06.05.1982
Sameinað þing: 89. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4838 í B-deild Alþingistíðinda. (4629)
Umræður utan dagskrár
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Það var samið um það á sínum tíma, að þessar umr. stæðu rétt fram yfir kl. 7, en nú hafa sérstaklega talsmenn stjórnarandstöðunnar og þá einkum og sér í lagi hv. 1. þm. Reykv. orðið til þess að lengja mjög þessar umr. Ég ætla ekki að gera það. Ég get þó ekki farið úr þessum sal í dag án þess að láta það koma fram, að þær tvær ræður, sem hv. þm. Geir Hallgrímsson flutti hér í dag, eru fyrst og fremst merkilegar fyrir þá sök, hve saman fer í einu og öllu málflutningur Alusuisse og málflutningur hv. þm. Geirs Hallgrímssonar. Þær athugasemdir, sem hann flutti hér í dag, eru nákvæmlega sömu athugasemdir sem fulltrúar Alusuisse hafa flutt. Þær kröfur, sem hann flutti hér í dag varðandi túlkun á samningi varðandi stækkun álversins, og annað, sem hann tíndi til í kröfugerð, eru um nákvæmlega sömu atriði og Alusuisse hefur gert kröfur um. Það er þess vegna ljóst, að þegar forstjórar Alusuisse fá afrit af þeim umr. sem hér hafa verið í dag, þá munu þeir sjá að þeir hafa eignast á Alþingi Íslendinga traustan og ötulan talsmann sem í einu og öllu flytur hér upp í ræðustólinn þau sjónarmið og þær röksemdir sem þeir hafa flutt í viðræðum við íslenska aðila á undanförnum mánuðum og misserum. Hvaða ályktun er líklegt að stjórnendur Alusuisse dragi af þeirri frásögn? Hún hlýtur að vera sú, að Alusuisse hljóti á næstu mánuðum og misserum að halda áfram ósveigjanlegri stefnu sinni gagnvart réttindum Íslendinga í þeirri von, að innan ekki langs tíma muni sá maður, sem hér á Alþingi hefur flutt þeirra rök og flutt þeirra sjónarmið, verða einn góðan veðurdag hinum megin við borðið sem fulltrúi Íslendinga. Rökrétt niðurstaða forstjóra Alusuisse af þessum umr. í dag hlýtur að vera sú, að þar sem forustumaður stjórnarandstöðunnar á Alþingi Íslendinga og foringi Sjálfstfl. hefur gert allar þeirra röksemdir að sínum, meira að segja einnig aths. Alusuisse við skýrslu Coopers & Lybrandt, eins og hann gerði hér áðan, þá hljóta þessar tvær ræður að verða til þess að herða Alusuisse enn frekar í því að segja áfram nei við kröfum Íslendinga um leiðréttingu, segja nei í þeirri von, að einn góðan veðurdag muni fulltrúi Alusuisse á Alþingi Íslendinga verða við ríkisstjórnarborðið, sá sem þeir geti samið við. Erlent auðfélag, sem heyrir í þingsölum á Íslandi slíkar undirtektir við sín sjónarmið og rök, hlýtur að bíða í þeirri von, að þær raddir verði ráðandi raddir.
Ég vona satt að segja að þau orðaskipti, sem hér hafa farið fram í dag, verði ekki niðurstaðan af þeirri afstöðu sem Alþingi Íslendinga tekur á næstu mánuðum varðandi aðgerðir ef Alusuisse heldur áfram að segja nei. Íslenska þjóðin hefur ekki efni á því, að þessu erlenda auðfélagi verði gert kleift að fá skálkaskjól til að segja áfram nei. Við getum deilt um það, hvernig á málunum hefur verið haldið. Við getum deilt um hinn upprunalega álsamning og margt annað í ferli þessa máls. En það er höfuðnauðsyn að fulltrúar allra þingflokka á Íslandi komi sér saman um það, hverjar eigi að vera kröfur Íslendinga gagnvart þessu fyrirtæki, og í öðru lagi, á hvern hátt hefur reynt nú þegar á svör fyrirtækisins gagnvart þeim kröfum. Því miður er það þannig, eins og hæstv. iðnrh. hefur greint frá í dag, að ekki hafa fengist svör af hálfu Alusuisse, jafnvel þótt sá skilningur væri lagður í samninginn sem sumir hafa viljað gera í umr. í dag. Það er staðreynd sem er að vísu erfið. En ég segi við fulltrúa stjórnarandstöðunnar: Það er alveg nauðsynlegt að stjórnarandstaðan horfist í augu við þessa erfiðu staðreynd eins og þeir sem að ríkisstj. standa, því að smáþjóð, sem á í höggi við voldugan erlendan auðhring, hefur ekki efni á að sundra sér. Ef hún sundrast þýðir það einfaldlega að auðhringurinn verður sá sterki, auðhringurinn verður sá sem segir nei, og þeir sem tapa verður íslenska þjóðin öll.