05.05.1982
Neðri deild: 86. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4686 í B-deild Alþingistíðinda. (4519)

30. mál, lyfjadreifing

Frsm. minni hl. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þessi ræða var undarleg hjá hv. 8. landsk. þm. Ég var ekki að ræða nokkurn skapaðan hlut um þau mál sem nefndin hefur afgreitt í vetur. Það hefur allt verið afgreitt með eðlilegum hætti. Hv. þm. sagði að þm. gætu lesið frumvörp. Ég tók fram að ég hefði lesið þetta frv. En háttur þingsins er sá, hefur verið, á að vera og mun vafalaust verða, að leita umsagnar aðila um þingmál, sérstaklega þau sem eru faglegs eðlis, eins og margt er í þessu frv., og ég hafði ekkert tækifæri til að sjá þessar umsagnir. Málið er afgreitt úr nefnd í Ed. 27. apríl og 30. apríl er málið afgreitt frá Ed. Það er á föstudegi. Laugardagur og sunnudagur koma svo á eftir og þessi fundur er á réttum tíma á þriðjudegi. Hvað er eðlilegra en að mál fái þinglega meðferð? Það er þetta sem ég er að gagnrýna.

Ég er í tveimur öðrum nefndum í þinginu og ég verð að segja það eins og er að flokksbróðir hv. formanns heilbr.- og trn. er formaður í annarri nefndinni. Hann leggur sig fram um að öll mál fái þar þinglega meðferð. Þó að það sé þrýst á hann frá hendi framkvæmdavaldsins gefur hann nefndinni tíma til að vinna að málinu. Ég er líka í nefnd sem hefur verið að fá aðfinnslur frá framkvæmdavaldinu. Formaður þeirrar nefndar er úr öðrum stjórnarflokki, Framsfl. Það eru deilur á hann fyrir það og nefndina að afgreiða ekki öll mál sem til hennar koma. En hvað varðar þau mál, sem afgreidd eru, er reynt að sýna einstaka lipurð í að afla allra gagna, þó að ég viti að á hann sé mjög þrýst frá hendi ríkisstj. eða framkvæmdavalds.

Ég er að gagnrýna að hv. 8. landsk. þm. er of tilhliðrunarsamur við framkvæmdavaldið á kostnað þingsins. Ef hún ætlar að gefa kost á sér aftur að hausti, eins og hún segir, til formennsku í nefndinni, — guð má nú vita hver þá verður formaður eða hverjir verða í þessum nefndum, en við skulum vona að henni verði að ósk sinni, frúnni, hv. 8. landsk. þm., að fara í þessa ágætu nefnd, sem fjallar um jafnviðamikil og að mörgu leyti áhugaverð mál, og jafnvel að hún verði aftur formaður nefndarinnar, — þá á ég þá ósk henni til handa, að hún taki meira tillit til þingvenja og til þeirra hátta, sem eiga að vera ríkjandi hér í þinginu, en hún hefur gert í sambandi við afgreiðslu þessa máls.

Það má formaður nefndarinnar eiga, að það hefur verið afar góð samvinna í nefndinni um afgreiðslu annarra mála og kann ég henni bestu þakkir fyrir þá samvinnu. En þarna þakka ég ekki, heldur læt koma fram við þessa umr. að mér finnst að svona vinnubrögð eigi ekki heima á Alþingi.