07.05.1982
Neðri deild: 89. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4921 í B-deild Alþingistíðinda. (4710)

Umræður utan dagskrár

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég vil bera fram fsp. Hér var umr. í dag um 242. mál þingsins, um orlof. Mér sýnist vera fallin niður afgreiðsla á því máli. Ég vil óska eftir að það mál hljóti þinglega meðferð hér í hv. deild. Ef ekki verður við því orðið hlýt ég að lýsa þeirri afstöðu minni, sem ég hefði annars gert í nafnakalli sem ég hefði óskað eftir, að ég tel mig fremur vera málsvara verkalýðshreyfingarinnar hér á hinu háa Alþingi en Vinnuveitendasambandsins og vil því eindregið fá tækifæri til þess að greiða atkv. gegn því, að þetta mál verði tekið út af dagskrá.