11.11.1981
Efri deild: 11. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í B-deild Alþingistíðinda. (472)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Helgi Seljan:

Herra forseti. Það eru aðeins tvær greinar þessa frv. sem ég vil vík ja hér að, þ. e. 18. gr., sem snertir framlög til Erfðafjársjóðs, og hins vegar 20. gr., sem snertir framlög til Framkvæmdasjóðs öryrkja og þroskaheftra.

Hæstv. fjmrh. kom inn á það í máli sínu áðan réttilega, að nefnd hefði verið starfandi frá öllum stjórnmálaflokkum sem átti að endurskoða uppbyggingu sjóðakerfisins í landinu og framlög ríkisins til sjóðanna alveg sérstaklega. Ég átti sæti í þessari nefnd. Aðrir nm. voru Halldór E. Sigurðsson fyrrv. fjmrh. og tveir aðrir fyrrv. fjmrh. hv. þm. Matthías A. Mathiesen og hv. þm. Sighvatur Björgvinsson.

Það er rétt, sem fram kom hjá hæstv. ráðh., að um ýmis atriði höfðum við nokkra fyrirvara. Fyrirvarar mínir voru alveg sérstaklega varðandi þessa tvo. þætti, annars vegar Erfðafjársjóðinn og hins vegar Framkvæmdasjóð öryrkja og þroskaheftra, og ég lýsti reyndar yfir að ég væri algerlega ósammála því sem kom fram í nál. og nm. í meiri hl. virtust vera ásáttir um hvernig staðið yrði að þeim málum áfram.

Sjóðirnir eru yfirleitt þannig upp byggðir nú að þeir eru með fulla verðtryggingu á sínum lánum og byggja sig þess vegna upp af eigin fjármagni smám saman. Þar af leiðir að auðvitað voru allir nm. sammála um að það væri ekki þörf á framlögum ríkisins til þeirra í jafnríkum mæli og verið hefði. Þessir tveir sjóðir hafa hins vegar algera sérstöðu í þessum efnum. Annar sjóðurinn, þ. e. Framkvæmdasjóður öryrkja og þroskaheftra, veitir eingöngu styrki til framkvæmda og Erfðafjársjóður gegnum Endurhæfingarráð veitir styrki að 2/3 og lán að 1/3 og þau lán eru með mjög lágum vöxtum. Þessir sjóðir báðir hafa því algera sérstöðu varðandi þetta.

Ég held að við þurfum líka að huga sérstaklega að þessum tveim sjóðum nú af þeirri ástæðu að nú er ár fatlaðra, og við getum líka hugað að þessum sjóðum vegna þess að á næstunni hyggst hæstv. ríkisstj. leggja fram frv. til l. um heildarlöggjöf varðandi öll málefni fatlaðra þar sem gert er ráð fyrir mjög auknum verkefnum á öllum sviðum í málefnum hinna fötluðu, og þá skiptir auðvitað mjög miklu að tekjustofnar til þeirra framkvæmda, til þessa rekstrar og annarra þeirra hluta, sem þar er til ætlast, verði sem best tryggðir.

Ég vil nú við þessa umr. beina því til hv. nefndar, sem fær þetta mál til meðferðar, alveg sérstaklega að hún athugi framlögin til þessara tveggja sjóða. Ég geri þetta m. a. vegna þess, að ég sé að í tekjuhliðinni varðandi erfðafjárskattinn eða Erfðafjársjóðinn er reiknað með innheimtu erfðafjárskatts upp á 11.9 millj. Satt að segja verð ég að telja það mjög ótrúlega tölu og vil gjarnan að hún verði athuguð vegna þess að þar er um 70% hækkun að ræða milli ára, og ég held, miðað við innheimtu það sem af er þessu ári, að ekkert bendi til, að þessi tekjutala sé raunhæf, og þess vegna sé rétt að kanna það mjög vel. En það stingur þá auðvitað í augu og er ástæðulaust að vera með þessa tekjutölu svo háa þegar aftur Erfðafjársjóður fær í sinn hlut 9 millj. og skerðingin af innheimtum tekjum af erfðafjárskatti er þá orðin 2.9 millj. á pappírnum þó að þær kunni að verða ekki neina 1 millj. eða kannske ekki neitt miðað við innheimtu næsta árs.

Ég vil biðja hv. nefnd um að athuga sérstaklega hver tekjuhlið þessa sjóðs er, til þess að það verði komist sem næst hinu rétta, og ef þarna er um rétta tölu að ræða í tekjuhliðinni eða ekki mjög ranga — skulum við segja, hún er örugglega eitthvað röng, þá að athuga stöðu Erfðafjársjóðs með tilliti til þess. Þetta á auðvitað einnig við varðandi fjvn.

Varðandi Framkvæmdasjóð öryrkja og þroskaheftra er það rétt, að þar er reiknað með hækkunartölu 33% milli ára, og kann að vera að vel megi við það una. Ég vil hins vegar að hv. nefnd athugi það mjög vel, að með þeirri tölu, sem þar er, þ. e. 33% hækkuninni, sé að fullu staðið við það sem lögin segja um verðtryggingu milli ára. Það kann vel að vera að það sé rétt, ég er ekki alveg öruggur á því, og ég legg þunga áherslu á að við þau verðtryggingarákvæði, sem felast í lögunum um Framkvæmdasjóð öryrkja og þroskaheftra, sé staðið, og það kann að vera gert með þessum 33%.

Ég vildi víkja að þessu hér vegna þess að við fáum innan skamms til meðferðar í þinginu án efa frv. frá hæstv. ríkisstj. um heildarlöggjöf fyrir fatlaða, en sú löggjöf leggur okkur á herðar miklu meiri skyldur en áður hefur verið, góðu heilli í þágu fatlaðra. Þá þurfum við að gæta þess, að við verðum ekki við afgreiðslu núna á fjárl. og lánsfjárlögum í of miklu ósamræmi við það sem við ætlum svo að fara að, samþykkja nú eftir áramótin varðandi heildarlöggjöf í þessu máli.