07.05.1982
Neðri deild: 89. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4922 í B-deild Alþingistíðinda. (4713)
Umræður utan dagskrár
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Þetta voru furðulegar aths. sem voru fluttar hér síðast. En látum það allt saman eiga sig. En mér er óskiljanlegt af hverju þetta mál getur ekki fengið þá þinglegu meðferð sem því ber. Ég trúi því ekki, að menn fari að flytja hér langar ræður, og mál eru ekki drepin með því að halda um þau lengri eða styttri ræður. Mál eru drepin í atkvgr. ef þingið svo kýs. Um það hlýtur hv. 10 þm. Reykv. að vera fullkunnugt. Það er í valdi forseta þessarar deildar að leyfa þessu máli að klárast og koma hér til atkv. Ég get vel skilið að síðasti ræðumaður, sem hér talaði, kjósi heldur þessa málsmeðferð og hóti hér málþófi, eins og hann raunverulega var að gera. En ég geri, herra forseti, eins og hv. þm. Guðrún Helgadóttir kröfu um að þetta mál fái hér þinglega meðferð.
Ég endurtek þá kröfu mína að svo verði með þetta mál farið.