06.05.1982
Sameinað þing: 89. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4834 í B-deild Alþingistíðinda. (4625)

Umræður utan dagskrár

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Varðandi fyrirspurn hv. 1. þm. Reykv. er það að segja, að tvær þeirra voru sameiginlega til hæstv. sjútvrh. og mín og hæstv. sjútvrh. svaraði þeim ítarlega áðan. Ég tek alveg undir hans orð í því efni. Það var varðandi það umræðuplagg sem hæstv. iðnrh. lagði fram í dag. Ég tek undir það sem hæstv. sjútvrh. sagði þegar hann gerði grein fyrir því máli.

Hin fyrirspurn til mín frá hv. 1. þm. Reykv. var þess eðlis, að ég taldi ekki beint ástæðu til að svara henni. En fyrst óskað er eftir því skal ég gera það. Hv. þm. spurði hvort það stæði óbreytt sem ég hefði sagt í sjónvarpi í marsmánuði. Auðvitað er óþarfi að taka það fram, en ég get gert það að sjálfsögðu aftur, að ríkisstj. hefur ekki borið fram ásakanir um sviksamlegt athæfi í þessu sambandi. Í sjónvarpssamtali í marsmánuði við mig tók ég skýrt fram að engar ásakanir væru uppi um sviksamlegt athæfi. Þetta er sjálfsagt að endurtaka hér. Þessar yfirlýsingar mínar standa auðvitað óbreyttar og er í engu þar frá hvikað.