07.05.1982
Neðri deild: 88. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4885 í B-deild Alþingistíðinda. (4657)
215. mál, skattskylda innlánsstofnana
Birgir Ísl. Gunnarsson:
Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., frv. til l. um skattskyldu innlánsstofnana, er þáttur í sérstökum efnahagsaðgerðum sem hæstv. ríkisstj. boðaði í upphafi þessa árs og voru nokkuð margþættar. Þessar efnahagsaðgerðir fólust m. a. í nýjum sköttum, og enginn vafi er á að undirbúningur þessara mála, hvort sem er frv. till. um skattskyldu innlánsstofnana eða frv. til l. um tollafgreiðslugjald, sem var einn þáttur í þessum aðgerðum, öll þessi mál eru illa undirbúin og Alþingi er því vissulega ekki of sælt af því að eiga að samþykkja þau frv. sem hæstv, ríkisstj. hefur borið fram í þessum efnum.
Ég vil aðeins minnast á einn þátt þessara mála vegna þess að hann hefur komið á dagskrá á opinberum vettvangi nú alveg þessa dagana, en það er tollafgreiðslugjaldið sem lagt var á og menn héldu að yrði ekki lagt á aðföng til iðnaðar. A. m. k. var það boðað þegar hæstv. ríkisstj. boðaði sínar efnahagsaðgerðir, að liður í þeim væri að stuðla að því, að íslenskur iðnaður yrði betur samkeppnishæfur við erlendan iðnað, bæði útflutningsiðnaður okkar svo og sá iðnaður sem á í samkeppni við innfluttan iðnvarning. Þess vegna kom það mjög á óvart, þegar reglugerð var sett um tollafgreiðslugjaldið, að það skyldi vera lagt á aðföng til iðnaðar. Ég bar fram fsp. til hæstv. fjmrh. 30. mars s. l. þar sem ég rifjaði það upp, að það hefði alloft átt sér stað umr. hér á hv. Alþingi um nauðsyn þess að bæta aðstöðu iðnaðar sem ætti í harðri samkeppni við iðnað erlendis, bæði vegna innflutnings til landsins svo og útflutnings á okkar iðnaðarvörum, eins og ég gat um áðan.
Þegar hæstv. ríkisstj. kynnti á Alþingi skýrslu frá ríkisstj. um aðgerðir í efnahagsmálum voru í þeirri skýrslu ýmis atriði sem virtust lofa nokkuð góðu um það, að skilningur hæstv. ríkisstj. væri að aukast á ýmsum vandamálum iðnaðarins og nauðsynlegt væri að létta af iðnaðinum ýmsum gjöldum sem á honum hvíla. Það var t. d. boðað og það var síðan samþykkt hér á Alþingi, að launaskattur á iðnaðarfyrirtækjum skyldi lækka um 1%, úr 3.5% í 2.5%. Enn fremur var boðað að endurskoðuð yrði tollheimta af tækjum til atvinnurekstrar til að bæta möguleika á framleiðniaukningu í þessum greinum. Ýmislegt fleira var tilgreint sem talið var nauðsynlegt að gera til að bæta aðstöðu íslensks iðnaðar. Einn liður í þessum aðgerðum hæstv. ríkisstj. var að leggja á sérstakt tollafgreiðslugjald. Þegar reglugerð var hins vegar sett um þetta gjald kom mjög á óvart að svo virtist sem aðföng til iðnaðar, hráefni svo og vélar og tæki, væru látin greiða þetta tollafgreiðslugjald. Þetta kom öllum alþm., held ég, mjög á óvart, og þess vegna bar ég fram sérstaka fsp. um það hér á hv. Alþingi til hæstv, fjmrh., að hve miklu leyti tollafgreiðslugjaldið væri lagt á aðföng til iðnaðar og hversu miklu þetta gjald næmi í fjármunum sem tekjur til ríkissjóðs. Hæstv. fjmrh. tók það mjög óstinnt upp, þegar ég bar fram þessa fsp. í vetur, og sagði með þjósti miklum að svarið við þessari fsp. væri að í þessum efnum væri fylgt ákvæðum laganna og ef alþm. hefðu ekki vitað hvað þeir væru að samþykkja þegar þeir samþykktu frv. um tollafgreiðslugjaldið, þá væri það þeim einum að kenna.
Ég gat um það m. a. í þessari umr., að iðnrekendur hefðu kvartað undan þessu gjaldi og að þeir teldu að tollvörugjaldið í ýmsum greinum iðnaðar þyngdi gjöld á iðnaðinum meira en samsvaraði því sem létt var af með niðurfellingu eða lækkun launaskattsins. Hæstv. fjmrh. gerði mjög lítið úr þessu. Hann taldi að hér væri eingöngu um að ræða órökstuddar fullyrðingar, eða eins og hæstv. fjmrh. sagði í sínu svari og nú vitna ég til hans, með leyfi hæstv. forseta:
„Ég tel að hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson ætti ekki að trúa sögusögnum eins og þeim sem hann var að lýsa hér í svarræðu sinni. Það er alveg ljóst að fullyrðingar af því tagi, sem hann bar fyrir sig, eru fjarstæðukenndar.
Það er líka alveg ljóst að í lögunum kemur skýrt fram hvernig á að leggja toll á aðföng til iðnaðar. Ég er svo undrandi á því, að hv. fyrirspyrjandi skuli ekki hafa kynnt sér lögin betur en svo, að hann telur að þm. hafi staðið í einhverri ákveðinni meiningu, allt annarri en segir alveg skýrt og klárt í lögunum. Það stendur alveg skýrt og klárt í lögunum, að aðföng til iðnaðar skuli ekki fá á sig 1% gjald, en hins vegar skulu þau fá á sig þetta sérstaka krónutölugjald, þetta stendur eins skýrt og nokkuð getur verið í þessum lögum. Ég veit ekki hversu margir þm. hafa lesið þessi lög eða frv. áður en þeir samþykktu það; en þeir, sem það gerðu, áttu að vita hvað þeir voru að gera.“
Þetta var tilvitnun í hæstv. fjmrh., þegar hann var að svara fsp. um tollafgreiðslugjald á aðföng til iðnaðar. Eins og fram kemur af þessu svari vildi hæstv. ráðh. gera lítið úr þessu, taldi þetta sögusagnir einar, taldi þetta bara grátkór af hálfu iðnrekenda þegar þeir voru að kvarta undan þessu tollafgreiðslugjaldi. Hann taldi engra breytinga þörf á þessari reglugerð og alveg væri farið eftir lögunum í sambandi við tollafgreiðslugjaldið á aðföng til iðnaðar. En hvað gerist svo? Í fyrradag tekur hæstv. fjmrh. sig allt í einu til og breytir þessari reglugerð. Hann sér sig allt í einu neyddan til þess að breyta reglugerðinni í þá átt að fella niður tollafgreiðslugjaldið af aðföngum til iðnaðar, þetta sama gjald sem hæstv. ráðh. taldi að væri lítilvægt og að væri verið að þyrla upp moldviðri þegar um það var spurt hér á hv. Alþingi 30. mars. Þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum um það, hvernig undirbúningur allra þessara mála, sem hæstv. fjmrh. hefur fært hér fram á Alþingi, er og hvernig framkvæmdin er. Og af því að hæstv. fjmrh. er núna að ganga í salinn held ég að ég verði að ítreka það sem ég sagði um þetta efni.
Ég flutti fsp. hér á Alþingi 30. mars um tollafgreiðslugjald á aðföng til iðnaðar. Ég rakti þar sérstaklega þær kvartanir, sem iðnrekendur hafa flutt og forsvarsmenn Landssambands iðnaðarmanna, og rakti það, að þeir teldu að tollafgreiðslugjald á aðföng til iðnaðar, sem lagt var á, væri a. m. k. í sumum greinum iðnaðar það þungt að það vægi upp á móti þeim létti sem lækkun launaskattsins var. (Fjmrh.: Það mál er leyst.) Hæstv. fjmrh. hélt hér ræðu þá, 30. mars, og taldi þetta vera grátkór einan, taldi þetta vera lítið mál. Ég skal lesa upp fyrir hæstv. fjmrh. hvað hann sagði, ég skal ítreka það. Hæstv. fjmrh. sagði þá:
„Ég tel að hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson ætti ekki að trúa sögusögnum eins og þeim sem hann var að lýsa hér í svarræðu sinni. Það er alveg ljóst að fullyrðingar af því tagi, sem hann bar fyrir sig, eru fjarstæðukenndar.
Það er líka alveg ljóst að í lögunum kemur alveg skýrt fram hvernig á að leggja toll á aðföng til iðnaðar. Ég er undrandi á því, að hv. fyrirspyrjandi skuli ekki hafa kynnt sér lögin betur. en svo, að hann telur að þm. hafi staðið í einhverri ákveðinni meiningu, allt annarri en segir alveg skýrt og klárt í lögunum.“
Þetta sagði hæstv. fjmrh. þá og taldi alveg ástæðulaust að breyta nokkru um þetta. Nú er málið leyst, segir hæstv. ráðh. Það er nákvæmlega það sem var verið að fara fram á hér á Alþingi 30. mars, að tekið væri tillit til iðnaðarins, tekið væri tillit til umkvartana Félags ísl. iðnrekenda og Landssambands iðnaðarmanna, en hæstv. ráðh. vildi ekki hlusta á það þá. En nú hefur hann séð sig neyddan til þess að breyta þessari reglugerð, og þetta er bara eitt dæmi af mörgum um það, hvernig öll þessi skattamál, sem hæstv. fjmrh. og hæstv. ríkisstj. bera fram hér á Alþingi, eru illa undirbúin. Nú er hér til umr. frv. til l. um skattskyldu innlánsstofnana. Þetta frv. er líka illa undirbúið og í rauninni óskaplegt hrófatildur hvernig þessi skattlagning á að eiga sér stað. Undirbúningi þess er mjög ábótavant. Það hefur komið mjög glöggt í ljós við meðferð þessa máls hér á hv. Alþingi, hversu undirbúningi er ábótavant, enda voru gerðar á þessu máli ýmsar breytingar í Ed. Þær sýna glögglega að þeir, sem sömdu þetta frv., virðast ekki hafa gert sér grein fyrir því verki sem þeir voru að vinna.
Það hefur t. d. ekkert samband verið haft við undirbúning þessa máls við viðskiptabankana eða sparisjóði landsins og lítið samband haft við Seðlabankann eins og kemur fram í nál. sem meiri hl. fjh.- og viðskn. hefur látið frá sér fara. T. d. hefur heldur engra upplýsinga verið aflað frá okkar nágrannalöndum um hvernig slíkri skattlagningu er háttað þar. En vafalaust mætti ýmislegt læra af ákvörðunum þeirra í þeim efnum og mætti hafa ýmislegt til hliðsjónar um það, hvernig skattlagning á banka og sparisjóði á sér stað í þeim löndum. Menn hafa heldur enga grein gert sér fyrir því í sambandi við undirbúning þessa máls, hvaða áhrif þessi skattlagning kynni að hafa á innláns- og útlánsvexti og á eigin fjármunastöðu innlánsstofnananna og þar með ekki heldur hvaða áhrif þessi skattlagning komi til með að hafa á gang efnahagsmála og á gang þeirra vandamála sem við eigum helst við að stríða í sambandi við lausn efnahagsmála. Það er enginn vafi á því, að þessi skattur, ef hann verður á lagður, ef hv. Alþingi samþykkir það frv. sem hér liggur fyrir, á eftir að skerða möguleika banka og sparisjóða til að gegna því hlutverki sem þeir eiga að gegna, þ. e. að lána fjármagn hvort sem er til atvinnurekstrar eða til einstaklinga hér á landi. Það er reyndar svo nú að þeir, sem leita til lánastofnana, fá alveg eins oft nei frá lánastofnununum eða þá þeir fá ekki nema hluta af því sem þeir sækja um. Svarið, sem þeir fá er að staða bankanna, staða peningastofnana sé slík að þeir hafi ekki fjármagn til þess að veita almenningi eðlilega fyrirgreiðslu. Þar skiptir að sjálfsögðu máli líka sú bindiskylda sem er tíðkuð og bankarnir hafa reyndar mótmælt. En þegar þar á ofan bætist það sem hér er að eiga sér stað, að leggja á sérstakan skatt á innlánsstofnanir, banka og sparisjóði, þá er nú hætt við að fari að þrengjast fyrir dyrum hjá ýmsum innlánsstofnunum og hætt við að þær geti ekki sinnt því hlutverki sem þær eiga að gera.
Ég hef orðið var við það og ég las það m. a. í Þjóðviljanum, málgagni hæstv. fjmrh., að sjálfstæðismenn á Alþingi vildu sérstaklega hlífa bönkum og sparisjóðum, þeir vildu koma í veg fyrir að almenningur nyti góðs af þeim mikla gróða sem bankar og sparisjóðir hafa. Þetta er að sjálfsögðu mikill misskilningur. Við sjálfstæðismenn teljum auðvitað að bankar og sparisjóðir séu engar heilagar kýr, en við teljum nauðsynlegt að þannig sé búið að þessum stofnunum að þær geti sinnt því hlutverki sem af þeim er ætlast hér á landi, þær geti sinnt því hlutverki að koma einstaklingum til hjálpar ef þeir þurfa þess með, — þegar einstaklingar þurfa að leggja fjármagn hvort sem er í íbúð, endurnýja bílinn sinn, innbúið sitt, þá eigi bankarnir að geta komið til eða þegar atvinnufyrirtækin þurfa á rekstrarfé að halda eða þegar atvinnufyrirtækin þurfa að endurnýja vélar, tæki eða hús. Það er þess vegna fjarri lagi að það sé af einhverri sérstakri umhyggju fyrir bönkum eða sparisjóðum þessa lands sem við sjálfstæðismenn erum á móti þessu frv. Við erum á móti þessu frv. vegna þess að við skynjum að bankar og sparisjóðir geta síður gegnt því hlutverki sem þeim er ætlað ef þessi skattur verður á lagður. Og hver kemur til með að borga þennan skatt? Eru það bankarnir eða sparisjóðirnir sem koma til með að borga hann af eigin fé? Ég hygg að svo sé ekki.
Allir vita að vextir eru ákveðnir með sérstökum ákvörðunum Seðlabanka Íslands sem að jafnaði hefur samráð við ríkisstj. á hverjum tíma um hvernig vextir eigi að vera ákveðnir. Bæði innlánsvextir og útlánsvextir eru ákveðnir á þennan hátt. Helsta tekjuöflun banka er að sjálfsögðu vaxtamismunurinn, þ. e. sá mismunur sem er á innláns- og útlánsvöxtum. Þessar tekjur stjórnast alveg af þessum ákvörðunum sem Seðlabankinn tekur á hverjum tíma í samráði við hæstv. ríkisstj., þannig að annaðhvort verður að gera: að draga úr útlánum bankanna, að draga úr möguleikum bankanna til að sinna því sjálfsagða hlutverki sínu að lána almenningi eða fyrirtækjum eða þá að hækka útlánsvextina þannig að bankarnir fái fjármuni til að standa undir þessum skatti. Þessi skattur er því ákaflega vanhugsaður. Kemur það mjög glöggt fram í þeim greinargerðum, sem lagðar hafa verið fram um þessa skatta frá bönkum og sparisjóðum, að hér er um mjög vanhugsaða aðgerð að ræða.
Bankar njóta skattfrelsis að vissu marki, það er rétt.
En það hefur verið sýnt fram á með þeim greinargerðum, sem lagðar hafa verið fram og við þm. höfum átt aðgang að og getað kynnt okkur, að þrátt fyrir skattfrelsisákvæði banka og sparisjóða greiða þessar stofnanir öll meiri háttar opinber gjöld sem lögð eru á atvinnufyrirtæki nema aðstöðugjald, tekjuskatt og eignarskatt. Í stað aðstöðugjalds greiða bankarnir landsútsvör. Og gjaldeyrisbankarnir greiða sérstakan skatt til ríkisins sem á sér ekki hliðstæðu í gjöldum á önnur fyrirtæki, þ. e. 60% af tilteknum tekjum af gjaldeyrissölu. Heildarskattlagning bankanna þrátt fyrir þetta skattfrelsi, sem oft er talað um, nam 27.5% af brúttóhagnaði þeirra á árinu 1980. Innlánsstofnanir eins og bankar og sparisjóðir hafa þá sérstöðu, að til þeirra eru gerðar mjög strangar kröfur um rekstraröryggi og fjárhagslegan styrk. Í nágrannalöndum okkar eru þessar kröfur yfirleitt lögbundnar, t. d. í því formi að krafist er lágmarkshlutfalls eigin fjár á móti heildarskuldbindingum. Í Danmörku er þetta lágmark 8% og í Noregi er þetta hlutfall 6.5%. Það er ekki ólíklegt að eitthvað slíkt verði lögfest hér á landi innan tíðar, og ég held að fyrir því séu sterk rök. Ég held að við þm. og hæstv. ríkisstj. eigi mjög að huga að því, hvort ekki sé rétt að lögbinda slíkt tágmarkshlutfall eigin fjár. Og þá eiga auðvitað allir bankar að vera undir þetta seldir og ríkisviðskiptabankarnir eiga að sjálfsögðu að hlíta sömu reglum og aðrir bankar að þessu leyti.
Álagning eignarskatts samrýmist alls ekki reglum um lágmarkshlutfall eigin fjár. En hvaða röksemdir eru þá aðrar sem mæla gegn því, að tekjuskattur sé lagður á viðskiptabanka og sparisjóði eða að skattheimta verði aukin með öðrum hætti? Við skulum aðeins huga að því.
Tekjuskattsfrelsi viðskiptabankanna og sparisjóðanna er að flestu leyti í samræmi við almenn skattalög, þannig að þótt skattfrelsisákvæði sérlaga yrðu felld úr gildi yrðu þessar stofnanir að mestu tekjuskattsfrjálsar að óbreyttum almennum lögum. Hlutafélagabankarnir eru undantekning að þessu leyti, en til þeirra var stofnað á sínum tíma með sérstöku samkomulagi ríkisvalds og fjölmennra landssamtaka á þeim forsendum að þeir yrðu tekjuskattsfrjálsir. Með álagningu tekjuskatts á ríkisviðskiptabanka og sparisjóði er verið að leggja á þá byrðar sem ekki eru lagðar á aðrar opinberar eða hálfopinberar stofnanir. Með álagningu tekjuskatts á hlutafélagabankana væri að ástæðulausu verið að fella úr gildi samkomulag sem gert var við stofnun þeirra. Slík stefnubreyting mundi skapa ný viðhorf í skipulagsmálum bankakerfisins og kalla á setningu almennrar löggjafar um stofnun og starfrækslu viðskiptabanka. Slík löggjöf er reyndar sjálfsögð af ýmsum öðrum ástæðum, og ég bendi á það, að þm. Sjálfstfl. hafa lagt hér fram á hv. Alþingi frv. til l. um viðskiptabanka þar sem er um að ræða mjög ítarlegar tillögur um viðskiptabankana. Hér er um að ræða frv. sem ég held að menn ættu að gefa mjög góðan gaum, — frv. sem er mjög vel unnið af þingflokki Sjálfstfl. og er til fyrirmyndar að því er þmfrv. snertir.
En hver er eiginfjárstaða banka og sparisjóða hér á landi? Ef menn kynna sér reikninga banka og sparisjóða eins og þeir hafa verið kynntir m. a. fyrir þm. er eiginfjárstaða þeirra mjög nálægt því lágmarki sem rætt hefur verið um að lögfesta hér á landi, nálægt því lágmarki sem tíðkast í okkar nágrannalöndum. Ef ekki er tekið tillit til hlutafjáraukningar hlutafélagabankanna hefur eiginfjárstaða þeirra haldist svo til óbreytt undanfarin 4 ár sem hlutfall af skuldbindingum. Ef þessar stofnanir hefðu þurft að greiða tekjuskatt frá ári til árs og að óbreyttum tekjum þeirra, þ. e. að óbreyttu bili því sem ákveðið hefur verið milli útláns- og innlánsvaxta, þá hefði eiginfjárstaða þessara banka rýrnað frá ári til árs. Greiðsla tekjuskatts verður ekki bætt upp með hagræðingu í rekstri eða innborgun eigin fjár frá eigendum. Ég held að það sé alveg ljóst og það sé öllum ljóst. Menn tala að vísu um útþenslu í bankakerfinu, það séu of margir starfsmenn í bönkum, það séu of mörg bankaútibú. En á móti verðum við að hafa það í huga, að bankarnir gegna vaxandi þjónustu. Þjónusta þeirra eykst frá ári til árs og stöðugt eru það ný svið sem bankarnir taka á sig til þess að þjóna viðskiptavinum sínum.
Það er því alveg ljóst að byrðarnar af þessari skattheimtu, sem nú er verið að leggja til að lögð sé á banka, lenda ekki á bönkunum sjálfum. Þær lenda á herðum lántakenda og annarra viðskiptaaðila þessara innlánsstofnana. Að öðrum kosti leiðir þessi skattheimta til rýrnandi trausts á innlánsstofnunum og líklegt að ýmsar minni stofnanir verði að hætta rekstri, t. d. ýmsir minni sparisjóðir. Það er því alveg ljóst að þessi skattheimta, sem á að leggjast á hin breiðu bök, að því er hæstv. fjmrh. segir og hæstv. ríkisstj., — reyndar er það ýmis önnur skattheimta sem á að lenda á breiðu bökunum að þeirra mati, — en ég held að það sé alveg ljóst að þessi skattheimta eins og allir aðrir skattar, sem núv. hæstv. ríkisstj. leggur til, lenda á almenningi að lokum, lenda á viðskiptavinum innlánsstofnananna, hvort sem það er húsmóðirin, sem er að endurnýja húsgögnin sín, eða fjölskyldan, sem er að kaupa sér hús, eða fyrirtæki, sem er að endurnýja sinn vélakost. Þessi skattur lendir á endanum hjá þeim sem viðskipta leita hjá viðskiptabönkum.
Hugvit og hugkvæmni hafa oft verið talin meðal góðra kosta hér á Íslandi og við verðum að viðurkenna að það er ekki öllum gefið. En því meiri ástæða er til þess að þeir, sem eru þeim gáfum gæddir að hafa gott hugvit og vera hugkvæmir, nýti þessar gáfur vel. Hæstv. fjmrh. hefur sýnt að hann er hugkvæmur maður, og ýmsir í hæstv. ríkisstj. hafa sýnt að þeir eru hugkvæmir menn. En því miður hefur þessi hugkvæmni beinst í rangar áttir. Hæstv. ríkisstj. og hæstv. fjmrh. hafa sýnt alveg sérstaka hugkvæmni í því að finna upp nýja skatta. Það er með ólíkindum hvað hugkvæmnin hefur verið mikil hjá hæstv. fjmrh. við að finna ný svið til þess að leggja á skatta. (Fjmrh.: Er verið að hrósa mér?) Já, ég hrósa hæstv. fjmrh. fyrir hugvit að þessu leyti. En ég hefði kosið að hugvit þessa hæstv. ráðh. hefði beinst í aðrar og þarfari áttir heldur en finna upp nýjar og nýjar leiðir til þess að leggja skatta á samborgara sína.
Ég gat um það áðan, að ríkisvaldið hefði rekstrarafkomu innlánsstofnana alfarið í hendi sér, og ég held að allar líkur séu á því að mismunur innláns- og útlánsvaxta og þjónustugjöld verði áfram ákveðin þannig að eigið fé aukist ekki verulega umfram lágmarksþarfir. Samkv. núgildandi reglum safnast skattfrjáls raunhagnaður fyrir hjá innlánsstofnunum til að þær geti viðhaldið nauðsynlegu eiginfjárhlutfalli. Hagnaður ríkisviðskiptabankanna er alfarið eign ríkisins og gefur því að sjálfsögðu ekki tilefni til aukinnar skattlagningar. Hagnaði sparisjóðanna verður ekki ráðstafað nema til almenningsþarfa, einkahagsmunir koma þar ekki til álita. Samkv. almennum skattalögum sleppa hluthafar hlutafélagabankanna ekki við að greiða tekjuskatt af uppsöfnuðum raunhagnaði bankanna eftir 1978 ef hann kæmi síðar til útborgunar við slit banka.
Það er veruleg ástæða til að leggja á það áherslu, að aukin skattheimta í formi einhvers konar veltuskatts hefði að sjálfsögðu hliðstæð áhrif og tekjuskattur á rekstraröryggi og fjárhagsstyrk innlánsstofnana. Ég held raunar að veltuskattur sé enn þá varhugaverðari að þessu leyti ef hann er lagður á án fulls tillits til rekstrarafkomu og greiðslugetu einstakra stofnana. Stofnun, sem á í rekstrarörðugleikum eða er jafnvel rekin með tapi, þyrfti engu að síður að standa ríkissjóði skil á slíkum skatti. Afleiðingin gæti þess vegna ekki aðeins orðið rýrnun bæði á hlutfallslegri eiginfjárstöðu og raunvirði eigin fjár, heldur gæti í nokkrum tilvikum orðið um neikvæða eiginfjárstöðu að ræða og þar með væri verið að ganga á eignir innstæðueigenda. Ég held því að með slíkri skattheimtu eins og hér er verið að tala um væri vegið alvarlega að rekstraröryggi þessara stofnana og hagsmunum innstæðueigenda teflt í tvísýnu.
Eina röksemdin fyrir þessum skatti, sem,lögð hefur verið fram, er aukin tekjuþörf ríkissjóðs. Það hefur engin röksemd komið fram með þessum skatti í þá átt að hér sé um að ræða lið í einhverjum sérstökum efnahagsaðgerðum, hér sé um að ræða þátt í því að draga úr verðbólgu t. d. Aðalröksemdin og sú eina er óseðjandi tekjuþörf ríkissjóðs. Hæstv. fjmrh. gumar oft af því, að hann hafi getað sléttað reikninga við Seðlabankann, staða ríkissjóðs sé góð og hann hafi getað greitt upp skuldir við Seðlabankann, og honum er hælt stundum í Þjóðviljanum fyrir góða fjármálastjórn. En í hverju liggur þessi góða fjármálastjórn hæstv. fjmrh. Hún liggur í því, að í stað þess að reyna að draga úr útgjöldum, í stað þess að reyna að marka útgjöldum einhvern bás er stöðugt verið að auka tekjur ríkissjóðs með nýjum sköttum. Það liður ekki sá mánuður hér á hv. Alþingi að ekki komi fram frv. um nýja skatta. Það er ekki þess vert að hrósa slíkri fjármálastjórn. Slík fjármálastjórn á ekki hrós skilið. Ég held að engum fjölskylduföður og engri húsmóður yrði hælt fyrir ráðdeildarsemi í rekstri heimilisins ef útgjöldunum væri enginn stakkur skorinn, ef útgjöldin væru stöðugt aukin. Allir vita hvernig slíkt heimili mundi fara að lokum. Á heimili hæstv. fjmrh. gengur þetta þannig að hann eykur stöðugt útgjöldin. Til þess að láta enda ná saman hækkar hann stöðugt skattana frá mánuði til mánaðar og sýnir ótrúlegt hugvit í þeim efnum.
Við, sem skipum stjórnarandstöðu hér á hv. Alþingi, erum andvígir þessum skatti. Við greiðum atkv. gegn honum og þeir, sem skipa meiri hl. fjh.- og viðskn. af hálfu stjórnarandstöðuflokkanna, hafa lagt til að þessu frv. verði vísað til ríkisstj. Við teljum að efnislega sé þetta rangt, þessi skattur sé rangur og þetta mál auk þess afar illa undirbúið. Það er reyndar með ólíkindum, það geðslag sem margir hæstv. ráðherrar sýna hér á Alþingi. Þeir kasta hér inn frumvörpum hverju á eftir öðru, eins og t. d. hæstv. iðnrh., og Alþingi fær þau síðan til meðferðar. Þm. komast fljótt að raun um að undirbúningur er afleitur og Alþingi þarf að gerbreyta þessum málum flestum. Þannig var t. d. með það mál sem við vorum að afgreiða hér í gær, kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði, að það stóð ekki steinn yfir steini í því frv. þegar það var afgreitt hér út úr deildinni.
Frv., sem hér er til meðferðar og hæstv. fjmrh. hefur undirbúið, er líka illa undirbúið. Þeir, sem að samningu þess hafa staðið á ábyrgð hæstv. ráðh., hafa greinilega kastað til þess höndunum eða hafa ekki vitað raunverulega um hvað var verið að fjalla.
Ég vil ítreka það sem ég sagði áðan, að það er augljóst að skattlagning innlánsstofnana eins og sú, sem hér er til meðferðar, hlýtur að koma niður á viðskiptavinum bankanna eða innlánsstofnananna, þ. e. sparifjáreigendum eða lántakendum, sennilega báðum þessum hópum. Að öðrum kosti yrði að skerða eiginfjárstöðu stofnananna og auðvitað kemur það líka niður á þeim sem við þá skipta.
Það hefur komið fram að það er álit bæði Seðlabankans og fulltrúa stofnananna sjálfra að eiginfjárstaða þeirra sé svo veik og horfur um afkomu þeirra svo tvísýnar að ekki megi koma til skerðingar á eiginfjárstöðu innlánsstofnana. Þessi skattlagning hlýtur því annað tveggja að leiða til lækkunar innlánsvaxta eða hækkunar útlánsvaxta frá því sem nú er. Ég hef grun um að niðurstaðan verði sú, að það verði útlánsvextirnir sem verði hækkaðir en ekki innlánsvextirnir. Og þá vitum við hverjir það eru sem þetta þurfa að greiða. Það eru lántakendurnir. Það er almenningur í landinu, sem þarf á lánum að halda, eða fyrirtækin í landinu, sem þurfa á lánum að halda, ýmist til rekstrar eða til uppbyggingar. Ég vil því ítreka þá andstöðu, sem fram hefur komið frá okkur þm. Sjálfstfl. við þetta frv., og ítreka þá afstöðu okkar, að við leggjum til að þessu frv. verði vísað til ríkisstj.