05.05.1982
Neðri deild: 86. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4693 í B-deild Alþingistíðinda. (4529)

Umræður utan dagskrár

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Mér segja þingreyndir menn að það sé vaninn að stjórn og stjórnarandstaða geri samkomulag um afgreiðslu mála síðustu 3–4 daga þings hverju sinni. Ég veit ekki til þess, að slíkt samkomulag sé fyrir hendi nú eða hafi verið fyrir hendi áður en sú orrahríð hófst sem nú stendur yfir, heldur hafi gangur mála verið sá, að hæstv. forsrh. hafi lagt fram lista með fjölda mála, bæði frv. og þáltill., sem stjórnarliðar hafa óskað eftir að yrðu afgreidd á þessu þingi. Ég er ekki að skorast undan því að vinna hér á hinu háa Alþingi, en ég vil hins vegar benda hv. þdm. á að hér hafa framsögumenn nefnda komið í ræðustól hver á fætur öðrum og lýst yfir að það hafi ekki verið tími til að athuga þau mál sem farið hafa til nefnda og nefndir eiga að athuga samkv. öllum þinglegum hefðum og kalla til sérfróða menn, leita umsagnar og afgreiða málin eins og þingi ber að gera. Þetta segir okkur auðvitað þá sögu, að þingið er komið í slíka tímaþröng og tímanauð að það getur ekki á sómasamlegan hátt afgreitt þau mál sem það er í raun og veru að rembast við að afgreiða. Ég tel þess vegna að stjórnin á þinghaldinu af hendi hæstv. forsrh. hina síðustu daga hafi farið gersamlega úr böndunum. Það er í sjálfu sér mjög alvarlegt mál ef við erum hér að rembast við að afgreiða hóp mála, bæði frumvarpa og þáltill., sem þm. sjálfir lýsa yfir að ekki hafi unnist tími til þess fyrr að afgreiða á sómasamlegan hátt. Mitt álit er það, að mál hér á þingi séu nú komin í þá stöðu, að það sé vart sómasamlegt að halda þessu áfram með sama hraða og gert hefur verið.

Herra forseti. Án þess að ég sé að leggja á það nokkurn dóm hver þáttur forseta er í þessu máli, — ég geri ráð fyrir að hann sé eingöngu að sinna forsetaskyldu sinni, og hann gerir það ævinlega sómasamlega og vel, — finnst mér sú stjórn sem hæstv. forsrh. á að hafa á þinghaldinu, vera komin gersamlega úr böndunum og það sé ekki miklu lengur hægt að una við þau vinnubrögð sem nú tíðkast á hinu háa Alþingi. Ég vil þess vegna segja að það færi miklu betur á því, að stjórn og stjórnarandstaða kæmu sér saman um að þingið sæti nokkrum dögum lengur og sinnti þá skyldum sínum á sómasamlegan hátt, en hefði ekki þann hraða á, sem nú er, og eiga á hættu að hér geti orðið stórslys við afgreiðslu mála. Ég vil þess vegna taka undir það sem hv. þm. Geir Hallgrímsson sagði áðan, að sú aðferð, sem nú er viðhöfð, er vart bærileg.