07.05.1982
Neðri deild: 89. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4913 í B-deild Alþingistíðinda. (4696)
242. mál, orlof
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Það litla frv., sem hér um ræðir, olli nokkrum vandræðum núna á allra síðustu dögum þingsins eftir að Ed. hafði gengið frá því og samþykkt það shlj. Ég vil aðeins undirstrika rækilega um hvað þetta frv. snýst.
Í orlofslögum, eins og þau eru frá árinu 1971, er kveðið svo á að launþegi eigi að taka orlof frá 2. maí til 15. sept. og að öðrum kosti gilda sérstakar reglur. Síðan er kveðið á um samráð í þessari lagagrein. Hins vegar er það svo, — það gildir víðar en um lög, t. d. um stjórnarsáttmála og fleiri slíka pappíra, — að orðið samráð er merkingarlítið, ef ekki merkingarlaust. Það hefur tapað allri merkingu. Þetta frv. gekk út á það, að atvinnuveitandi geti ekki skipað launamanni gegn vilja hans að taka orlof á tímanum 2. maí til 31. maí og aftur á tímanum 1. sept. til 15. sept.
Við undirbúning þessa frv. var haft samband við fjölmarga forustumenn í launþegafélögum og fleiri sem þekkja til. Sannleikurinn er sá, að þetta horfir ekki til vandræða nema á örfáum stærri vinnustöðum.
Menn hafa það gegn þessu frv., að hér sé um að ræða inngrip í frjálsa samninga, eins og það er orðað. Ég held að menn noti þessa röksemdafærslu þegar hún þjónar tímabundnum hagsmunum þeirra, því að vitaskuld eru mjög oft óljós mörk hver af réttindamálum fólks eru ákvörðuð í löggjöf og hver eru ákveðin í samningum. T. d. um þessi mál, orlofsmál yfirleitt, eru rammalög, og það sér hver sig í því að vera skipað að taka sitt þriggja vikna orlof á þessum tímum, í maí eða september, og það er ótrúlegt að um svona mál þurfi að koma upp ágreiningur hér á árinu 1982, þetta litla réttindamál er efnislega svo sjálfsagt.
Það, sem gerðist, hygg ég, var að Vinnuveitendasambandið gaf hv. 10. þm. Reykv. bendingu, og það er orsök þessarar afgreiðslu. (Gripið fram í). Það er kapítuli út af fyrir sig með afstöðu hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar í þessu máli. Á fundi nefndarinnar, — það er þess vegna sem ég segi þetta, — var kvaddur fulltrúi frá Vinnuveitendasambandinu, en enginn frá Alþýðusambandinu. Það er þess vegna sem ég segi þetta og segi það í fullum rétti.
Málið er það, að hér er um að ræða minni háttar réttindamál og þetta réttindamál ætti efnislega að vera sjálfsagt, að það sé ekki hægt að skipa einstaklingi gegn vilja hans að taka út sitt sumarleyfi í maí og í september. Það er auðvitað rétt að taka undir það sem almenna meginlínu, að samningar um kaup og kjör og samningar yfirleitt eigi að vera sem frjálsastir. Engu að síður höfum við löggjafarvald í þessu landi og orlofslög eru ákveðin með lögum, 8 stunda vinnudagur er löggjafaratriði, svo að það væri ekki brot á neinum meginreglum þó svo þetta frv. yrði samþykkt.
Það er rétt, sem fram kom hjá hv. 10. þm. Reykv., að það er kapítuli út af fyrir sig hvernig stendur á afstöðu hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar í þessu máli. Um það vil ég svo sem ekki vera að hafa mörg orð á þessum lokadögum. En því miður er afgreiðslan á þessu litla máli talandi tákn um það, hvernig menn ganga hér leynt og ljóst erinda hagsmunasamtaka þegar það á síst við, og það er það sem gerst hefur í þessu máli, því er nú verr og miður.