06.05.1982
Neðri deild: 87. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4797 í B-deild Alþingistíðinda. (4585)
215. mál, skattskylda innlánsstofnana
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Þetta frv. hefur verið um nokkra hríð fyrir fjh: og viðskn. þessarar deildar, og þar hefur verið farið eftir óskum nm. um að kalla á fund nefndarinnar og fá þau gögn, sem nm. vildu fá fram, og hef ég ekkert við þau vinnubrögð að athuga. Það var gefinn nokkuð sæmilegur tími til þess að kynna sér bæði efni þessa máls og viðbrögð þeirra sem frv. skiptir fyrst og fremst máli, þó að vitaskuld skipti það hinn almenna viðskiptamann banka og sparisjóða mestu þar sem hér verður fyrst og fremst lagt á þeirra herðar að standa undir þessum sköttum.
Ég held að það sé ómaksins vert að geta lítillega stefnu núv. hæstv. ríkisstj. Hún er öll horfin núna. En í málefnasamningi, sem þeir félagar komu sér saman um 8. febrúar 1980, segir að verðbótaþáttur vaxta hækki ekki 1. mars það ár og fari síðan lækkandi með hjöðnun verðbólgu, í stað hárra vaxta verði unnið að útbreiðslu verðtryggingar og lengingu lána. Í kjölfar þessa kom stefnuræða forsrh. haustið 1980 og þar segir: „Um útlán viðskiptabanka þarf meginstefnan að vera sú, að þeir láni ekki út meira en sitt eigið ráðstöfunarfé, en grípi ekki til yfirdráttar í Seðlabanka, sem þýðir að jafnaði aukna seðlaprentun og vaxandi verðbólgu, nema alveg sérstakar aðstæður krefji og þá um stutta stund.“
Í ræðu forsrh., sem hann flutti á gamlársdag 1980, segir hann um vexti: „Vaxtakerfið verði endurskoðað í heild með einföldun fyrir augum og dregið verði úr þörf fyrir vaxtamismun með hækkun á þjónustugjöldum banka og sparisjóða.“ Þetta er táknrænt fyrir núv. ríkisstj., að það sem ráðh. segja í öðru orðinu taka þeir aftur með hinu. Jú, það átti að lækka vextina en hækka aftur þjónustugjöld banka og sparisjóða. Ég held að það skipti ekki höfuðmáli fyrir þá, sem lán taka, hvað vextirnir eru, heldur hitt, hvað þeir verða að borga fyrir vexti og þá þjónustu sem lánastofnanir veita. Vextirnir, sem hver og einn verður að greiða, eru í raun og veru það sem lánastofnunin tekur af honum.
Í stefnuræðunni, sem flutt var 22. okt. 1981, segir forsrh.: „Tekist hefur að verðtryggja flestar tegundir inn- og útlána á þessu ári“ — þrátt fyrir það að vextir hafi tvívegis verið lækkaðir á árinu. Þá voru lækkaðir víxilvextir um 1%, en þjónustugjöldin hækkuð sem því nam og betur þó, en á sama tíma var að verulegu leyti tekið fyrir víxilútlán svo að það hefði verið enn auðveldara fyrir ríkisstj. að lækka víxilvexti enn meira því að þeir höfðu engin áhrif eða sáralítil áhrif á kostnað við lántökur almennings. Og menn voru í stefnuræðunni 1981 afskaplega ánægðir með árangurinn af stefnu ríkisstj., því að forsrh. segir enn fremur í þessari stefnuræðu: „Almenningur getur nú lagt fé sitt fyrir án ótta við rýrnun þess af völdum verðbólgu.“ Og enn bætir hann við: „Þetta hefur dregið úr þeim verðbólguhugsunarhætti sem verið hefur landlægur hér um árabil.“ Nú er alveg hætt að hugsa um verðbólgu á Íslandi eftir þessu. Ekki er nú liðið nema rúmlega hálft ár.
27. jan. á þessu ári er sagt í kaflanum, sem ríkisstj. sendi frá sér, skýrslu um aðgerðir í efnahagsmálum: „Aðhald í peningamálum verði aukið með ýmsum ráðstöfunum og látið ná til allra þátta sem áhrif hafa á þróun útlána og peningamagns. M. a. verði sveigjanlegri bindiskyldu beitt í þessu skyni. Lagt verði að innlánsstofnunum að gæta ítrasta aðhalds í útlánum þannig að þau verði í samræmi við efnahagsstefnuna. Unnið verður að því að draga úr fjármagnskostnaði, m. a. með lækkun vaxta í samræmi við hjöðnun verðbólgu.“ Þetta er síðasta plaggið sem kemur frá ríkisstj. um vaxtamálin, um aðgerðir ríkisstj. í því að lækka vexti í þjóðfélaginu. Allir vita hver árangurinn hefur orðið.
Í þessu sama plaggi er sagt um áramót: „Lagður verði skattur á banka og sparisjóði.“ Á fund fjh.- og viðskn. komu þeir menn sem unnu að samningu þessa frv., og ég spurði þá að því, hvenær þeim hefði verið fengið þetta verkefni í hendur. Þeir sögðu að þeim hefði verið fengið þetta verkefni í hendur 27. jan. Nú hefur ríkisstj. lagt á það mikla áherslu, hvað hún ætli að marka áhrifaríka stefnu til langframa á öllum sviðum. Ákvörðun, sem hún tekur um áramótin 1981–1982 um að leggja slíkan skatt sem þennan, er ekki komið lengra en það, að verkefnin eru færð til þessara manna, sem eiga að vinna þau, 27. jan. Ríkisstj. hefur lagt fram ýmis stefnuatriði til öflunar fjár fyrir ríkisstofnanir, eins og um svokallaðan orkuskatt, sem skýrt var frá við framlagningu lánsfjáráætlunar og frv. til lánsfjárlaga. Það frv. hefur aldrei komið fram, aldrei verið nein samvinna eða samkomulag um það á milli Alþb. og Framsfl. Ég get tekið undir það sem síðasti ræðumaður sagði, að það er grátlegt til þess að vita, að aldrei eru nefndir þrír menn sem sæti eiga í ríkisstj. Það er aldrei talað nema um þessa tvo stríðandi flokka innan ríkisstj., Framsfl. og Alþb. Loksins ná þessir flokkar saman um að leggja þennan skapnað hér fram, frv. til l. um skattskyldu innlánsstofnana.
Nm. stjórnarandstöðu í fjh.- og viðskn. vildu fá ýmsar fleiri upplýsingar en þær, sem starfsmenn í ráðuneytum og við framkvæmd skattamála gátu gefið, og sömuleiðis umfram þær upplýsingar, sem fram komu frá samtökum banka og sparisjóða, og þess var farið á leit, að tveir ráðherrar kæmu á fund nefndarinnar, hæstv. viðskrh. og hæstv. fjmrh. sem leggur þetta frv. fram. Aðspurður sagði hæstv. viðskrh. að þessari skattlagningu yrði mætt með tvennum hætti: Annars vegar með því að hækka útlánsvexti eða lækka innlánsvexti nema hvort tveggja sé, sem yrði aðallega til þess að mæta þessum skatti sem þýðir nýjan skatt á atvinnulífið, nýjan skatt á almenning, á þá sem þurfa að taka lán og hafa tekið lán. Síðan bætti hann við til þess að fegra nokkuð málstað ríkisstj.: Þessum nýju útgjöldum verður líka mætt með miklu aðhaldi og sparnaði í bankakerfinu. — Ég hef verið einn af þeim mönnum sem hefðu gjarnan viljað spara og veita meira aðhald í kerfinu, ekki eingöngu bankakerfinu, heldur einnig í ríkisstofnunum. Þetta er að verða útslitið orð, þetta aðhald og sparnaður, því að það fylgir þessu ekkert. Báknið þenst út, það blæs út með hverjum degi sem líður. Það er alltaf verið að fjölga starfsmönnum ríkis og ríkisstofnana og er ekkert lát á því.
Nú hefur hæstv. viðskrh. gegnt sínu embætti frá því að núv. stjórn var mynduð og hæstv. núv. félmrh. þar áður, og ég hef ekki orðið var við að það hafi verið ríkjandi neitt aðhald í sambandi við rekstur banka. Það eru svo gífurlegar bankabyggingar í landinu og útþensla í þeim efnum að undrum sætir og þá ekki síst hér á höfuðborgarsvæðinu. Ég held að það sjáist ákaflega vel í þeim fskj., sem fylgja frv. Samkv. lögum um sérstakan skatt á skrifstofu- og verslunarhúsnæði greiða viðskiptabankarnir á árinu 1980 í skatt af skrifstofu- og verslunarhúsnæði, sem byggt er, hvorki meira né minna en 1 millj. 792. þús. kr. og sparisjóðirnir 301 þús. kr. Ætli þessi upphæð sé ekki með sama áframhaldi örugglega tvöfölduð núna? Þetta er nú allt aðhaldið sem veitt er. Það er sjáanlegt á öllu að hér er verið að flytja frv. um einn nýjan skattinn enn sem kemur ekki á bankana. Það er látið líta svo út að bankarnir eigi að borga hann. Hann kemur á viðskiptamenn bankanna eins og viðskrh. viðurkenndi á fundi nefndarinnar. Það er enn ný skattlagning á atvinnulífið í landinu og á allan almenning. Það er enn verið að rýra kjörin til þess að seðja gírugheit fjmrh. og ríkisstj. sem reynir ekki á neinn hátt að halda í horfinu eða sýna aðhald, nema taka það sér í munn öðru hvoru.
Það er eftirtektarvert, að þegar ríkisstj. vill fá afgreidd mál og leggur áherslu á það, og það gerir ríkisstj. á hverjum tíma, þá var það venja áður að ráðherrar, sem voru að ýta við afgreiðslu mála, hlýddu á umr. og hlýddu á aths. Nú höfum við 10 ráðherra, einn er erlendis, og það situr ekki einn einasti þeirra inni í þingsalnum. Þeir mega ekki vera að þessu. Farfuglarnir eru komnir flestir. Sumir farfuglarnir eru um það bil að koma. En nú liggur á að ljúka þinginu því að það eru aðrir farfuglar sem eru að fara, og það eru farfuglarnir sem eiga að sitja hér í ráðherrastólunum, en sitja ekki. Þeir eru að fara núna hver á fætur öðrum frá landinu, enda full ástæða til að fara. Það er allt að stöðvast og það er allt hér á hverfanda hveli. En hvort þeir kaupa eða láta borga undir sig nema aðra leiðina, sem væri mjög hyggilegt af þeim að gera, það veit ég ekki. (Gripið fram í: Heldur þú að þeir fái landvistarleyfi erlendis?) Á þm. við að við værum neydd til að taka við þeim aftur vegna ríkisfangs?
Ef við lítum á það atriði sem menn tala um, að það séu engir skattar lagðir á banka eða innlánsstofnanir í landinu og þess vegna. sé alveg sjálfsagt að leggja nú nýjan skatt á, þá er það rétt, að tekju- og eignarskattar hafa ekki verið lagðir á, enda segir það í lögum um bæði Landsbanka, Útvegsbanka, Búnaðarbanka og aðra banka, einkabankana líka, að svo skuli ekki gera. En heildarskattar, sem lagðir eru á viðskiptabankana á árinu 1980, eru upp á 14 millj. 606 þús. og á sparisjóðina 1 millj. 686 þús. M. ö. o. eru skattar til sveitarfélaga og ríkisins lagðir á viðskiptabankana og sparisjóðina upp á 16 millj. 292 þús. sem skiptist þannig, að það er landsútsvar tæpar 2.5 millj., fasteignaskattar til sveitarfélaga nema sömu upphæð og eins og ég sagði áðan sérstakur skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði sem nemur tæplega 2.1 millj. og launaskattur sem nemur rúmlega 5.8 millj. kr. Lífeyristryggingar, slysatryggingar og atvinnuleysistryggingar og vinnueftirlitsgjald, sem lagt er á allan atvinnurekstur í landinu, nema tæplega 3.5 millj. Hér er því um töluverða skattlagningu að ræða, enda eðlilegir skattar og réttlætanlegir, bæði landsútsvarið, fasteignaskattur til sveitarfélaga, launaskatturinn, meðan hann er lagður á, og sömuleiðis tryggingaskattarnir. Hins vegar má segja að sérstakur skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði sé ranglátur, og því var lofað hátíðlega, einkum af framsóknarmönnum, að þetta yrði ekki gert nema í 1–2 ár, en síðan ætti að hverfa frá því. En það hefur verið svikið eins og fleira í þeim herbúðum.
Ég held að menn deili ekki um það, að eigið fé viðskiptabanka þurfi að vera altmikið og fara helst vaxandi sem hlutfall af heildarskuldbindingum. Ef þessi vöxtur hefur verið mjög mikill á undanförnum árum væri e. t. v. hægt að segja að það mætti leggja þennan skatt á bankana sjálfa. En við skulum aðeins líta á þá töflu sem fylgir nál. minni hl. n. og er úr skýrslu sem nefndinni barst frá viðskiptabönkunum. Þar sést að frá 1976 lækkar eigið fé banka eins og Landsbankans, sem er langstærsti viðskiptabankinn, úr 5.9% 1976 í 5.3% 1981. Þetta er þróunin þegar tekið er tillit til hlutfallsins af heildarskuldbindingum bankanna. Það er aukning aftur í Útvegsbankanum. Hins vegar hef ég ekki samanburð fyrir sama tímabil og kemur fram í þeim tölum sem ég nefndi um Landsbankann, en þar hefur aukningin farið úr 3.2% í 9.7%. Í Búnaðarbanka hefur einnig orðið nokkur aukning frá árinu 1978, en engin nú síðasta árið, eða í 8.3%. Í Iðnaðarbankanum hefur orðið lækkun frá 1976 úr 8.9% í 8.4%. Í Verslunarbankanum hefur orðið aukning úr 4.4% í 9%. En þegar við lítum á viðskiptabankana, á meðaltalið, þá höfum við það ekki nema frá 1978, 5.5% í 6.8%, en eftir tekjuskatt fer það niður í 5.2%. Þetta segir sína sögu og er ekki björgulegt í sambandi við þá þróun sem þarf að vera varðandi stöðu bankanna og eigið fé þeirra sem hlutfall af heildarskuldbindingum.
Ríkisstj. segir: Við þurfum að auka bindiskylduna, við þurfum að auka aðhald bankanna til útlána, taka meira af ráðstöfunarfé þeirra. — Því minna geta þeir lagt af mörkum til þess að sinna atvinnulífinu og hinum almenna borgara í þjóðfélaginu. Og nú er svo komið að það er ríkjandi lánsfjárkreppa í landinu og atvinnulífið stendur með þeim hætti, að það hefur orðið að grípa til sérstakra aðgerða sem þó hafa engan veginn gengið nógu langt eins og allir vita.
Stefna ríkisstj. fyrsta árið var sú, að gengið þyrfti að aðlagast útflutningskjörum og útflutningi landsmanna, og þá gekk atvinnulífið nokkuð sómasamlega miðað við það, að enginn megi hafa neitt umfram það sem minnst þarf. En svo kom ógæfan með ákvörðun á gamlársdag 1980 þegar var ákveðið að festa gengið og láta sem engan varðaði um það, hvernig atvinnulífinu reiddi af. Verðbólgan var mæld niður og opinberar skýrslur sýna að það var minnkandi hraði verðbólgu á öllu því sem var innan marka vísitölu. Allt annað óð áfram. Framleiðslukostnaður jókst um 50–60% í flestum greinum. Við fluttum inn eins og óðir værum allt sem erlent var til landsins, seldum það á undirverði, jukum þann veg eyðsluna með því að flytja á undirverði erlendar vörur til landsins, en á sama tíma hnignaði samkeppnisiðnaði þannig að margar iðngreinar voru við það að gefast upp. Sum fyrirtæki gáfust gersamlega upp í þessari óheillastefnu sem stjórnin tók upp í árslok 1980. Í sjávarútvegi voru erfiðleikarnir líka miklir nema í tilteknum greinum vegna mjög hagstæðra markaðsáhrifa. Það, sem bjargaði að vissu leyti miklu, var að dollarinn styrktist mjög á þessu tímabili, en um 70% af útflutningi okkar seljum við í dollurum. En ef ég man rétt eru ekki nema um 30% af innflutningi í dollurum.
Við héldum veislu á árinu 1981 eða réttara sagt bauð ríkisstj. til þeirrar veislu. Hún borgaði ekkert í veislunni, enda hefur hún ekkert að borga, en veislan stóð allt árið. Sá, sem borgaði veisluna, var atvinnureksturinn í landinu. Eftir stóð atvinnurekstur í óskaplegum vanda og þegar veislunni lauk á gamlársdag s. l. sáu a. m. k. einhverjir í ríkisstj., — ég skal ekki segja hvort Jón Prímus hefur séð það, — en einhverjir hafa séð að nú væri ekki hægt að halda áfram stefnu gamla Prímusar, gengið þyrfti að aðlagast þeim tilkostnaði sem væri við framleiðsluna, við útflutninginn, og það þyrfti líka að láta verðlag á innfluttum vörum vera á sannvirði, en drepa ekki innlendan iðnað. Og þetta hefur nú gerst síðan gengisaðlögun var tekin aftur upp.
En gengislækkanir eru auðvitað ekki til þess að bjarga neinu. Þær eru aðeins staðfesting á því sem er að gerast í þjóðfélaginu. En það er líka nauðsynlegt að staðfesta þegar verðbólgan er jafnhrikaleg og hún er í þessu landi. Eftir að núv. ríkisstj. hefur setið í rúm tvö ár er ástandið þannig að það er stórversnandi hagur allra fyrirtækja í landinu. Einstöku markaðir eru ótryggir, og við það getur vesalings stjórnin ekki ráðið, enda verður ekki að henni vegið í þeim efnum. Hún hélt því í upphafi síns valdatíma að auka mætti þjóðarframleiðslu, en þjóðarframleiðslan hefur dregist verulega saman, og það er eingöngu fyrir áhrif þeirra stjórna, sem voru á undan vinstri stjórninni 1978, sem þessi þjóð hefur lifað við þau lífskjör sem hún hefur haft fram til þessa. Það var þó einkum verk þeirrar stjórnar sem sat 1974–1978, því að aðgerðirnar, sem hún beitti sér fyrir með útfærslu í 200 mílur, aðgerðirnar, sem hún beitti sér fyrir til að losna við útlendinga úr íslenskri fiskveiðilögsögu, eru það sem við höfum lifað á síðan. Lengi vel fiskuðu útlendingar um 50% af heildarbolfiskafla okkar. Þessu höfum við náð og við höfum aukið bolfiskveiðarnar verulega. Bara aukningin á bolfiskveiðunum hefur gert það að verkum, að verðmætið er ívið meira en allt það verðmæti sem loðnan gaf okkur þegar mest var. Loðnan var mikil búbót. Nú hefur sú veiði hrunið og mjög mikið áhorfsmál hvort eigi að leyfa nokkra slíka veiði á þessu ári.
Enn stafar að okkur ný hætta þrátt fyrir 200 mílna fiskveiðilandhelgi. Við heyrðum í gærkvöld fregnir af því, að stór rússneskur verksmiðjufloti væri að veiða karfa utan 200 mílna á mjög djúpu vatni, miklu dýpra vatni en við Íslendingar veiðum á. Það eru þrír stofnar af karfa hér við landið, tveir stofnar sem við höfum veitt, annar er djúpsjávarkarfi, sem við köllum, sem fer út á dýpi til að gjóta, en þriðja stofninn, sem er aðallega á þessu mikla dýpi, höfum við ekki nýtt til þessa. Ef þessi mikla veiði er sá djúpsjávarstofn sem við höfum verið að veiða, þá er okkur stórfelld hætta búin. Mér hefði þótt fróðlegt, því að þetta mál, sem við erum að ræða, skiptir miklu, þetta eru almenn efnahagsmál, að heyra hver eru viðbrögð ríkisstj. við þessu máli. Samstarfsnefnd var skipuð á árinu 1978 á milli Sovétríkjanna og Íslands um fiskverndun og samstarf þessara þjóða um fiskveiðar. Það væri fróðlegt að vita það, ef ráðherrar mættu vera að því að hlusta og svara, hvort íslenska ríkisstj. ætli ekki að bregðast við og fara þess á leit við Sovétríkin að þessi nefnd haldi fund um þetta alvarlega ástand. (Forseti: Ég verð að biðja hv. ræðumann að fresta ræðu sinni. Klukkan er hálffimm og komið að fundartíma Sþ.) — [Frh.]