07.05.1982
Efri deild: 91. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4847 í B-deild Alþingistíðinda. (4638)

279. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði

Frsm. minni hl. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Það leikur ekki vafi á því, að aukning orkufreks iðnaðar er besta tækifæri sem Íslendingar hafa til þess að auka atvinnu og treysta lífskjör. En reynslan sýnir að orkufrekur iðnaður er vandasöm atvinnugrein og efnahagslegt umrót síðustu ára hefur skapað meiri sveiflur á verði á ýmsum afurðum orkufreks iðnaðar og reyndar á málmum yfirleitt, en þó t. d. sérstaklega á járnblendi og kísilmálmi, heldur en áður þekktist. Þessar aðstæður gera það ljóst, að atvinnurekstri af þessu tagi fylgir veruleg áhætta og í rauninni meiri áhætta en menn gerðu ráð fyrir fyrir fáeinum árum. Við þessar aðstæður er ljóst að vandaður undirbúningur og traust fjárhagsstaða atvinnurekstrar af því tagi, sem hér er til umfjöllunar, er höfuðnauðsyn. Eins og fram hefur komið í margvíslegum umsögnum fer fjarri að þessum skilyrðum hafi verið fullnægt að því er varðar þá verksmiðju sem hér er til umræðu.

Iðnn. þessarar ágætu og hv. deildar hefur nánast ekki gefist neinn tími til að fjalla um fyrirliggjandi frv. Það hefur verið svo mikið offors á afgreiðslu þess að þrír fundir voru haldnir á einum degi, þeim eina degi sem í rauninni var til ráðstöfunar til þessarar umfjöllunar. Þetta eru vitanlega forkastanleg vinnubrögð með öllu, og nm. hljóta að hafa fyrirvara á ábyrgð sinni á frv. og afgreiðslu þess þegar mál eru þannig í pott búin. Meiri hl. n. hefur hins vegar valið þann kost að afgreiða lagafrv. í þeirri mynd sem það kemur frá Nd. Án þess að fara lengra en að líta á það frv., þá er þó ljóst að á frv., eins og það kemur frá Nd., er alvarleg missmíð sem jafnvel þeir, sem eru samþykkir efni þess og stefnu, hljóta að viðurkenna og kom glögglega fram á fundum nefndarinnar. Þessi missmíð kom til umr. í nefndinni, og ég held að mér sé óhætt að fullyrða að það hafi verið fullur vilji nm. til að lagfæra þennan ágalla, en ytri öfl hindruðu þá í þessum áformum þegar á daginn leið. Hér er um að ræða þá málsgrein sem kveður á um að Alþingi skuli samþykkja skýrslu eða niðurstöðu skýrslu sem fyrir næsta Alþingi verði lögð svo að heimild fáist til frekari skuldbindinga af hálfu ríkissjóðs. Það er nefnilega svo, að samkvæmt þingsköpum Alþingis eru skýrslur ekki lagðar fram til samþykkir eða synjunar. Það er meira að segja tekið fram í þingsköpum sérstaklega, í bæði 30. og 31. gr., að við umræðu um skýrslu má engar ályktanir gera. Svo hljóða þau ákvæði varðandi skýrslur bæði í 30. og 31. gr.: „Við umræðu um skýrslu má engar ályktanir gera.“ Hér er þannig gert ráð fyrir því í frv., eins og það liggur fyrir, að ganga þvert á ákvæði þingskapa. Að sjálfsögðu hefði átt að tiltaka í samræmi við þingsköp að Alþingi annað hvort ályktaði um frekari framgang málsins í formi þáltill. ellegar staðfesti vilja sinn með lagafrv.

Það er nú einu sinni svo að Alþingi lætur í ljós vilja sinn annars vegar með þáttill., en hins vegar með lagafrv. Þess vegna hefði í rauninni verið sjálfsagt og eðlilegt að orða þessa grein í samræmi við það, ekki síst þegar tillit er til þess tekið, að þingsköpin eru nokkuð afdráttarlaus um það, hvernig með skýrslur skuli fara. En frá hugmyndum að bæta úr í þessum efnum var sem sagt fallið í nefndinni af einhverjum orsökum sem mér eru ekki kunnar.

Þegar þetta mál var til umfjöllunar í nefndinni bar ég fram fáeinar spurningar sem ég óskaði eftir að leitað væri svara við. Þessum spurningum og svörunum við þeim var ætlað að varpa nokkru skýrara ljósi á það mál sem hér er til afgreiðslu. Á grundvelli svaranna ættu menn að eiga auðveldara með að átta sig á málinu og marka stefnuna, en að svörunum ófengnum vaða menn í myrkrinu að verulegu leyti. Það felst þannig ekki beinlínis stefnumörkun í þessum spurningum, eins og þær eru lagðar fram, en þeim er ætlað að sýna betur en gert hefur verið til þessa, og þá einkanlega svörunum við þeim, hvernig afkomuhorfur og aðstæður eru, þannig að þm. gætu þá betur áttað sig á aðstæðum. Spurningarnar eru þessar:

Í fyrsta lagi: Hver hefur verið jafnaðarafkoma í greininni yfir langt tímabil, 10–20 ár, og í hliðstæðum greinum, t. d. járnblendi? Slík afkoma yrði sett fram sem prósenta af sölutekjum og/eða fjárfestingu.

Eins og ég gat um í ræðu minni við 1. umr. um þetta mál tel ég að þeir útreikningar séu nokkuð vafasamir sem gera ráð fyrir að hagnaður fari í mjög háar prósentutölur miðað við sölu þegar verið er að áætla langt fram í tímann. Þess vegna tel ég að það sé nauðsynlegt að menn reyni að afla sér gagna um það, hvernig afkoman hafi verið yfir langt tímabil og þá með tilliti til þess, að þegar eftirspurn vex rísa upp ný fyrirtæki í greininni, þegar hagnaður eykst rísa upp ný fyrirtæki í greininni og samkeppni eykst. Hið háa söluverð getur orðið fyrir áhrifum af þeim sökum. Það að líta á þróunina yfir lengra tímabil með þessum hætti ætti að varpa nokkru ljósi á hvernig þetta vinnur.

Önnur spurningin var þessi: Óskað var eftir samanburði á stofnkostnaði í heild, þ. e. raforkukerfi, verksmiðju o. s. frv., við að reisa verksmiðju Járnblendifélagsins á Grundartanga. Í þessari spurningu felst ekki neitun við því, að verksmiðjan verði reist á Reyðarfirði, heldur er óskað eftir að menn geri sér grein fyrir hvað það kosti að velja þann kost frekar en þann sem fljótt á lítið a. m. k. virðist vera ódýrastur í fjárfestingu. Mér finnst nauðsynlegt, þegar verið er að ráðstafa takmörkuðum fjármunum þjóðarinnar, að menn geri sér grein fyrir því, hverjir kostirnir séu og hver kostnaður sé hverjum og einum samfara. Nú kynnu þeir, sem sitja hér almennir þm., að ætla að þessum spurningum hafi verið svarað í nefndarstarfi, en svo er alls ekki. Það hefur stundum verið minnst á að það væri 10% dýrara að reisa þessa verksmiðju á Reyðarfirði en annars staðar. En með „annars staðar“ er þá átt við staði þar sem hafnaraðstaða og vatnsveita og þvílík aðstaða væri fyrir hendi, en það er ekki reiknað með þeim hag sem hafa mætti af því að reisa slíka verksmiðju í tengslum við aðra verksmiðju sem þegar væri fyrir hendi. Nú er ekki víst að vísu að hér sé um hagkvæmasta kost að ræða að því er varðar Grundartanga, en það virðist þó liggja nokkuð beint við. Þess vegna er spurningin orðuð með þeim hætti, þannig að mönnum geti verið ljóst a. m. k. hvernig þessi samanburður komi út.

Í þriðja lagi var óskað eftir útreikningi á afurðaverði á þeirri forsendu, að sama samband gildi áfram milli verðs á járnblendi og kísilmálmi eins og verið hefur að undanförnu og á grundvelli spár Járnblendifélagsins um markaðsþróun járnblendis.

Það er kunnara en frá þurfi að segja, að Járnblendifélagið hefur við umsókn sína og óskir um fjárfyrirgreiðslu lagt fram hugmyndir sínar um markaðsþróun að því er járnblendi varðar, um þróun verðtags á járnblendi. Það er líka vitað að á undanförnum árum hefur gilt nokkuð ákveðið samband milli verðs á járnblendi og kísilmálmi. Hér er verið að fara fram á að sú spá, sem Járnblendifélagið hefur gert varðandi verð á járnblendi, verði lögð til grundvallar við mat á afurðaverði frá kísilmálmverksmiðjunni og að teknu tilliti til þess sambands sem hefur verið ríkjandi að undanförnu. Ég hef ekki hugmynd um hver niðurstaðan yrði úr slíkum samanburði, en mér þykir a. m. k. fróðlegt og eðlilegt, að þessir útreikningar verði gerðir, og ekki nema sjálfsögð krafa af hálfu þingsins að fá þennan samanburð.

Í fjórða lagi er spurt hvaða áhrif það hafi á rafmagnsskömmtun og afkomu verksmiðjunnar ef aflgeta Kröflu verður 10 mw. og steinullarverksmiðja rís á Sauðárkróki.

Til þessarar spurningar liggja þau rök, að í forsendunum fyrir rafmagnsútvegun, sem fram eru lagðar af hálfu Rafmagnsveitna ríkisins, er þess getið, að til þurfi að koma nokkur skömmtun á rafmagni á fyrstu árum þessarar verksmiðju og sé þá miðað við að aflgeta Kröflu sé 20 mw. og ekki komi aðrir verulegir notendur á orku á Norðurlandi og Austurlandi. Nú eru hins vegar uppi áform um að reisa steinullarverksmiðju á Sauðárkróki, og þó að hún noti ekki mikið rafmagn að vísu, þá er það þó eitthvað og meira en þó að bætt væri við einu einbýlishúsi eða svo. Hins vegar hefur það komið fram í ræðu hæstv. iðnrh. við 1. umr. um þetta mál, að hann væri ekki bjartsýnn á að vel tækist til að auka afl í Kröflu eða raforkuframleiðslu í Kröflu, og að undanförnu hefur raforkuframleiðslan þar verið á bilinu 10–14 mw. Þess vegna virðist fróðlegt að fá upplýsingar um það, hvernig fara mundi og hver áhrifin yrðu af því, að ekki rættust bjartsýnishugmyndir varðandi orkuframleiðslu í Kröflu, og svo hins vegar að steinullarverksmiðja risi á Sauðárkróki. Virðist nauðsynlegt að það liggi fyrir.

Fimmta spurningin var þannig: Með tilliti til markaðsspár verkefnisstjórnar og ráðgjafa hennar annars vegar og samkvæmt spá þeirri, sem talað er um í þriðju spurningu að framan, hver mundu þá vera áhrif þess á afkomu verksmiðjunnar að hún taki til starfa einu ári seinna en verkefnisstjórn gerir ráð fyrir eða einu og hálfu ári seinna?

Það hefur komið fram í umsögnum ýmissa aðila um þetta mál, að það væri ekki skynsamlegt að rasa um ráð fram. En það hefur líka komið fram, að á fyrstu árum verksmiðjunnar eigi hún að búa við rafmagnsskömmtun. Og það hefur í þriðja lagi komið fram, að menn búast við hækkandi kísilmálmverði í framtíðinni, og þannig eru spár verkefnisstjórnar um þróun markaðsverðsins. Þess vegna hljóta menn að spyrja, hvort það hafi einhver veruleg áhrif á afkomu verksmiðjunnar og þá í hvaða átt ef gangsetning hennar yrði ákveðin á eitthvað öðrum tíma en um hefur verið talað. Ef útkoman úr því yrði sú, að afkoma verksmiðjunnar væri betri ef hún færi í gang nokkru seinna, þá gefur það auðvitað tilefni til íhugunar sérstaklega að því er það varðar. Ef hið öndverða yrði upp á, að hagur verksmiðjunnar væri betri með því að hún færi í gang fyrr, þá gefur það náttúrlega byr undir báða vængi hugmyndum um að flýta sér eftir því sem kostur er.

Í sjötta lagi var beðið um uppsetningu á heildargjaldeyrisútgjöldum vegna verksmiðjunnar, þar með töldum útgjöldum sem af verksmiðjunni leiddi, og heildargjaldeyristekjum miðað við 20 ára starfstíma, samkv. því að erlendum lántökum yrði hagað eins og ríkisstj. gerir ráð fyrir.

Nú geri ég ráð fyrir því, að hv. alþm. hefðu getað ályktað sem svo að þetta hlyti að liggja fyrir. En því er ekki til að dreifa. Svo undarlegt sem það verður að teljast í sambandi við slíkt verkefni hefur úttekt af þessu tagi ekki verið gerð. Þess vegna er beðið um hana.

Það varð að ráði í iðnn. að leita til Þjóðhagsstofnunar um svör við þessum spurningum. Þjóðhagsstofnun taldi sér ekki fært að svara þeim á þeim skamma tíma sem henni var til þess ætlaður, og er það reyndar að vonum þegar mönnum er ætlað að svara slíkum spurningum samdægurs. Í raun og sannleika átti nefndarformaður kannske lítilla annarra kosta völ en að biðja um svör við þeim samdægurs eins og mál voru í pott búin. Þess vegna fengust ekki svör við þessum spurningum og þær athuganir ekki gerðar sem hér er beðið um. Ég vil engu að síður ítreka mikilvægi þess, að svör fáist við þessum spurningum og þessar athuganir verði gerðar a. m. k. áður en að málið kemur á ný til umfjöllunar á Alþingi.

Í framlögðum gögnum á nefndarfundum kemur fram margvísleg alvarleg gagnrýni á undirbúning málsins annars vegar og hins vegar ábendingar um þætti sem athuga verði nánar. Í stað þess að rekja þessa gagnrýni og ábendingar í nál. hef ég leyft mér að vísa til þessara gagna sem eru birt sem fylgiskjöl með nál., níu fylgiskjöl. Það má í rauninni teljast harla merkilegt í sambandi við umfjöllun þessa máls, að hvorki iðnn. Nd. né heldur meiri hl. iðnn. Ed. hafi séð ástæðu til þess að birta þessi gögn. Meðal þeirra er umsögn Þjóðhagsstofnunar. Það er minnisblað frá forstjóra Járnblendifélagsins. Það eru minnisatriði frá Seðlabanka Íslands. Það eru bréf frá Rafmagnsveitum ríkisins um rafmagnsskömmtun og kostnað við línulagnir. Það er bréf frá Náttúruverndarráði. Það er umsögn frá Heilbrigðiseftirliti ríkisins. Og þannig mætti áfram telja.

Ég hef hins vegar talið bæði nauðsynlegt og eðlilegt að þessar umsagnir kæmu fram, en verð þó reyndar að taka fram að ýmsir þeir, sem komu á fund nefndarinnar til þess að sitja stuttlega fyrir svörum varðandi þau bréflegu gögn sem þeir höfðu lagt fram, tóku fram að þeir litu ekki á þessa pappíra sína sem umsagnir í eiginlegri merkingu vegna þess að þeim hefði verið ætlaður skammur tími til þess að líta á málin. Það hafa líka verið lagðar fram tvær skýrslur, önnur frá Commodities Research Unit Ltd. og hin frá Resources Development Group, sem iðnrn. hefur látið vinna. Ég taldi nauðsynlegt að það lægi fyrir í nál., hverjar væru aðalábendingar sem koma fram í þessum tveimur skýrslum, vegna þess að mér sýnist að efni þeirra og efnisumfjöllun hafi farið fyrir ofan garð og neðan í allri umræðu hér á þinginu. Svo segir í skýrslu frá Commodities Research Unit Ltd. í niðurstöðum varðandi mat á fyrirtækinu:

„Þegar á heildina er litið er það lágur raforkukostnaður, sem gerir fyrirtækið fyrst og fremst lífvænlegt. Allir aðrir kostnaðarþættir eru of háir. Þegar lítið er á alla þessa þætti í heild, þá er fyrirtækið annaðhvort með háan framleiðslukostnað, ef lítið er á áhrif verðbólgu, eða mjög háan, ef ekki er tekið tillit til hennar. Fjármögnun verður því að haga þannig að vaxtagreiðslur séu mjög lágar fyrstu árin.“

Í niðurlagsorðum eru ábendingar frá skýrsluhöfundum sem eru þannig efnislega séð, þeir segja: „Aðalíhugunarefnin, sem okkur sýnist að taka verði nú tillit til, eru þessi:

1. Getur fyrirtækið framleitt vöru sem sé af þeim samfelldu gæðum sem kísilframleiðendur krefjast?

2. Er unnt að breyta svo fjármagnskostnaði að hann verði ekki jafnmikill á upphafsárum?

3. Er rafmagnsverðið 17,5 mill ófrávíkjanlegt?“ Vitaskuld hefur eignarhald áhrif á þann arð sem ríkisstj. óskar að fá af sölu á orku, öndvert við arð af kísilmálmframleiðslu, en hár framleiðslukostnaður bendir til að líta verði á hve fyrirtækinu sé hætt við hverja tímabundna verðlækkun afurða.

Hér eru vitaskuld alvarlegar ábendingar á ferðinni frá þessum erlendu aðilum. Það dugar ekki í sambandi við skýrslur sem unnar eru fyrir stórfé erlendis, að lesa einungis þær setningar sem hljóma vel og jákvætt. Menn verða líka að lesa og ekki síður af athygli þær ábendingar sem koma fram um það sem áhættusamt er, um það sem hætta er á að miður fari, og fyrst og fremst verða menn að líta á málin í heild. Hér eru í rauninni settar fram mjög alvarlegar ábendingar, og allar þessar þrjár ábendingar fela í sér ákveðnar efasemdir af hálfu skýrsluhöfunda. Þeir spyrja sjálfa sig og aðra hvernig muni takast til með gæðin. Þeir eru ekki vissir, þeir telja að þarna sé vafamál sem við verðum að huga að, og þeir taka fyrir tvo kostnaðarþætti út frá því, að fyrirtækið hafi háan framleiðslukostnað, og óska sérstaklega eftir því eða a. m. k. benda eigendum á að þeir ættu þó a. m. k. að líta á hvort þessir kostnaðarþættir þurfi að vera svona háir.

Vitaskuld hafa þessir skýrsluhöfundar unnið þetta verk út frá því, að staðsetning verksmiðjunnar og fjárfestingarkostnaður væru gefin. Þeir hafa ekkert um það fjallað, þeir hafa fengið fjárfestingarkostnaðinn upp í hendurnar.

Í hinni skýrslunni, frá Resources Development Group eða RDG, eins og það er skammstafað, eru í niðurlagsorðum sérstakar vangaveltur um hvernig megi renna traustari stoðum undir fyrirtækið. Einmitt það, að í niðurlagsorðum skuli vera fjallað um hvernig megi renna traustari stoðum undir fyrirtækið, er vitaskuld vísbending um að þeir telji þörf á að íhuga þær stoðir sem undir fyrirtækinu eru. Hér er líka ábending til okkar. Þeir komast að svipaðri niðurstöðu og hinir. Þeirra vangaveltur eru um það, hvort renna megi traustari stoðum undir fyrirtækið með lægra raforkuverði fyrstu árin, með því að losna við afborganir af lánum fyrstu árin eða með meira eigin fé en gert er ráð fyrir í skýrslu verkefnisstjórnar.

Ég tel að þessar skýrslur frá hinum erlendu ráðgjafaraðilum, CRU og RDG, svo skammstafanir séu notaðar, sýni glögglega að þessum aðilum virðist þurfa að treysta betur undirstöður fyrirtækisins. Í þessum ábendingum felst vitaskuld það mat, að undirstöður séu í veikara lagi, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Þar eru líka ábendingar um atriði sem þeir ætlast til að eigendurnir — og Alþingi er í þessu tilviki fulltrúi eigendanna — taki til íhugunar og umhugsunar. En það merkilega hefur gerst, að engin þessara ábendinga var tekin til umfjöllunar í nefndinni, og það verður reyndar ekki séð heldur, að Nd. eða iðnrn. hafi nokkuð sinnt um þessar ábendingar. Allt er þetta til marks um það, að undirbúningi sé áfátt. Þess vegna ber auðvitað brýna nauðsyn til að athuga þetta mál allt betur, rasa ekki um ráð fram, en halda áfram undirbúningi.

Það væri vissulega ástæða til þess að líta eilítið nánar á nokkur atriði sem á er bent í bréflegum gögnum frá þeim aðilum sem til hafa verið kvaddir af hálfu iðnn. Nd. og Ed. til þess að láta álit sitt í ljós, hvort sem maður freistast til að kalla það umsagnir eða ekki. Það er t. d. ókannað mál og þeirri spurningu er gersamlega ósvarað hverjar séu hæfilegar öryggisbirgðir hráefna í þessari verksmiðju. Þrátt fyrir spurningar um það efni hafa svör ekki fengist. Ég segi þetta vegna þess að reiknað er með lygilega litlum hráefnisbirgðum í þeirri verksmiðju sem hér um ræðir, eins og ég gerði að umtalsefni við 1. umr. Það hefur líka verið bent á samband hráefnisverðs og afurðaverðs, þá forsendu sem verkefnisstjórn gefur sér, að afurðaverð hækki en hráefnisverð haldist óbreytt í raunkrónum. Þetta er atriði sem þarf að kanna nánar. Það hefur ekki verið gert. Einnig hefur verið bent á það, að sá verðbreytingarviðmiðunargrundvöllur, sem verkefnisstjórn fyrirtækisins hefur valið sér, nefnilega framfærsluvísitala í Bandaríkjunum, sé vafasamur. Ábendingar þjóðhagsstofnunar um það eru vissulega í fullu gildi. Svör fulltrúa verkefnisstjórnar voru þau, að oftast væri notuð þessi neysluvísitala í Bandaríkjunum við verðumreikning af því tagi sem hér um ræðir eða við verðumreikning yfirleitt. Ég verð að segja eins og er, að mér fundust röksemdir forstjóra Þjóðhagsstofnunar um það, að þó að þetta væri algengast þyrfti það ekki að vera best, ákaflega sannfærandi og þess vegna nauðsynlegt að kanna þetta mál nokkru nánar.

Ég gat um það hér áðan, að það hefði verið í gildi samband milli verðs á kísil annars vegar og járnblendi hins vegar. Þrátt fyrir að mönnum sé kunnugt um þetta hefur ekkert veríð gert til að kanna þetta samband af hálfu þeirra aðila sem um málið hafa fjallað.

Það er náttúrlega athyglisvert líka, eins og fram kemur í ýmsum þeim bréflegu gögnum sem fyrir okkur liggja, að verkefnisstjórnin var ekki að leita að því, hvernig væri hagkvæmast að reisa kísilverksmiðju, heldur setti sér að ganga úr skugga um það, hvað hún kostaði ef hún væri reist með tilteknum hætti á tilteknum stað. Ennfremur hafa komið fram ábendingar um það, að allar fjármögnunaráætlanir skorti. Þetta verður að teljast nokkuð alvarlegt, en hins vegar hefur ekkert verið gert til að bæta úr. Ég tel líka að það hljóti að vera íhugunarefni fyrir Alþingi, hvaða fjármögnunarform skuli velja, með tilliti til þess, hvort þessi verksmiðja skuli vera á eins konar ríkisframfærslu með því að ríkisábyrgðir séu teknar á lánum eða standa á eigin fótum og standast þá mat þeirra lánastofnana sem til hennar lána. Ég held að það sé margt sem mæli með síðari kostinum, að þetta sé sjálfstætt fyrirtæki sem standi á eigin fótum með traustan fjárhag, en sé ekki upp á náð ríkisins um ríkisábyrgðir komið. Ég held að það væri t. d. langtum skemmtilegra fyrir þm. þess kjördæmis, þar sem þessi verksmiðja rís, að þurfa ekki að horfa fram á það að eiga að vera á bónbjörgum fyrir þessa verksmiðju hér á göngum Alþingis, biðjandi um frekari lánafyrirgreiðslu og ríkisábyrgð. Miðað við þau gögn, sem fram hafa verið lögð, virðist fjárhagurinn ekki traustari en svo að harla líklegt verður að teljast að það liði ekki langur tími þangað til menn væru komnir hér til þess að biðja um frekari fyrirgreiðslur. Af því höfum við fleira en nóg og höfum reyndar dæmi af verksmiðjum sem áttu að teljast á traustari grunni, og þau dæmi eru frekar ný. Ég held að það væri hollt fyrir Alþingi að líta á þessi dæmi og ætla sér betri stoðir og styrkari undir þessa verksmiðju og traustari fjárhag og leyfa henni að standast það mat sem lánastofnanir mundu á hana leggja og þá með tilliti til þess, að ekki yrðu veittar ríkisábyrgðir á lánum.

Rekstrarfjárþörf virðist líka af þeim gögnum, sem fram hafa verið lögð, vera harla vanmetin.

Allt lýtur þetta að því og sýnir fram á að ekki hafi verið nógu vel frá þessu máli gengið og það ekki nógu vel undirbúið. Ég er þeirrar skoðunar, að framkvæmdir af þessu tagi eigi að geta verið góðar fjárfestingar til lengri tíma ef rétt er á haldið. En aðstæðurnar, sem þær búa við, eru miklu sveiflukenndari en áður, og það þýðir líka að það verður að gera meiri kröfur um trausta fjármögnun heldur en menn hafa gert áður. Eignaraðild ríkis eða erlendra aðila hlýtur að koma inn í þá mynd, ef menn vilja líta á þetta með skynsamlegu viti og athuga hversu mikla áhættu þeir vilja taka annars vegar og hins vegar kannske möguleika á því að geta reist fleiri iðjuver frekar en færri, ef menn hafa takmörkuð fjárráð og hafa um það að velja að eiga í þeim kannske annars vegar fjórðung í fjórum eða eitt iðjuver að öllu. Ég skal ekki fara nánar út í þau mál, en vitaskuld verðum við að telja fjárráð nokkuð takmörkuð og þá ekki síst með tilliti til þess, að þjóðarskuldir eru nú orðnar ærið háar og langtum hærri en Íslendingar hafa nokkurn tíma leyft sér áður eða um 40% af þjóðarframleiðslu. Ef svo fer fram sem horfir gæti farið svo að við Íslendingar færum að finna fyrir því, að það væri ekki eins auðvelt að taka lán erlendis og lifa á þeim og hefur verið að undanförnu.

Það er sagt um þessa verksmiðju og kemur reyndar fram í þeim skýrslum sem erlendir aðilar hafa unnið, að í henni fari því miður saman hátt raforkuverð og hár fjármagnskostnaður. Þá er auðvitað lítið á málið út frá sjónarhóli verksmiðjueigandans eins og hann sé óháður aðili. Það kom fram og var upplýst á nefndarfundi í iðnn., að Elkem Spigerverket hafði keypt verksmiðju fyrir nokkru, það hefði keypt þessa verksmiðju mjög ódýrt og fjármagnskostnaður af þeim kaupum væri að líkindum af stærðinni fjórðungur þess sem fjármagnskostnaður er af þessari verksmiðju. Ég get þess vegna þess að auðvitað kemur þetta inn í myndina þegar meta á samkeppnisstöðu þessa fyrirtækis. Það er vitaskuld nauðsynlegt fyrir okkur, þegar við erum að skoða fyrirtæki af þessu tagi að meta þá áhættu, sem við erum að taka, og þá samkeppnisstöðu sem við erum í, ég spyr nú ekki að þegar forsendur undir þeim útreikningum, sem birtir eru um afkomu og horfur fyrirtækisins, fela í sér allbjartsýnt mat á möguleikum fyrirtækisins til þess að ná sér í ekki bara markaði, heldur bestu markaðina.

Menn skulu ekki ætla að þeir, sem fyrir eru á markaðinum, láti eftir sína hlutdeild átakalaust. Þeir munu halda áfram að berjast fyrir því að halda sínum hlut á markaðinum, jafnvel þótt markaðurinn sé vaxandi, og bæta við sínar verksmiðjur eftir því sem þeir hafa möguleika á og þá oft með tiltölulega ódýrum hætti, vegna þess að margt það, sem við þarf að styðjast, er fyrir hendi. Ég rek þetta ekki til þess að hræða menn frá verkefnum af þessu tagi. Ég rek þetta vegna þess að ég geri kröfu til þess, að menn séu raunsæir þegar þeir eru að skoða verkefni af þessu tagi, og ég ítreka þá grundvallarskoðun mína að aukning orkufreks iðnaðar og einmitt fyrirtæki af þessu tagi séu eitthvert besta tækifæri Íslendinga til þess að auka atvinnu og auka þjóðartekjur og treysta þannig lífskjörin í landinu. En það gerir í ljósi þess, sem ég hef sagt um markaðsaðstæður og um ýmislegt annað sem varðar þetta fyrirtæki, enn þá meiri kröfur til vandaðs undirbúnings heldur en ella.

Nú er það meira að segja svo að þeim undirbúningi, sem við ættum að vinna hér innanlands á staðnum, hefur lítið verið sinnt. Það var upplýst af hálfu Heilbrigðiseftirlits ríkisins og Náttúruverndarráðs, að það tæki u. þ. b. ár að vinna þær athuganir sem þyrfti að vinna þeirra vegna, varðandi mengun umhverfis, en það kom fram hjá verkfræðingunum, sem hafa verið til ráðuneytis um hönnun þessa fyrirtækis, að niðurstöðurnar úr þessum athugunum væru forsendur hönnunar á þessari verksmiðju, í rauninni gætu þeir ekki gengið frá hönnuninni fyrr en niðurstöðurnar úr þessum umhverfisathugunum lægju fyrir. Við megum þess vegna búast við að annaðhvort verði sá kostur valinn að hanna fyrirtækið dýrara en nauðsyn ber til, ef gera á það áður en athuganir fara fram til þess að menn séu öruggir um að öllum skilyrðum verði fullnægt, ellegar þá að það verði að hanna fyrirtækið tvisvar, fyrst út frá einhverjum ágiskunum og síðan með tilliti til þeirra ábendinga og niðurstaðna sem koma fram við athuganir. Þetta á reyndar við um fleira en umhverfið. Það er eftir að rannsaka vatnsból, það er eftir að gera jarðvegsrannsóknir, það er eftir að gera dýptarmælingar í sambandi við hafnaraðstöðu. Allt eru þetta forsendur fyrir hönnun.

Ég held, herra forseti, að þetta hnígi allt að því, að það sé þó nokkuð mikið undirbúningsstarf eftir, og um leið og ég legg áherslu á nauðsyn þess, að menn reyni að fá heildarmynd af þessu fyrirtæki, en ég er alveg sannfærður um að þá heildarmynd hafa þm. alls ekki fengið í nægilega ríkum mæli, en gætu fengið ef undirbúningi og rannsóknum væri haldið áfram, þá ítreka ég nauðsyn þess, að áfram verði haldið með þetta verkefni.

Í samræmi við það sjónarmið okkar Alþfl.-manna, að sjálfsagt sé og nauðsynlegt að leggja áherslu á uppbyggingu orkufreks iðnaðar, þá ítrekum við jafnframt að undirbúningur verði að vera af mikilli kostgæfni svo að nýtist sem allra best. Það er einungis á þeim grundvelli hins vandaða undirbúnings sem er rétt að ganga frá eiginlegum efnisþáttum, sbr. t. d. það sem ég rakti um hönnunarforsendur og þess háttar. Ég legg því til að undirbúningi verði haldið áfram og hann falinn sérstakri undirbúningsstjórn. Það er reyndar í samræmi við hugmyndir sem fulltrúar Alþfl., Framsfl. og Sjálfstfl. létu í ljós áhuga á þegar þessi mál voru til umfjöllunar í Nd. Framsfl. og Sjálfstfl. stukku hins vegar frá þessum hugmyndum, en Alþfl. vill halda við þá samstöðu sem þá hafði náðst. Hann flytur þess vegna till. í þá veru.

Það er vitaskuld fráleitt að taka afstöðu til ýmissa efnisatriða eins og till. meiri hl. n. gera nú ráð fyrir, fyrr en fyrir liggur niðurstaða af þeim undirbúningsathugunum sem allir virðast sammála um að séu nauðsynlegar. Þær athuganir eiga auðvitað að ráða úrslitum um hvernig verður haldið á efnisþáttum, og það verður að teljast veruleg þversögn í því að ætla að afgreiða hin margbreytilegustu efnisatriði um framhald málsins meðan undirbúningur stendur enn yfir. Ég flyt þess vegna á sérstöku þskj. brtt. sem gera ráð fyrir kosningu sérstakrar undirbúningsstjórnar. Jafnframt geri ég þá ráð fyrir að það verði samið nýtt frv. um kísilmálmverksmiðju á grundvelli starfsundirbúnings stjórnarinnar.

Að lokum, herra forseti, vil ég leggja áherslu á eftirfarandi:

Það á að auka orkufrekan iðnað í landinu. Í annan stað verður að vanda undirbúning slíkra verkefna, en mikið skortir á það í því tilviki sem hér er til umfjöllunar. Af þessum sökum verður að vinna áfram að undirbúningi verksins. Í þriðja lagi verður afstaðan til einstakra efnisþátta að grundvallast á þeirri undirbúningsvinnu sem fram undan er. Það er einungis rökrétt í framhaldi af þessu að bíða niðurstöðunnar úr starfi undirbúningsstjórnar áður en gengið er frá lagafrv. um sjálfa starfrækslu verksmiðjunnar. Það er í þessa veru sem sú brtt. er sem ég flyt við þetta frv. og mæli með að verði samþykkt.