10.11.1981
Sameinað þing: 17. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 608 í B-deild Alþingistíðinda. (461)

Umræður utan dagskrár

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Það er að vísu alveg rétt, að að sjálfsögðu gengur hið háa Alþingi fyrir. En ekki vissu menn fyrir viku, þegar rætt var um nauðsyn þess að koma á stjórnarfundi í Framkvæmdastofnuninni vegna stórháskalegra mála sem þarf að ráða fram úr, að það stæði þann veg á hinu háa Alþingi að svo mikilvæg umr. færi þar fram. (Gripið fram í: Utan dagskrár.) I störfum sínum hefur stjórn Framkvæmdastofnunar orðið að víkja fyrir hinu háa Alþingi í allt haust. Það voru fastir stjórnarfundir á þriðjudögum frá kl. 9–12 í Framkvæmdastofnuninni, en af því að fjvn. og störf hennar voru talin enn þá mikilvægari var vikið út frá þeim fundartíma og þessi óvenjulegi fundartími valinn og beðið um athugun á því, hvort þannig mundi á standa í störfum hins háa Alþingis, t. a. m. ef þar væri eitthvert fyrirspurnarusl á dagskrá, að hægt væri að hliðra til störfum þannig að stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins næði vopnum sínum, sem er nú hin brýnasta nauðsyn að hún nái.