07.05.1982
Neðri deild: 88. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4895 í B-deild Alþingistíðinda. (4666)

Umræður utan dagskrár

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég tók það alveg sérstaklega fram, bæði fyrr í dag og aftur nú, að þessar hækkanir hefðu orðið síðan á árinu 1978, það þurfti ekki að minna mig á það. En að hinu leytinu minnti ég á það og skal ítreka nú, að hækkanir þungaskattsins hafa orðið tíðari síðan, á árunum 1979–1981, heldur en áður þar sem þá voru þessar hækkanir tvívegis á ári. Ég vil einnig minna á það, að enda þótt þungaskatturinn hafi hækkað 1. júní 1981 var hann nær tvöfaldaður nú í byrjun janúarmánaðar. Það munar ekki lítið um skattþynginguna þarna.

Ég get á hinn bóginn ekki fallist á að Alþingi hafi veitt hæstv. fjmrh. óbundnar hendur við ákvörðun þungaskattsins. Ég get ekki fallist á að sá lagaskilningur sé réttur, að með lögum frá 1977 hafi sú viðmiðun verið felld úr gildi, og vil í því sambandi minna á það sem stendur í grg. um kílómetragjaldið svokallaða sem þá var tekið upp í stað þungaskatts, en um það segir svo í greinargerð, með leyfi hæstv. forseta:

„Með þessari grein er leitast við að færa 7. gr. gildandi laga í heldur einfaldari búning án þess að breyta efni hennar að neinu ráði. Rétt er þó að vekja athygli á því ákvæði 2. mgr., að ráðh. geti ákveðið með reglugerð að áfallnar dagsektir innheimtist enda þótt sú athöfn, sem knýja átti fram með dagsektum, hafi síðar verið framkvæmd. Í gildandi lögum er ekki hliðstætt ákvæði og hefur því þótt hæpið vegna fyrri fordæma að innheimta álagðar sektir eftir að bifreið er færð til skoðunar. Er ljóst að dagsektirnar verða gjaldendum ekki sá hvati sem þeim var ætlað til að mæta á réttum tíma til álesturs með bifreiðar sínar, ef gjaldendur geta hvenær sem er firrt sig greiðslu þegar áfallinna sekta með því að láta álestur fara fram.“

Frekari orð eru ekki um þetta höfð og auðvitað útilokað með öllu, ef sú hefði verið ætlun þeirra, sem frv. lögðu fram þá, að slíta tengslin við byggingarvísitölu, að komast svo að orði í grg. að segja að með þessari grein sé leitast við að færa 7. gr. gildandi laga í heldur einfaldari búning án þess að breyta efni hennar að neinu ráði. Auðvitað er það að breyta efni lagagr. að ráði ef í breytingunni á að felast það, að ráðh. séu gefnar frjálsar hendur um ákvörðun skatta. Ég lít svo á að það sé á valdi Alþingis. Alþingi geti ekki framselt framkvæmdavaldinu að leggja á nýja skatta eða hækka þá, slíkt verði ekki gert nema með lögum eða með stoð í lögum. Ef sá er skilningur ráðh., að skírskotunin í lögunum frá 19. des. 1975 til vísitölu byggingarkostnaðar eigi ekki við um bensíngjaldið, get ég alls ekki séð í hvaða lögum hann hefur heimild til þess að hækka þetta gjald. Ég vil þá skora á hann að skýra frá því. Með þessari breytingu frá 1975 féllu niður samsvarandi ákvæði fyrri laga, og það er algerlega útilokað að hægt sé að vitna til þeirra í því sambandi.

Það má vera að sú verði raunin, að flutningsbifreiðastjórar verði að reka sitt mál fyrir dómstólunum í sambandi við þungskattinn, og þá er að sæta því. En ég vil líka minna á það, að óhæfileg skattheimta á þungaflutning vöruflutningabifreiða með nauðsynjar út á land hækkar flutningskostnaðinn á nauðsynjavörum til almennings úti í landsbyggðinni og hækkar rekstrarkostnað þeirra fyrirtækja sem þar eru. Er þó nóg óhagræði að flutningskostnaðinum fyrir, ekki síst þegar haft er í huga að almenningur þar verður í mörgum tilvikum að greiða söluskatt af þessum flutningskostnaði sem fólkið hér á Reykjavíkursvæðinu losnar við.