05.05.1982
Neðri deild: 86. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4714 í B-deild Alþingistíðinda. (4545)
145. mál, málefni fatlaðra
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Ég vil taka fram að ég hafði ekki hugarflug til að láta mér til hugar koma að ætlunin væri að biðja um fund í kvöld í Sþ. Mér líst helst þann veg á málið að það mundi reynt að ná samkomulagi um það á skaplegum tíma á morgun. En mér líst þetta mál þann veg vaxið, — ég verð að segja það fyrir mig, þótt ég hafi þá reglu að leita til ráðh. um samþykki þeirra við leyfi að ræða utan dagskrár um hin ýmsu málefni, — að náist ekki samkomulag um það í hv. Sþ. að taka þetta mál til umr. utan dagskrár mun ég leyfa það í hv. deild.