10.11.1981
Sameinað þing: 17. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 603 í B-deild Alþingistíðinda. (457)
Umræður utan dagskrár
Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs vegna þeirra uggvænlegu frétta sem nýlega hafa borist frá Svíþjóð og Danmörku. Sömu daga og sovéskur kafbátur með kjarnorkuvopn finnst í landhelgi hins hlutlausa ríkis Svíþjóðar verður það uppvíst í Danmörku, að Sovétríkin veita fé til starfsemi danskra aðila er kveðast vinna að friði og afvopnun. Öll erum við Íslendingar friðelskandi fólk og viljum frelsi og öryggi okkar lands. Okkur hefur greint á um aðferðir.
Flest okkar aðhyllast þá stefnu íslenska ríkisins, sem er fólgin í þátttöku í varnarsamstarfi Atlantshafsbandalagsþjóðanna, en aðrir telja landi okkar best borgið með því að það sé óvarið. Ýmsir aðhyllast af þessum sökum og taka þátt í starfsemi hreyfinga sem fyrst og fremst kenna sig við frið, en virðast því miður oft og tíðum vinna að öðru markmiði en látið er í veðri vaka.
Í utanríkismálaályktun, sem einróma var samþykkt á nýafstöðnum landsfundi Sjálfstfl., segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Sjálfstfl. hefur ávallt haft það að markmiði, að Íslendingar fái að lifa á Íslandi án afskipta eða yfirgangs annarra. Með þetta að leiðarljósi hefur Ísland tekið afstöðu í átökum austurs og vesturs og skipað sér í flokk frjálsra þjóða. Þessari afstöðu fylgir ábyrgð. Sjálfstfl. skorast ekki undan þessari ábyrgð, heldur vill að undir henni sé staðið með því að sameina Íslendinga enn betur en hingað til andspænis þeirri hættu er leiðir af auknum hernaðarumsvifum á Atlantshafi.“
Síðar segir í ályktuninni, með leyfi hæstv. forseta: „Íslensk varnarstefna felst í því að Íslendingar geri sínar eigin tillögur um varnirnar, meti varnarþörfina og fyrirkomulag varnanna. Efla þarf almannavarnir og auka skilning á nauðsyn þeirra. Jafnframt þarf að huga að örygginu inn á við og gera nauðsynlegar ráðstafanir til að erlend ríki eða útsendarar þeirra, útlendir eða innlendir, grafi ekki undan öryggi ríkisins og sjálfstæði þjóðarinnar innan frá.“
Fréttirnar frá Danmörku og Svíþjóð vekja óneitanlega ugg um það, að eitthvað viðlíka kunni að geta gerst hér á landi. Þar með hefði fjöldi grandalauss fólks leiðst út í það að þjóna allt öðrum hagsmunum en það ætlaði. Því miður er fátt fremur til þess fallið að grafa undan friði og öryggi í Evrópu en krafan um einhliða afvopnun. Það má nærri geta hve mikils óvarið, vopnlaust svæði væri virt af því ríki sem siglir kafbáti búnum kjarnavopnum upp á land í hlutlausu ríki, sem þó hefur öflugar varnir eins og Svíþjóð. Augljóst virðist að það væri einskis virt.
Enn ljósari verður tilgangur Sovétríkjanna með friðar- og vopnleysistali sínu þegar haft er í huga að jafnskjótt og kjarnorkuvopnabáturinn var kominn heim til sín klingdi í Moskvufréttum krafan um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd. Var þeirri frétt samviskusamlega komið til skila í íslenska Ríkisútvarpinu strax í gær svo að við færum ekki í grafgötur um hinn einlæga friðarvilja á bak við kjarnorkubátsheimsóknina til Svíþjóðar. Með þessu hefur hinum friðsömu Norðurlandabúum verið freklega misboðið. Í slíkum yfirlýsingum Sovétríkjanna rétt eftir atburðinn í Karlskrona felst enn á ný sá tilgangur að hræða Evrópu til afvopnunar. Það er aðferð Sovétríkjanna til að halda eigin yfirburðum í vopnabúnaði, sem vissulega eru ótvíræðir hér í Evrópu að mati virtustu sérfræðinga á þessu sviði.
Augljóst er að öld sovéskrar heimsveldisstefnu er ekki liðin og óskastaða hennar er að sem flest Evrópulönd séu utan Atlantshafsbandalagsins og vanbúin að vopnum, enda halda helstu vinir Sovétríkjanna hér á landi uppi stanslausum hernaðaráróðri sem miðar að varnarleysi hér á landi sem annars staðar í Evrópu. Lars Verner, formaður vinstri sósíalista í Svíþjóð, sá hinn sami og Þjóðviljinn vitnar til í dag, segir í grein sem birtist í októberblaði Frétta frá Sovétríkjunum, er hann talar um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd, með leyfi hæstv. forseta:
„Slíkt svæði mundi stuðla að stöðugra ástandi á Norðurlöndunum, slökun spennu og auðvelda afvopnun. Það hefði í för með sér jákvæð áhrif fyrir Evrópu í heild og opnaði leið“ — ég undirstrika þessi seinustu orð, hæstv. forseti — ,og opnaði leið fyrir Danmörku, Ísland og Noreg til útgöngu úr NATO.“ — Það er megintilgangurinn.
Ritið, sem ég las úr, er raunar gefið út á vegum Sovétríkjanna og að því er ég tel í andstöðu við anda gildandi laga á Ístandi sem eiga að sporna við blaðaútgáfu erlendra ríkja hér. Í fréttum, sem fram komu um njósnamálið í friðarhreyfingunni í Danmörku, var gerð grein fyrir nokkrum samtökum sem ættu aðild að dönsku friðarnefndinni, en fram hefur komið að þau eru m. a., með leyfi hæstv. forseta: Fulltrúar hins demókratíska bandalags danskra kvenna, danskra ungkommúnista, samtaka prentara, heimsfriðarráðsins, vináttufélags Danmerkur og Sovétríkjanna og vináttufélags Danmerkur og Austur-Þýskalands. Það er rétt að draga það fram, að flest þessi samtök eiga systursamtök hér á landi og móðursamtök íslensku friðarnefndarinnar er alþjóðaheimsfriðarhreyfingarráðið sem hefur aðsetur í Moskvu.
Í íslensku friðarnefndinni eru um 100 aðilar og í stjórn þess eru tveir starfsmenn blaðsins Frétta frá Sovétríkjunum, málgangs Ráðstjórnarríkjanna á Íslandi, en þau eru Haukur Már Haraldsson, formaður friðarnefndarinnar, sem er umbrotsmaður þessa blaðs, blaðafulltrúi Alþýðusambands Íslands og áhrifamaður í Alþb., og svo ritstjóri sama blaðs, María Þorsteinsdóttir, sem einnig hefur lengi verið forustukona í Menningar- og friðarsamtökum kvenna og er einnig áhrifamaður í Alþb.
Það eru augljós tengsl með vissum hætti, ég veit ekki hversu miklum eða hversu atvarlegum, milli þessara íslensku friðarsamtaka og Sovétríkjanna. M. a. segir Ívar Jónsson, formaður vináttufélagsins MÍR, í enn einu tölublaði af Fréttum frá Sovétríkjunum, — þetta eintak frá því í sumar, — formaður MÍR segir með leyfi hæstv. forseta:
„Við í vináttufélaginu MÍR höfum átt mjög góð og víðtæk tengsl við Sovétríkin ásamt með íslensku friðarnefndinni og Menningar- og friðarsamtökum íslenskra kvenna. Við munum halda áfram að vinna að eflingu íslensk-sovéskra samskipta, og ég álít að starf okkar muni stuðla að því að varðveita friðinn í Norður-Evrópu.“
Þetta voru hans orð, herra forseti. Ég veit ekki hvort margir geta tekið undir þetta álit formannsins, en ég álít a. m. k. að þeim, sem það gera, fari nú mjög fækkandi.
Ég held að það sé alveg óhjákvæmilegt. Enn er það ljóst, að Alþb. hefur átt ýmis samskipti við bróður- eða systursamtök sín, ef ég má orða það svo — það er e. t. v. ekki leyfilegt að orða það svo — en við kommúnistaflokk Sovétríkjanna — eða á hvers vegum fór hæstv. félmrh. nýlega í heimsókn til Sovétríkjanna? Og hvernig stóð á því, að daginn eftir að málgagn Alþb. fór hörðum orðum um Sovétríkin vegna athæfis þeirra í Svíþjóð flutti forveri Svavars Gestssonar í formennsku í Alþb. aðalræðuna í byltingarfagnaði MÍR nú á sunnudaginn? (Gripið fram í: Fór ekki hv. 1. þm. Reykv. til Sovétríkjanna?) Ekki sá sem hér stendur sem 1. þm. Reykv. (StJ: Sá sem þá var forsrh.) Vel má það vera, en vafalaust hefur hv. 1. þm. Reykv. ekki farið í boði kommúnistasamtaka Sovétríkjanna sem slíkra.
Herra forseti. Fréttirnar frá Danmörku og frá Svíþjóð raunar líka hljóta að vekja okkur til umhugsunar um hvað friðarhreyfingar svokallaðar og aðrir áþekkir aðilar séu að sýsla hér á landi. Þetta atriði skiptir máli fyrir öryggi landsins, og það er eðlileg ósk almenns borgara á Íslandi, að fram komi hugmyndir hæstv. utanrrh. — og þá gjarnan ríkisstj. — um hversu snúast beri við því sem athuga þyrfti e. t. v. í þessu sambandi. Þess ber líka að minnast, að Ísland er í Norður-Atlantshafsbandataginu. Við höfum tekið þá ákvörðun að leitast við að treysta öryggi okkar með þeirri aðild og við njótum vegna hennar varna í landinu og tökum á okkur skyldur á móti. Það er eðlilegt hlutverk utanrrn. að fylgjast með því, hvað önnur ríki gera sem miðar að því að veikja stöðu okkar að þessu leyti.
Ég vil vegna þeirra tilefna og sjónarmiða, sem ég hef rakið hér í þessum fáu orðum mínum, spyrja hæstv. utanrrh., hvort hann telji að fréttirnar frá Danmörku og Svíþjóð veiti tilefni til að kanna nú hvernig viðleitni Sovétmanna til að grafa undan Atlantshafsbandalaginu innan frá kemur fram gagnvart Íslandi eða hvort það hafi þegar verið kannað með fullnægjandi hætti. Jafnframt væri eðlilegt að beina þeirri spurningu — kannske ekki sérstaklega til hæstv. utanrrh., enda hafði ég ekki um annað rætt við hann en þessa sérstöku spurningu, en e. t. v. mætti láta sér detta í hug að ríkisstj. hefði vissa þörf fyrir að endurskoða afstöðu sína til þess trausts sem Alþb. virðist njóta innan ríkisstj.