11.11.1981
Neðri deild: 11. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 649 í B-deild Alþingistíðinda. (494)

72. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Eins og kom fram hjá hæstv. fjmrh. er hér um mjög yfirgripsmikið og vandasamt mál að ræða. Hæstv. fjmrh. skýrði frá því áðan, að hann og ríkisstj. hefðu sent þetta frv. til skoðunar hjá ýmsum aðilum í þjóðfélaginu. Hæstv. ráðh. láðist að nefna þá, en ég veit að það er Samband ísl. sveitarfélaga og hugsanlega fleiri. Hins vegar vil ég taka það fram, að stjórnarandstæðingar, a. m. k. minn flokkur, voru ekki í þeim hóp sem fékk þetta frv. til skoðunar. Við höfum því aðeins fengið að sjá það um nokkurra daga skeið og erum að sjálfsögðu ekki við þessar aðstæður reiðubúnir að tjá skoðun okkar á öllum einstökum efnisatriðum frv. Við munum gera það eftir rækilega athugun og eftir að við höfum fengið ýmsum spurningum svarað sem vakna við lestur frv. Hins vegar vil ég taka sérstaklega fram, að Alþfl. er mjög fylgjandi samtímagreiðslu opinberra skatta. Er það raunar eitt af stefnuskráratriðum Alþfl. Hæstv. fjmrh. má því vænta þess, að þm. Alþfl. taki mjög jákvætt undir það meginatriði í frv. að komið verði á samtímagreiðslu opinberra gjalda.

Að vísu má segja að um 80–90% skattgreiðenda í landinu séu komnir á nokkurs konar staðgreiðslu með þeirri tilhögun sem verið hefur um fyrirframgreiðslu opinberra gjalda. Er þá fyrst og fremst átt við þá launþega sem hafa nokkuð jafnar tekjur frá ári til árs, en ekki sveiflukenndar tekjur. Vandamálið er hins vegar hjá þeim 10–15% skattþegna sem annars þegar hafa mjög sveiflukenndar tekjur, eins og t. d. sjómenn og ráðh. Fyrir slíka öndvegismenn getur þetta fyrirframgreiðslukerfi ekki komið í stað staðgreiðslu né heldur fyrir menn sem eru að láta af störfum fyrir aldurs sakir.

Þá er einnig annað atriði sem ekki hefur verið bent á, en ég tel rétt að benda á sem rökstuðning fyrir nauðsyn þess, að staðgreiðslu opinberra gjalda verði komið á fót. Raunar má segja að staðgreiðsla opinberra gjalda sé orðin algjör forsenda þess, að nokkur ríkisstjórn geti náð viðunandi árangri í viðnámi gegn verðbólgu. Svo tekið sé eitt mjög ljóst dæmi um þetta: Í fjárlagafrv. hæstv. ríkisstj. kemur fram að hæstv. ríkisstj. gerir ráð fyrir að skattbyrði, þ. e. álagðir skattar á tekjur fyrra árs, aukist a. m. k. mjög lítið á næsta ári. Það er gert ráð fyrir í fjárlagafrv. að mismunurinn á brúttó-álagningartölu og frádráttarliðum, sem sé nettó-álagningartala tekjuskatta, hækki um 52% á næsta ári á tekjur yfirstandandi árs, sem eru 50% hærri en þær voru á liðnu ári. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir í frv. að tekjur í landinu hækki almennt á næsta ári um nema 33%, m. ö. o.: að verðbólguhraðinn og launabreytingar samfara því fari niður í 33%. Þetta þýðir það, að þó ekki sé um skattbyrðaraukningu að ræða, þegar litið er á álagningu skatta af tekjum yfirstandandi árs, yrði um mjög aukna greiðslubyrði fólks að ræða í tekjuskatti þegar tekjurnar hækka aðeins um 33%, en skattgjöld hækka hins vegar um 50%. Þetta mundi þýða að ef ætti að ná eins verulegum árangri í viðnámi gegn verðbólgu og gert er ráð fyrir í fjárlagafrv. mundu ráðstöfunartekjur tekjuskattsgreiðenda lækka stórkostlega, jafnvel þó að skattvísitala fylgdi þróun tekna á milli ára. Þetta eitt út af fyrir sig sýnir okkur að sé ekki komið á fót staðgreiðslukerfi skatta er raunar næstum ógjörningur að ná mjög verulegum árangri í lækkun verðbólgu milli ára, þar sem slík lækkun verðbólgu milli ára mundi koma fram sem mjög veruleg skattbyrðaraukning og lækkun ráðstöfunartekna hjá fjölskyldum ef ekki fylgdi í kjölfarið mjög veruleg skattalækkun. Þetta er ein meginástæðan fyrir því, að nauðsynlegt er að koma á staðgreiðslukerfi, ekki bara sem lið í baráttunni fyrir réttlátara skattakerfi, heldur er það ekki síður nauðsynleg forsenda fyrir því, að menn geti náð árangri í verðbólguslagnum án þess að ráðstöfunartekjur íslenskra launþegaheimila séu af þeim sökum mjög verulega skertar.

Hins vegar er rétt hjá hæstv. ráðh. að ýmis atriði verða menn að horfa sérstaklega á varðandi framkvæmd staðgreiðslukerfisins. Menn verða t. d. að gefa því mjög gaum, að það er ekki sama fyrir greiðendur tekjuskatta þegar skattprósenta er ákveðin, hvort um er að ræða skattprósentu, sem leggst á tekjurnar sem við öfluðum í fyrra, eða hvort um er að ræða skattprósentu, sem leggst á tekjur sem aflað er jafnharðan. Í 50% verðbólgu munar mjög verulega um það t. d. hvort lagður er á tekjuskattur, sem nemur 41% af tekjum sem aflað var í fyrra, eða hvort lagður er á samtímatekjuskattur sem nemur 41% af tekjum jafnóðum og þeirra er aflað. Það kemur ekki fram í þessu frv., það verður síðari tíma ákvörðun, hvernig þessum álagningarprósentum verður breytt, ef staðgreiðsla verður tekin upp. Ég vara mjög alvarlega við því, að menn noti það tækifæri, sem breytingin vissulega gefur, til að leggja á mun þyngri skatta eftir staðgreiðsluna en voru áður en til staðgreiðslunnar kom, jafnvel þó að látið sé í veðri vaka að sjálf álagningarprósentan sé lækkuð.

Í öðru lagi ber að skoða það sérstaklega, þegar framkvæmd staðgreiðslukerfisins er afráðin, að það getur skapað ákveðnum aðilum í þjóðfélaginu nokkur vandkvæði, t. d. þeim hópum, eins og námsmönnum og eldra fólki, sem vinna aðeins hluta úr ári. Ég fæ ekki betur séð, með því að skoða framkvæmd frv. þess sem hér liggur fyrir en að ætla verði að þetta fólk, t. d. námsfólk, sem stundar atvinnu yfir sumarmánuði, eða eldra fólk, sem vinnur hluta úr ári, verði að greiða sömu innheimtuprósentu og aðrir tekjuskattsgreiðendur af tekjum sínum, svipað og þetta fólk hefði þær tekjur, sem það hefur, alla mánuði ársins, en fengi síðan væntanlega endurgreiðslu í árslok. Það þarf náttúrlega ekki að segja mönnum hvílíkt áfall það gæti orðið fyrir gamalt fólk og námsmenn, sem vinna hluta úr ári, að þurfa að greiða tekjuskatt jafnharðan af tekjum sínum líkt og það hefði þessar tekjur 12 mánuði á ári í stað tveggja, þriggja eða fjögurra og fá svo ekki endurgreiðslu fyrr en í árslok. Þetta framkvæmdaatriði verður að skoða sérstaklega.

Þá er í þriðja lagi nokkur hætta á alverulega auknum kostnaði og aukinni skriffinnsku við staðgreiðslukerfi, en það er rétt hjá hæstv. fjmrh. að í það á ekki að horfa ef um góða framkvæmd er að ræða. Svo mikið gagn getur staðgreiðslukerfi skatta gert öllum gjaldþegnum að kostnaðaraukinn, sem hlýst af því, er smáræði samanborið við þann hag sem gjaldendur gætu af því haft ef framkvæmdin er rétt.

Í fjórða lagi megum við ekki heldur horfa fram hjá því, að sá er munur á staðgreiðslukerfi og eftirágreiðslukerfi, eins og við erum með nú, að frá staðgreiðslukerfinu verður ekki horfið. Þegar menn einu sinni hafa tekið staðgreiðslukerfið upp verður því ekki breytt aftur í eftirágreiðslukerfi. Hræddur er ég um að hæstv. fjmrh. mundi ekki vera feginn því að þurfa að starfa eitt ár með ríkissjóð án þess að hafa tekjur af tekjuskatti sem þá mundi verða. Þess vegna og einmitt þess vegna ber að vanda mjög til þess verks sem þessi breyting er.

Að sjálfsögðu er ekki hægt að sniðganga alla þá vankanta sem ég hef hér lýst, en menn verða að leggja sig fram um að reyna að sjá við þeim og reyna að sniða eins mikið af þeim vanköntum og framast er unnt.

Þá vil ég einnig vek ja athygli í sambandi við þetta frv. á örfáum atriðum og koma með örfáar spurningar til hæstv. fjmrh. varðandi þau. Ég fæ t. d. ekki séð af frv. annað en að gert sé ráð fyrir að þar sem ekki gildi sömu reglur um skattgreiðslur einstaklinga og félaga, — þá á ég við hvenær þær gjaldfalla, tekjuskattar einstaklinga verða staðgreiddir, en félaga ekki — þá verði skattprósentur félaga allt aðrar en skattprósentur einstaklinga þar sem annars vegar er um að ræða eftirágreidda skatta hjá félögum og hins vegar um að ræða staðgreidda skatta h já einstaklingunum. Ég vildi gjarnan fá upplýst hjá hæstv. fjmrh. hvort það er ekki réttur skilningur.

Í öðru lagi langar mig til að spyrjast fyrir um það hjá hæstv. fjmrh., sem kom raunar fram í máli mínu áðan, hvort það sé ekki einnig réttur skilningur hjá mér, að eins og frá frv. er gengið sé raunar gert ráð fyrir því, eins og kemur fram á bls. 22, að fólk, sem vinnur aðeins hluta úr ári, svo sem nemendur í skólum og gamalt fólk, þurfi að staðgreiða af þessum launum sínum tekjuskatt með svipaðri álagningarprósentu og þetta fólk hefði þessar tekjur alla mánuði ársins, en fengi síðan ekki endurgreiddan þennan tekjuskatt sinn fyrr en eftir álagningu að árinu loknu, þegar í ljós hefði komið að þetta fólk ætti vegna lágra heildartekna yfir árið engan tekjuskatt að greiða. Vil ég gjarnan spyrja hæstv. fjmrh. að því, hvernig hann hugsi sér að tryggja þessu fólki sanngjarna endurgreiðslu á ofteknum sköttum í 50–60% verðbólgu.

Í þriðja lagi langar mig til að spyrja hæstv. fjmrh. varðandi þetta: Hér er gert ráð fyrir að bregða nokkuð út af þeim vinnubrögðum sem hafa viðgengist við innheimtu tekjuskatta. Hingað til hefur það verið svo, eins og menn vita, að skattstjórar leggja þessa skatta á og senda síðan atvinnurekendum, sem hafa viðkomandi launþega í þjónustu sinni, skrá yfir álagninguna og samantekt um hvað atvinnurekendurnir eiga að halda eftir miklu af launum launþega í hverjum greiðslumánuði eða hverri greiðsluviku um sig, og síðan ganga skattyfirvöld eftir því að atvinnurekendur skili þessum greiðslum. Nú virðist mér að gerð sé tillaga um að atvinnurekendurnir gerist í senn álagningaraðili og innheimtuaðill, þannig að viðkomandi launþegar framvísi skattkortum til atvinnurekenda sem síðan fá í hendur sérstakar álagningartöflur. Álagningin, sem áður fór fram hjá skattayfirvöldum, fer fram milli launþegans og atvinnuveitandans, og síðan innheimtir atvinnurekandinn og gerir skil til ríkissjóðs á þeirri álagningu sem þannig hefur farið fram. Nú eru atvinnurekendur þegar farnir að innheimta mjög verulega af tekjum ríkissjóðs þar sem er söluskatturinn, og þarf ekki langt mál um það að hafa að sú söluskattsinnheimta er farin að skipa mjög verulegu máli í tekjum allra atvinnufyrirtækja þar sem hér er um að ræða yfir 20% af öllu innkomnu fé. Ef til viðbótar bætist nú það, að atvinnurekandinn á ekki aðeins að innheimta einnig tekjuskatta af starfsfólki sínu samkv. álagningu, sem fram hefur farið hjá skattstjóra, heldur einnig að gerast eins konar álagningaraðili, er þá ekki hætt við því, án þess að nokkuð sé um það fullyrt, að það sé orðið sameiginlegt hagsmunamál launþegans annars vegar og innheimtuaðilans hins vegar, sem raunar eiga sameiginlega að leggja á nokkurs konar bráðabirgðaskatt, að hluti af þeim launum, sem greidd eru, komi aldrei fram við álagninguna? Er ekki meiri hætta á að þetta geti gerst samkv. þessu kerfi en því sem við höfum nú?

Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að fara lengra út í þessa sálma. Ég vænti þess að fá svar við þessum spurningum og ýmsum fleiri sem koma upp varðandi framkvæmdaatriðin sjálf, en tek enn og aftur fram, að enda þótt ég spyrji um slík atriði ber ekki að skilja það þannig, síður en svo, að þar með sé verið að hafa eitthvað á móti meginatriði málsins, að staðgreiðslunni sé komið á. Ég og minn flokkur erum mjög eindregið fylgjandi því og viljum leggja okkur fram um að sú afgreiðsla geti orðið, en allir þm. hljóta jafnframt að vera sammála um að aðferðirnar, sem beitt verður við innheimtu gjaldanna og við álagningu staðgreiðslu opinberra gjalda verði vandaðar eftir föngum. Ég verð að segja eins og er, að eftir að hafa frétt af því, að verkalýðshreyfingin hygðist gera kröfuna um staðgreiðslukerfi opinberra gjalda að einni af fjölmörgum kröfum sínum á hendur ríkisvaldinu í komandi kjarasamningum, þá kom mér það nokkuð á óvart og það veldur því, að menn hljóta að athuga þetta mál mjög vandlega, að verkalýðshreyfingin skyldi taka þá ákvörðun eftir að hafa séð frv. þetta, eftir því sem mér skilst, að strika þá kröfugerð út vegna þess, að því er mér er sagt, að verkalýðshreyfingunni hafi ekki litist meira en svo á t. d. innheimtu- og álagningaraðferðirnar sem lagt er til í frv. að beitt verði.