06.05.1982
Sameinað þing: 89. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4805 í B-deild Alþingistíðinda. (4598)

127. mál, hagnýting orkulinda

Birgir Ísl. Gunnarsson:

Herra forseti. Alþingi hefur á þessu og síðasta þingi fjallað um nokkur mál sem kveða á um virkjanir og hagnýtingu orkulinda landsins til stóriðju. Í öllum þessum málum hefur komið í ljós að undirbúningi af hálfu hæstv. ríkisstj. hefur verið mjög ábótavant. Heildarstefnu hefur vantað í þessum mikilvægu málum, vinnubrögð hafa verið ómarkviss og eðlilegt samstarf við stjórnarandstöðu hefur ekki verið haft á undirbúningsstigi. Öll þessi mál hafa því tekið miklum breytingum á Alþingi og stundum hefur tilviljun nánast ráðið hver endanleg úrslit hafa orðið.

Þessi þáltill. markar ákveðna stefnu til frambúðar um hagnýtingu orkulinda landsins til stóriðju og hvernig undirbúningi skuli hagað. Við afgreiðslu á þessari till. reynir enn á það, hvort hæstv. ríkisstj. vill móta stórhuga stefnu í þessum málum og hvort hún vill taka upp eðlilegt samstarf við stjórnarandstöðu um undirbúning mála á þessu sviði.

Rétt er að taka fram, að þáltill. þessi er í samræmi við þá stefnu, sem landsfundur Sjálfstfl. samþykkti s. l. haust. Það kemur því á óvart, ef hæstv. ráðherrar úr Sjálfstfl. greiða atkv. gegn henni. Ég segi nei.