05.05.1982
Efri deild: 86. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4740 í B-deild Alþingistíðinda. (4563)

Umræður utan dagskrár

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Þetta er naumast athugasemd, en mér þykir tilefni til þess að þakka hæstv. iðnrh. fyrir þá yfirlýsingu, að þetta verður gert, sem ég hef verið að fara fram á, á næstunni, ekki síðar en fyrir 1. ágúst, en ég vænti þess, að hæstv. ráðh. geri sitt til að það geti orðið nokkru fyrr.