máli — eru aðilar sem eru haldnir fordómum gagnvart samstarfi við útlendinga í stóriðjumálum. Slík sjónarmið gera það að verkum að krafist er eignaraðildar að meiri hluta af hálfu íslenska ríkisins, en eins og öllum hv. þm. er kunnugt er það fjármagn, sem íslenska ríkið hefur til ráðstöfunar, af mjög svo skornum skammti og í raun hefur verið leitað eftir lánum langt umfram það sem talið er að öll venjuleg ríki geti þolað. Á þetta vildi ég benda og taka undir hve erfitt er að binda svo mikið fé í jafnáhættusömum atvinnurekstri og stóriðja hlýtur að vera fyrir smáríki.

Í þessu sambandi kemst ég ekki heldur hjá því að minnast á það, sem kannske er það merkilegasta sem fram hefur komið og rætt er í dagblöðum í dag, að það er hugsanlegt að hæstv. iðnrh. ætli sér að gera tilboð í meiri hluta álverksmiðjunnar í Straumsvík, sem hæstv. iðnrh. taldi á sínum tíma að væri besti virkjunarkosturinn að loka, og sýnir best hvernig haldið er á málum í hæstv. ríkisstj.

Ég, herra forseti, er stuðningsmaður þessa frv., sem hér er til umr., og ætla mér ekki að tefja framgang málsins, en taldi mér skylt að koma hér upp og ræða um eignaraðildina vegna þess fyrst og fremst að felld var till. sjálfstæðismanna við 2. umr. málsins. Ég greiddi samt sem áður atkv. með frv. vegna þess — og það vil ég taka skýrt fram, eins og reyndar kom fram hjá hv. 6. þm. Reykv. — að ég tel að málið hafi breyst svo mikið í meðförum Alþingis, málið hafi tekið á sig það mót, að hér sé fyrst og fremst um undirbúningsfélag að ræða. Ég bendi á að stjórn þessa fyrirtækis er kosin af hv. Alþingi þannig að öll pólitísk sjónarmið ættu að koma fram. Þess vegna tel ég ekki á það reynt fullkomlega, hvort nauðsynlegt sé að ríkisvaldið þurfi að eiga meira en helming fyrirtækisins. Það er hins vegar alveg rétt, sem fram hefur komið, að það er óhyggilegt, þó aðeins væri af markaðsástæðum og vegna hugsanlegra samstarfsaðila, að lýsa því yfir í löggjöf og binda þannig hendur sínar að það verði ekki efnt til slíkrar stóriðju nema ríkið eigi meira en 50%. Auðvitað geta aðrir hugsanlegir samstarfsaðilar spilað á þessi höft, sem við höfum lagt á eignaraðildina af okkar hálfu, og þar með knúið fram hagstæðari samninga sér til handa. Þetta liggur í hlutarins eðli.

Að lokum, herra forseti, langar mig aðeins vegna orða Halldórs Blöndals að benda á að þrátt fyrir stórfellda erfiðleika í stóriðju víða um heim, eins og hægt er að lesa um í blöðum og fá upplýsingar um annars staðar, er ljóst að stóriðja hér á landi er sá atvinnurekstur sem einna mest hefur gefið í launum. Ég er hér með skrá yfir þau fyrirtæki sem greiddu hæstu meðallaun 1980. Þar er Íslenska járnblendifélagið í sjötta sæti og Íslenska álfélagið í áttunda sæti. Þar er verið að tala um meðallaun, ég undirstrika það. Þau fyrirtæki, sem eru ofar á blaði, eru tvö fiskiðjufyrirtæki og fyrirtæki sem unnu fyrst og fremst við uppbyggingu á orkuverum landsins, en auðvitað má reikna með að há laun í þeim fyrirtækjum hafi fyrst og fremst byggst á löngum vinnudegi. — Jafnframt vil ég minna á að í bók, sem kom út í síðasta mánuði frá Framkvæmdastofnun ríkisins, áætlanadeild, segir skýrt og greinilega að stóriðja, járnblendi og álframleiðsla, gefi langhæstu laun sem um getur hér á landi í heilum atvinnugreinum. Þetta vildi ég að kæmi fram því að þetta undirstrikar betur en nokkuð annað áhyggjur sem framsýnir þm. Norðurl. e. hafa verið að tala um hér í dag. Þetta tel ég nauðsynlegt, herra forseti, að komi fram í þessari umr.

Ég vil enn ítreka það sem ég sagði í upphafi, að það kann að hafa verið gert samkomulag. Mér þykir miður að ég skuli þá hafa leyft mér að biðja hér um orðið. Ég var þó fjórði ræðumaður við þessa umr. og hafði ekki heyrt um þetta getið fyrr, en vænti þess, að þessi stutta ræða mín hafi ekki orðið til þess að kollsigla kísilmálmverksmiðju sem nú er ákveðið að eigi að setja niður í kjördæmi hæstv. forseta.