06.05.1982
Sameinað þing: 89. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4814 í B-deild Alþingistíðinda. (4616)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Þar sem þeir eru tveir, sem óskað hafa eftir þessum umr. utan dagskrár, er lítið svo á að það séu tveir fyrirspyrjendur, hv. þm. Kjartan Jóhannsson og hv. þm. Geir Hallgrímsson, og taldi ég sjálfsagt að bíða eftir því að heyra hvað þeir hefðu báðir að spyrja um. En fyrst hv. 1. þm. Reykv. óskar ekki eftir að tala nú, þá skal ég að sjálfsögðu svara.
Varðandi þetta mál verður það ekki of oft undirstrikað, að í augum ríkisstj. eru meginatriði málsins að fá og það sem allra fyrst verulega hækkun á raforkuverði. Í upphafi var raforkuverð samkv. samningum við ÍSAL fastbundið, eins og kunnugt er, til langs tíma. Við endurskoðun samninganna, sem fór fram 1975, tókst að fá mjög verulega breytingu þar á eftir langar og strangar samningaviðræður þannig að raforkuverðið hækkaði þá mjög verulega og hefur Landsvirkjun fengið af þeirri hækkun geysimiklar tekjur til viðbótar við það sem var eftir fyrri ákvæðum. Nú hefur enn orðið slík breyting á orkuverði í heiminum, að það er ekki aðeins brýn nauðsyn, það er einnig fullkomið sanngirnismál, hvernig sem á það er lítið, að endurskoða þessi ákvæði samninganna og gera kröfu um verulega hækkun á raforkuverði. Þetta ætla ég að sé ekkert ágreiningsmál. Um það hljóta allir Íslendingar að vera fyllilega sammála að gera þessa kröfu og knýja sem fastast þar á.
Í öðru lagi telur ríkisstj. rétt að viðræður verði teknar upp um að Ísland eignist hluti í ÍSAL. Við erum þeirrar skoðunar, að reynslan hafi sýnt að til þess að fylgjast með þessum rekstri eins og við óskum eftir og þurfum á að halda sé nauðsynlegt að Íslendingar eignist hlut í fyrirtækjum sem þeir eiga ekki nú eins og kunnugt er.
Varðandi framtíðarmarkmiðið höfum við einnig talið rétt að stefna að verulegri eignaraðild og meirihlutaeign Íslendinga í þessu fyrirtæki. Með hverjum hætti þetta getur gerst, að Ísland eignist hluti og síðar meiri hluta í þessu fyrirtæki, er að sjálfsögðu mikið vandamál, ekki aðeins um mat á eignum fyrirtækisins, heldur einnig um fjármagn í því sambandi og fjölmargt annað sem til greina kemur. Það er atriði, sem ég skal ekki fara frekar út í hér, hvort Íslendingar eigi að eiga meiri hluta í öllum stóriðjufyrirtækjum. Ég get lýst þeirri skoðun, að ég hef verið og er þeirrar skoðunar, að það sé varhugavert að mörg fyrirtæki rísi hér upp, stór atvinnufyrirtæki, þar sem útlendingar eiga þau að fullu og öllu eða meiri hluta.
Varðandi þetta fyrirtæki þótti rétt, þegar það var stofnað að hafa þennan háttinn á og taka af Íslendinga hálfu ekki þá fjárhagslegu áhættu sem leiddi af eignarhlutdeild. En ég held að reynslan sýni að það sé rétt stefna að taka upp viðræður um að Íslendingar eignist þar hluti í.
Varðandi þetta mál að öðru leyti hefur hæstv. iðnrh. skýrt frá þeim viðræðum, sem átt hafa sér stað. Á fyrsta fundi ríkisstj., sem haldinn verður eftir þessar viðræður, þeim lauk nú í dag, mun hann skýra rækilega frá þessum viðræðum og ríkisstj. ræða þær. Á þessu stigi tel ég ekki ástæðu til að ræða þetta mál frekar.