06.05.1982
Sameinað þing: 89. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4807 í B-deild Alþingistíðinda. (4613)

Umræður utan dagskrár

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Í tilefni af blaðafregnum í gær þess efnis, að Hjörleifur Guttormsson iðnrh. hefði lagt fram við Alusuisse samningstilboð um að Íslendingar kaupi álverið í Straumsvík, óskaði ég eftir því, að fram færu við fyrstu hentugleika umr. utan dagskrár í Sþ. þar sem tækifæri gæfist til þess að fjalla um þessi mál og beina fsp. annars vegar til iðnrh. og hins vegar til forsrh. af þessu tilefni.

Forsrh. taldi ekki tök á því að tefja Nd. í störfum hennar, en féllst á að umr. færu fram í Ed. í gærkvöld. Seint um kvöldið kom síðan fram krafa frá sjálfstæðismönnum um sams konar umr. í Nd. ellegar þá að umr. færu fram í Sþ. Það varð að ráði, að þær færu hér fram í dag, og ég fagna því, að upphafleg ósk mín um, að þessar umr. gætu farið fram í Sþ., náði fram á endanum.

Eins og ég gat um birtist í Dagblaðinu og Vísi í gær frétt þar sem segir að Hjörleifur Guttormsson hafi lagt fram við Alusuisse samningstilboð um að Íslendingar kaupi álverið í Straumsvík. Síðan segir: „Hjörleifur sagði að í slíkum kaupum gæti orðið um að ræða allt frá meirihlutaeign Íslendinga að verinu upp í algera eign.“

Í útvarpsviðtali í gærkvöld má segja að hæstv. iðnrh. hafi tekið þessa fregn að nokkru leyti til baka, því að hann sagði: „Það hefur að sjálfsögðu ekki verið lagt fram tilboð af okkar hálfu gagnvart Alusuisse.“ Í Morgunblaðinu í dag getur iðnrh. þess aðspurður, að hugmyndir um kaup Íslendinga á meiri hl. ÍSALs yrðu ekki til umræðu að þessu sinni í viðræðum við forsvarsmenn Alusuisse. Engu að síður þykir mér rétt að Alþingi fái svör iðnrh. um stöðu þessa máls, þessa hugsanlega samningstilboðs, og reyndar ýmislegs annars sem fram hefur komið í viðtölum við ráðh. að undanförnu. Alþingi á vitaskuld kröfu á að vita hvað sé að gerast, og það er eðlilegt að umr. geti farið fram um þetta hér á Alþingi.

Það er ljóst að hér er um stórmál að ræða. Við verðum vitaskuld að halda vel á málum okkar og halda vel á hagsmunum okkar gagnvart erlendum aðilum af því tagi sem hér um ræðir, halda fast á kröfum okkar. Við vitum að fyrirtæki af þessu tagi beita auðvitað öllum ráðum, sem þeim eru tiltæk, til þess að verja hagsmuni sína og sækja sem mest til sín. Mér finnst hins vegar rétt í tilefni af því sem hér um ræðir, að hæstv. iðnrh. svari því í fyrsta lagi afdráttarlaust hér í heyranda hljóði á Alþingi, hvort hann hafi gert Alusuisse samningstilboð um kaup eða hvort hann hafi í hyggju að gera það. Enn fremur tel ég rétt að beina þeirri spurningu til hæstv. forsrh., hvort iðnrh. njóti atbeina og stuðnings ríkisstj. til þess að gera slíkt tilboð, hvort sem það hefur verið gert eða ekki, hvort ríkisstjórnarsamþykkt liggi að baki. Vænti ég þess, að hæstv. forsrh. geti svarað því. Það er vitaskuld spurt m. a. vegna þess, að til aðgerða af þessu tagi þarf væntanlega atbeina og samþykki Alþingis.

Að hinu leytinu skýrði hæstv. iðnrh. frá því í útvarpsviðtali í gærkvöld, að hann væri í viðræðum við þriðja aðila um að þeir auðveldi okkur, eins og hann orðar það, að eignast þennan meiri hl. í íslenska álverinu og það með þeim hætti að áhættan verði í lágmarki, við fáum langtímasamninga um aðföng og um sölu afurða og fáum út úr slíkum rekstri það raforkuverð sem við þurfum. Þetta sagði hæstv. iðnrh. í gærkvöld. Alþingi á vitaskuld kröfu á að fá að vita hvaða áform eru uppi í þessum efnum, hvaða viðræður hafi átt sér stað og í umboði hvers hæstv. iðnrh. standi í þessum viðræðum. Liggur t. d. ríkisstjórnarsamþykkt þar að baki. Vænti ég að hæstv. forsrh. geti svarað því.

Á hinn bóginn, ef þessar athuganir eru í gangi sem hæstv. iðnrh. hefur skýrt frá, þá er rétt að hann og forsrh. skýri Alþingi frá því, í hvaða farvegi þær eru, hvers konar fyrirkomulagi er verið að gera ráð fyrir, hvaða aðila er um að ræða og hvernig aðila. Það má líka spyrja í þessu sambandi: Hafa verið gerð samningsdrög eða hafa verið gefnar út einhvers konar viljayfirlýsingar af hálfu iðnrh.?

Og þá er spurningin, hvort það hafi verið gert í nafni ríkisstj. Annars er það athyglisvert í þessu viðtali við hæstv. iðnrh., að hann talar um það ítrekað, að hér sé um að ræða aðila sem hjálpi okkur til að eignast ÍSAL. Ég vil því spyrja: Er ætlunin að þessi leynigestur, sem hefur ekki verið upplýst hver sé, láni okkur peninga til þessara verka?

Ég tek líka eftir því í því útvarpsviðtali sem hér um ræðir, að hæstv. iðnrh. talar um langtímasamninga um aðföng og afurðir. En það er ekki rætt um verð á hráefni né heldur verð á söluafurðum, heldur verður að skilja þetta svo, ef lítið er á textann, að einungis sé um það að ræða að útvega hráefni og losa okkur við afurðir. Rétt væri að hæstv. iðnrh. skýrði Alþingi frá því, hvort verð væri þar ekki með í samningum eða hvort hér væri um einhvers konar vöruskipti að ræða. En í þessu viðtali talar hæstv. iðnrh, um það, að út úr slíkum samningum fáum við það raforkuverð sem við þurfum, þessir aðilar séu tilbúnir að tryggja okkur það. En þá hlýtur að vakna sú spurning: Hvað kemur þessum aðila það við, hvaða raforkuverð við höfum, ef við eigum fyrirtækið allt eða a. m. k. að meiri hluta? Getum við þá ekki ráðið því? Ég ber þessa spurningu fram vegna þess að annars hlýtur að vakna önnur spurning sem er sú: Nægir þá ekki einu sinni íslensk meirihlutaeign í fyrirtækinu til þess að við höfum forræði, svo að notað sé algengt orð, forræði yfir raforkuverðinu. Ég tel eðlilegt að hæstv. iðnrh. svari þessari spurningu.

Ef við hins vegar lítum aðeins nánar á þessa hugmynd um að kaupa álverið, þá hlýtur maður að spyrja sjálfan sig: Hvernig er það, ef við kaupum fyrirtækið og eigum það, að því er raforkuverðið varðar? Skiptir það miklu máli? Rennur ekki raforkuverðið þá til okkar sjálfra? Ég spyr vegna þess að sú hugmynd er mjög uppi, að við leggjum það á okkur að kaupa þetta álver, og þeim rökum er haldið fram, að raforkuverð geti þá verið eitt eða annað.

Iðnrh. segir líka í þessu viðtali að það muni styrkja stöðu okkar geysilega þegar við getum sýnt fram á það með sterkum líkum, að við getum farið inn í slíkan rekstur og eignast meiri hl. í fyrirtækinu. Þá er hann að tala um stöðu okkar gagnvart Alusuisse. Nú er það margyfirlýst, að Alusuisse er reiðubúið til að selja hlut sinn í fyrirtækinu, og ráðh. segir reyndar í þessu sama viðtali, að Alusuisse virðist fyrir sitt leyti hafa áhuga á því, ekki bara að það sé tilbúið til þess, heldur virðist Alusuisse hafa áhuga á því að fá þarna inn aðila í viðbót. Maður hlýtur að óska skýringa ráðh. á því, með hvaða hætti það styrkir stöðu okkar að gera tilboð um að kaupa fyrirtækið, þegar það hefur þegar lýst yfir að það sé reiðubúið til þess að selja hlut og hafi jafnvel áhuga á að inn komi aðili til viðbótar.

Fyrir rúmu ári eða einu og hálfu ári upplýsti ráðh. um það sem nefnt hefur verið hækkun í hafi. Ég held að ég muni það rétt, að þær tölur, sem þá hafi verið nefndar, hafi verið um 40 millj. dollara, kannske voru þær hærri. Það varð ekki annað skilið á orðum ráðh. en hér væri um verulegt svikamál að ræða. Í viðtölum núna við ráðh. heyrist hins vegar lítið um það mál. En á þessu máli og athugunum á því voru væntanlega reistar skattakröfur sem ráðh. hefur lítið fjallað um að undanförnu. En í seinni tíð hefur hann réttilega lagt áherslu á kröfu okkar um hærra raforkuverð. Nú er hins vegar sett í forgrunn að kaupa fyrirtækið, hvort sem þetta tilboð hefur verið gert eða ekki. Er þá hugmynd ráðh. að láta þessar kröfur, sem uppi hafa verið hafðar, vænti ég, niður falla?

Nú er það vitaskuld svo að það er búið að þæfa um skattamál í eitt og hálft ár í rauninni á grundvelli þessara krafna, en á meðan hefur ekkert gerst varðandi raforkuverð. Það er mjög dýrt spaug vegna þess að raforkuverðið, sem ÍSAL greiðir, er greinilega allt of lágt og mikið hagsmunamál að fá það leiðrétt. Það er þess vegna meira en tímabært að leiða þessi deilumál til lykta þannig að við gætum fengið og hefðum gjarnan átt að vera búin að fá fyrir löngu hærra raforkuverð en við höfum haft. En það, sem á hefur skort, er að ráðh. gerði upp hug sinn um það, hvernig það ætti að gerast. Hann hefur velt vöngum yfir því og við höfum fengið allt of lágt raforkuverð allan þennan tíma. Ég segi að þær kröfur, sem við getum sannanlega gert, eigum við að gera afdráttarlaust og standa við þær hvar sem er og hvenær sem er. En ég spyr aftur: Ætlar ráðh. að leggja niður kröfur sínar eða hvernig ætlar hann að leiða þessi kröfumál til lykta? Sannleikurinn er nefnilega sá, að spurningin um kaup eða ekki kaup frá fyrirtækinu leysir ráðherra ekki undan því að svara þeirri spurningu, hvernig hann ætli að leiða þau kröfumál til lykta sem þegar hafa verið reist.

Ég vænti þess, að hæstv. iðnrh. geti svarað þeim fsp., sem ég hef hér beint til hans, og hæstv. forsrh. geti gert grein fyrir viðhorfum ríkisstj. til þessa máls, ekki síst með tilliti til þess, að þegar þessi mál bar nokkuð á góma fyrir skömmu að því er varðaði eignarhald á fyrirtækinu, þá komu fram yfirlýsingar frá öðrum ráðh. í ríkisstj. en ráðh. Alþb. þar sem ítrekað var bent á að tillaga um eignarhald, eins og Alþb. hafði þá ályktað um, hefði ekki verið samþykkt í ríkisstj. Þess vegna ber nauðsyn til þess, að Alþingi fái m. a. að vita um afstöðu og samþykktir ríkisstj. í því efni.