07.05.1982
Neðri deild: 88. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4910 í B-deild Alþingistíðinda. (4686)

30. mál, lyfjadreifing

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Mér finnst þessar ábendingar hv. 1. þm. Vestf. skynsamlegar. Ég hefði þurft að fá ráðrúm til þess að koma fram till. í sambandi við breytingu á 44. gr. og vil fara fram á það við forseta, að hann hinkraði í 5 mínútur eða svo með frágang málsins meðan ég væri að ganga frá þeirri brtt.