12.11.1981
Sameinað þing: 18. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 694 í B-deild Alþingistíðinda. (504)

Umræður utan dagskrár

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Ég vil mælast til þess, áður en ég hef mál mitt hér, að forseti geri enn eina tilraun til að kveðja þm. til setu í þessum virðulega sal. (Forseti: Sjálfsagt að verða við því.)

Herra forseti. Það er greinilegt að þm. Alþb. hefur þótt mikið liggja við í dag. Þeir röðuðu sér hér á mælendaskrá og töluðu lungann úr deginum, þar af einn. þeirra, hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, í eina og hálfa klukkustund og var innihald þeirrar ræðu ekki alveg í samræmi við lengdina. Nú hefur mikið þótt liggja við. Það hefur litið af þeirra hálfu verið talað um það mál sem var megintilefni þess, að þessi umr. utan dagskrár var vakin. Um hvað hefur verið talað? Það hefur verið talað um flest annað.

Hæstv. félmrh., formaður Alþb., kom hér í ræðustól og gerði hvað hann gat til að þvo af sínum flokki stimpil allra samskipta við Sovétríkin og ríki Austur-Evrópu. Það var hálfgerður kattarþvottur, leyfi ég mér að segja. Ólíkt hafast þeir að núv. formaður Alþb. og forveri hans í því embætti, Lúðvík Jósepsson, sem s. l. sunnudag, 8. nóv., var aðalræðumaður á fagnaði íslenska sovétvinafélagsins í Þjóðleikhúskjallaranum og hefur þar væntanlega og sjálfsagt beðist afsökunar á ýmsu af því sem flokksbræður hans undanfarna daga hafa látið eftir sér hafa í Þjóðviljanum um atburðina í Svíþjóð, — í sænska skerjagarðinum. Ólíkt hafast þeir að núv. og fyrrv. formaður þessa flokks.

Það er annars vegar athyglisvert hversu geysilega þunga áherslu núv. formaður Alþb. lagði á að þvo sovétstimpilinn af Alþb. Það er athyglisvert þegar haft er í huga hversu margir af forustumönnum þessa flokks eru menntaðir í Austur-Evrópu, ýmist í Sovétríkjunum eða Austur-Þýskalandi, fyrir tilstilli, atbeina og tilstuðlan kommúnistaflokka þessara ríkja. Það er gott og blessað þegar hæstv. heilbrmrh. Svavar Gestsson kemur í þennan ræðustól og reynir að þvo þennan stimpil af sér og sínum flokki, en það tekst ekki. Ýmislegt fleira mætti segja í sambandi við ræðu þá sem hæstv. félmrh. flutti áðan, og gefst mér væntanlega tilefni til að víkja að því síðar.

Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson talaði í einn og hálfan klukkutíma áðan. Um hvað talaði hann? Hann talaði um Menningarstofnun Bandaríkjanna nær allan tímann. Undir lokin vék hann talinu að friðarhreyfingum í Evrópu. Það er greinilegt að talsmenn Alþb. hver á fætur öðrum gera það sem þeir mega — og það gerði hv. þm. Guðrún Helgadóttir hér líka s. l. þriðjudag, — til að beina athyglinni frá þeirri umræðu sem spunnist hefur eftir að Sovétríkin sendu kjarnorkuvopnaðan kafbát til Svíþjóðar, sem strandaði þar svo sem frægt er orðið, og eftir að einn af framámönnum friðarhreyfingarinnar í Danmörku hefur orðið uppvís að því að þiggja fégjafir frá Sovétríkjunum. Nú er allt gert sem unnt er til að beina athyglinni frá þessu. Það er talað um stórveldin. Nú er alltaf talað um stórveldin. Nú hentar ekki lengur að tala bara um Bandaríkin, eins og gert hefur verið til þessa. Nú er alltaf talað um stórveldin og nú er talað um „orðasprengjur“ Bandaríkjamanna í Þjóðviljanum, málgagni Alþb. Orðasprengjur! Þær eru nú sem betur fer ekki mjög hættulegar. Það eru hinar, eins og sovéski kafbáturinn var með sem strandaði við strönd Svíþjóðar, sem eru hættulegar. Og hvað gerði hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson svo? Jú, hann kemur hér með afar dramatískum tilburðum, beitir því sem ég vildi kalla ódýr „áróðursbrögð“, svo ég noti hans eigin orð frá því áðan, og veifar skjölum. Hvaða skjöl skyldu það nú vera? Jú, hann var svo vinsamlegur að afhenda þm. eintak af þessum skjölum. Oft kemur góður þá getið er o. s. frv. Ég var að ræða um það þegar hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson veifaði skjölum nú þegar hann gekk í salinn. Hvers konar skjöl eru það og hvers konar ódýr „áróðursbrögð“ eru það, svo að notuð séu hans eigin orð, sem eru iðkuð úr þessum ræðustól? Við skulum huga að því aðeins nánar.

Það skjal, sem hér er veifað, er svo merkilegt að það er ekki einu sinni merkt trúnaðarmál. Er þó vitað að mörg ríki og ekki síst stórveldin hafa það fyrir sið að merkja velflest skjöl trúnaðarmál, jafnvel þó ekki sé minnsta ástæða til þess. Það skjal, sem hv. þm. veifaði hér hvað mest, er greinargerð og rökstuðningur með fjárveitingabeiðnum. Þetta er svipað og fjvn. fær frá hreppsnefndunum á Hofsósi og Suðureyri og víðar þegar þessar sveitarstjórnir senda fjvn. sín erindi. Þetta er plaggið. Það er kannske ástæða til að víkja að ýmsu því í þessu skjali sem hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson sá ekki ástæðu til að þýða eða geta um í ræðu sinni.

Auðvitað kemur engum á óvart að Menningarstofnun Bandaríkjanna, en frá henni mun þetta plagg vera runnið og er raunar þriggja ára gamalt, sé hér með margvíslega starfsemi. Það hafa allir vitað. Sú starfsemi fer fram fyrir opnum tjöldum. Þegar þessi stofnun er að senda rökstuðning með sínum fjárveitingabeiðnum gerir hún auðvitað ekki minna úr sinni starfsemi en efni standa til, eykur þar áreiðanlega heldur við. (ÓRG: Hefur þm. farið í boðsferð til Bandaríkjanna?) Þm. hefur ferðast til Bandaríkjanna, bæði á eigin vegum og í boði þarlendra stjórnvalda, og telur sig töluvert fróðari eftir þá ferð. Ég átti þess kost m. a. að ræða við „kollega“ hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar, háskólaprófessor, hagfræðinga og stjórnmálafræðinga. En við skulum ræða um þetta, hv. þm., með venjulegum þinglegum hætti hér. (Gripið fram í.) Ég var að segja að ég hef farið ferð í baði bandarískra stjórnvalda. Það er mér engin launung. Ég skammast mín síður en svo fyrir það og tel mig töluvert fróðari eftir þá ferð. Ég geri ráð fyrir að hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, sem er ötull ferðamaður eins og alþjóð veit, hafi aldrei farið í boði eins eða neins til útlanda. Það væri fróðlegt að fá rifjað upp hver hefur kostað hans friðarferðir út um víða veröld. Hann skýrir kannske frá því hér í ræðustól. Það væri vissulega fróðlegt. Það væri gaman að heyra svör við því, heyra hann telja upp hverjir hafa staðið straum af hans mörgu ferðalögum víðs vegar um veröldina.

En við skulum víkja talinu að ýmsu úr þessari leyniskýrslu sem hann var búinn að boða fréttamönnum, að mér skilst, að hann mundi veifa hér í dag og að þeir skyldu vera vakandi fyrir stórfréttum úr þessum ræðustól. Við skulum sjá hvað segir hér. Það segir á bls. 7 í þessu skjali að auðvelda skuli Bandaríkjamönnum að meta menningararfleifð Íslendinga með því að styrkja samskipti safna, með því að styrkja það að söfn skiptist á sýningargripum. Þetta er eitt af því sem upp er talið hér. Og það er hægt að fletta þessu áfram: Auðvelda á Listasafni Íslands að senda málverk á sýningu til Minnesotalistasafnsins. — Þetta er náttúrlega þjóðhættuleg starfsemi, það gefur auga leið. síðar segir á bls. 8: Menningarstofnunin óskar eftir fjárveitingum til þess að geta keypt bækur í bókasafn stofnunarinnar. — Ég skil vel að hv. þm. vilji ekki hlusta á þessa upptalningu, enda taldi hann ekki við hæfi að lesa þetta þegar hann var að veifa þessu;plaggi áðan. Þetta var ekki í þeirri þýðingu sem hann las fyrir þm. Það er talað hér um að beina bókakaupum bókasafnsins í þá átt að það geti betur komið íslenskum háskólastúdentum að gagni, miðað við þá bókalista sem háskóladeildir gefa út fyrir stúdenta, þannig að þeir eigi kost á því að afla sér þessara bóka m. a. þar.

Svona mætti áfram telja. En þetta er auðvitað hreint aukaatriði í þessu máli þó svo að hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson hafi kosið að setja hér á svið eins konar áróðursleiksýningu og veifa með dramatískum tilburðum þessu skelfilega ómerkilega plaggi í rauninni, sem er ekkert annað en rökstuðningur með fjárveitingabeiðni fyrir starfsemi sem allir vita að á sér stað.

En hann talaði um að stórveldin, og þá hentaði honum að nota fleirtöluna, væru hér með margs konar starfsemi af þessu tagi. Við skulum aðeins huga nánar að því. Ef þessi starfsemi Bandaríkjanna er svona þjóðhættuleg, sem ég hef minnst hér á nokkrum orðum og snýr einkum að ýmiss konar viðleitni á sviði menningar- og menntamála, m. a. að beita sér fyrir aðstoð við að bæta enskukennslu hér, hvað þá um starfsemi sem hv. þm. gat engum skýrslum veifað hér um og fram fer á vegum sovéska sendiráðsins hér? Við skulum aðeins huga að því.

Þá kemur kannske fyrst til að athuga hve mikinn mannafla hin erlendu sendiráð hafa til að sinna þessari starfsemi sem er auðvitað viðurkenndur hluti af starfsemi sendiráða hvar sem er og engin ný bóla. Jú, við skulum líta á bandaríska sendiráðið sem hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni varð svo tíðrætt um. Þær tölur, sem ég nefni hér, eru fengnar frá utanrrn. í morgun.

Á vegum bandaríska sendiráðsins eru hér 7 svokallaðir „diplómatar“, 4 eiginkonur þeirra, 12 aðrir starfsmenn og þar af eru tveir með maka. Þetta eru sem sagt 23 manns. En hvað með sovéska sendiráðið? Það eru 88 sovéskir ríkisborgarar á vegum sendiráðsins hér á Íslandi. Þar af eru 15 skráðir „diplómatar“, meira en helmingi fleiri en í nokkru öðru sendiráði. Væntanlega eru afköst þeirra eða framleiðni, ef nota má það orð í þessum efnum, helmingi meiri en nokkurs annars sendiráðs. Það eru 15 „diplómatar“ og það eru 24 Sovétborgarar sem sinna öðrum störfum í sendiráðinu. Hver þau eru veit ég ekki. Það eru skráðar 35 eiginkonur sem margar hverjar starfa einnig að hluta til í sendiráðinu, og síðan eru á skrá hjá utanrrn. 14 börn og unglingar. Alls eru þetta 88 sovéskir borgarar sem hér eru á vegum sovéska sendiráðsins.

Auðvitað hlýtur sú spurning að vakna: Hverjum störfum sinnir þetta fólk? Hvers vegna þarf sovéska sendiráðið helmingi fleiri skráða „diplómata“ en nokkurt annað sendiráð? Frakkar eru hér með 6 skráða „diplómata“ og einn starfsmanna annan, samtals 7, sovétríkin eru með 39 „diplómata“ og aðra starfsmenn, Bandaríkjamenn með 7 „diplómata“ og 12 aðra starfsmenn, Bretar með 3 „diplómata“ og 2 aðra starfsmenn og Kínverjar með 7 „diplómata“ og 13 aðra starfsmenn. Þetta eru athyglisverðar tölur. Satt að segja er mér alveg óskiljanlegt hvers vegna sovéska sendiráðið á Íslandi þarf allan þennan mannafla. Ég held að það ætti að vera sjálfsögð krafa okkar að fara þess á leit við hæstv. utanrrh. að hann geri ráðstafanir til þess og tilkynni Sovétríkjunum að Íslendingar óski ekki eftir að hér séu í sendiráði þeirra fleiri starfsmenn en eru í öðrum erlendum sendiráðum, t. d. hjá Kínverjum, Bandaríkjamönnum og Frökkum. Það er engin ástæða til þess að þetta eina sendiráð sé helmingi mannfleira en nokkurt annað. Fyrir þessu hljóta að liggja einhverjar skýringar, sem ekki er auðvelt að koma auga á. En ég held að þarna eigum við að gera kröfu um að verði breyting á.

Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson fór hér mörgum orðum um vankunnáttu og fáfræði annarra þm. Það getur vel verið að hann lifi í þeirri trú að hann einn þm. fylgist með þessum málum og viti um þau, hann talar a. m. k. ákaflega oft þannig. En sú er ekki raunin. Það eru fleiri sem fylgjast með þessum málum en hann. Hins vegar þótti Alþb. svo mikið við liggja í dag að þm. þess röðuðu sér á mælendaskrá hér lungann úr deginum til að tryggja það, og til þess talaði hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson í hálfan annan tíma, að á þessum megin- og aðalfundartíma þingsins kæmust ekki aðrir ræðumenn að. Þetta er auðvitað eitt af því sem þeir Alþb.-menn kalla lýðræðisleg vinnubrögð, geri ég fastlega ráð fyrir.

Það er ekki aðeins eðlilegt, heldur er það nauðsynlegt, að þessi mál séu rædd á Alþingi Íslendinga í ljósi þeirra atburða sem verið hafa að gerast að undanförnu. Þar á ég auðvitað fyrst og fremst við þann alvarlega atburð sem gerðist í Svíþjóð þegar hinn aldurhnigni kafbátur sigldi af „hafi friðarins“ upp í kálgarða þeirra Svía hlaðinn kjarnorkuvopnum, á bannsvæði sænska flotans. Síðan gerðist það að einn af framámönnum svokallaðrar friðarhreyfingar í Danmörku, einnar greinar þeirrar hreyfingar, verður ber að því að hafa þegið fégjafir Sovétríkjanna. Sjálfsagt er ekki nema lítið vitað um það mál enn sem komið er. Á þar áreiðanlega fleira eftir að koma í ljós og víðar þegar þau mál verða könnuð betur. Þetta hlýtur að snerta okkur og við hljótum að þurfa að meta stöðu okkar að nýju í ljósi þessara staðreynda.

Það hefur mikið verið talað um Norðurlöndin sem kjarnorkuvopnalaust svæði að undanförnu. Norðurlöndun eru og hafa verið kjarnorkuvopnalaust svæði. Um það er ekki ágreiningur. Norðurlöndin hafa verið kjarnorkuvopnalaust svæði, nema þann tíma sem hinn sovéski kafbátur var strandaður á sænsku landi. Þá voru kjarnorkuvopn á Norðurlöndum. Þetta er athyglisverð staðreynd. Auðvitað breytir sú staðreynd hugsanagangi manna og vangaveltum um þessi mál þegar það kemur í ljós að Sovétríkin vopna 30 ára gamla kafbáta með tundurskeytum sem búin eru kjarnaoddi. Það gerbreytir þeirri mynd sem menn hafa áður gert sér af þessum málum, því að satt best að segja mun menn ekki hafa órað fyrir þessu. M. a. segir sérfræðingur um þessi mál, Peter Wallensten, sem nú er gistiprófessor við háskólann í Michigan í Bandaríkjunum, en er þekktur og óumdeildur rannsókna- og vísindamaður á sviði friðarrannsókna, sem skandinavar svo kalla:

„Þessi atburður er í beinni mótsögn við allar yfirlýsingar Sovétríkjanna fram til þessa. Það finnst enginn samsvarandi atburður sem gerst hefur í líkingu við þetta og þetta kemur til með að hafa mjög víðtækar afleiðingar.“ — Hann segir enn fremur í viðtali við sænska blaðið Dagens Nyheter: „Fyrsta ályktunin, sem af þessu ber að draga, er að allar hugleiðingar um kjarnorkuvopnalaust svæði verða af tæknilegum ástæðum mjög erfiðar í framkvæmd eftir þetta. Spurningarnar vakna: Eru allir kafbátar Sovétríkjanna af þessari gerð búnir kjarnorkuvopnum? Nú hefur valdajafnvægið breyst:“

Önnur spurning, sem Peter Wallensten segir að hljóti að vakna í þessu sambandi, er: Hver er tilgangur Sovétríkjanna með þessu? Hver er tilgangur Sovétríkjanna með því að sigla kjarnorkuvopnavæddum kafbáti inn á bannsvæði hlutlausrar þjóðar? Við getum velt því fyrir okkur hvað þessi kafbátur hafi verið að gera þarna.

Sú skýring, sem Sovétríkin hafa gefið á ferðum kafbátsins, er auðvitað svo barnaleg, klaufaleg og mér liggur við að segja heimskuleg að engu tali tekur, að kafbáturinn hafi villst vandsiglda leið milli skerja. Í blöðum á Norðurlöndum hefur verið látið að því liggja að hugsanlega hafi þessi kafbátur verið að koma fyrir fjarstýrðum kjarnorkusprengjum sem síðan væri unnt að sprengja þegar Sovétmönnum hentaði. Þetta er eitt af því ógnarlega sem mönnum hefur dottið í hug að þessi kafbátur væri að gera þarna. Annað, sem menn hafa leitt líkur að að kynni að hafa verið erindi kafbátsins, var að koma fyrir hlustunartækjum á hafsbotni til þess að fylgjast með ferðum sænskra kafbáta.

Blöð á Norðurlöndunum eru yfirleitt sammála um það, að hvað sem kemur út úr þeirri leit sem Svíar gera nú neðansjávar á því svæði sem kafbáturinn fór um, — þeir eru að fínkemba það svæði, — þá verði ekki sagt frá því vegna þess að auðvitað kæra þeir sig ekkert um að Sovétmenn viti hversu mikið þeim tekst að vita um tilgang strandferða þeirra. En þessi för sovéska kafbátsins, sem íslenskir kommúnistar kjósa að gera að algeru aukaatriði í allri þessari umr., var ekki farin í góðum tilgangi. Við skulum vona að hún hafi ekki verið farin í þeim tilgangi að koma þar fyrir kjarnorkusprengjum, en hver veit um það. Um það vita Sovétmenn einir og þeir kjósa að svara engu eins og venjulega um þetta friðarins haf sem þeir svo kalla.

Við skulum ekki gleyma því, að tvískinnungurinn og hræsnin, sem einkennt hafa málflutning Alþb.-manna hér á landi um langt skeið, hafa líka einkennt málflutning Sovétríkjanna. Málflutningur Alþb.-manna í sölum Alþingis um utanríkismál hefur lengst af verið bergmál af stefnu Sovétríkjanna, og flestallt, sem þeir hafa hér sagt um þau efni, hefur verið hallt undir Sovétríkin. Það er nú á þessu ári sem breyting hefur orðið. Nú skríða þeir hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson og fleiri þangað sem hentast þykir. Nú eru það friðarhreyfingarnar, sem eru af mörgum rótum runnar, sem eiga að skýla þeim og þeirra raunverulega málstað. Nú hentar að fara undir pilsfald kirkjunnar og hefði einhverjum einhvern tíma þótt tíðindi.

Það er ekki nýtt að málflutningur Alþb.-manna og Alþb. sé hallur undir Sovétríkin. Það hefur gerst alla tíð. Alþb. er beinn arftaki Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins sem á sínum tíma var arftaki Kommúnistaflokks Íslands. Allar götur síðan 1930 hefur það gilt um utanríkisstefnu Kommúnistaflokksins fyrst, síðan Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins og svo Alþb. að hún hefur verið bergmál af stefnu Sovétríkjanna og hún hefur verið höll undir Sovétríkin. Við skulum byrja á Kommúnistaflokknum 1930.

Það eru sömu mennirnir sem hafa stjórnað öllum þessum samtökum. Þegar Lúðvík Jósepsson, fyrrv. formaður Alþb., flytur ræðu Sovétríkjunum til lofs og dýrðar á Mír-fagnaði í Þjóðleikhúskjallaranum er það auðvitað gert í beinu framhaldi af sögulegum tengslum Kommúnistaflokksins, Sameiningarflokks alþýðu og Alþb., en sá ágæti maður hefur starfað í öllum þessum þrennum samtökum. Auðvitað er það líka staðreynd, að þeir, sem stjórnuðu Kommúnistaflokki Íslands og Sósíallistaflokknum, kjarninn þar, hafa verið kommúnistar. Þetta hefur verið sami kjarninn þótt þrisvar hafi verið breytt um nafn. 1930 voru kommúnistar með hlutleysi. Þá töldu þeir þátttöku Íslands í Þjóðabandalaginu vera svívirðu. Þá voru Sovétríkin sömu skoðunar.

1937 voru kommúnistar gegn hlutleysi. Þá vildu þeir bandalag gegn nasistum og fasistum. Sovétríkin vildu þetta. Hvað vildu íslenskir kommúnistar þá? Þeir vildu gera varnarbandalag við stórveldin og þeir vildu að Ísland gengi í Þjóðabandalagið. Blaðinu var snúið við af því að Sovétríkin sneru blaðinu við. Þetta var 1937.

1941 réðust Þjóðverjar á Rússa og þá var hlutleysi Sovétríkjanna úr sögunni. En hvað gerðist þá með íslenska kommúnista? Þá snerust þeir gegn hlutleysi. Þá mátti skjóta frá Íslandi ef það kæmi Sovétríkjunum að gagni. Þau orð verða lengi í minnum höfð og þau geta íslenskir kommúnistar og arftakar þeirra aldrei af sér skafið.

Hvað gerðist 1946, að styrjöldinni lokinni? Þá fengu Rússar áhuga á hlutleysi að nýju,-hlutleysi vissra ríkja, nota bene. Þá fá íslenskir kommúnistar áhuga á hlutleysi að nýju og vilja gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir samstarf Íslendinga við önnur lýðræðisríki.

En hvað gerðist 1956? Þá eru Sovétríkin á móti hlutleysi Ungverjalands. Hver var hengdur fyrir að vilja hlutlaust Ungverjaland? Nagy. Hvað gerðu íslenskir kommúnistar 1956? Þeir felldu hlutleysistalið. Þá var ekki talið hentugt að tala um að varnarliðið færi. Og nú situr Alþb. í fjórðu ríkisstj. sem ætlar sér að hafa varnarliðið hér áfram.

Enn hófst ný hlutleysissókn 1959 og hún stendur kannske enn til þess að reyna að ná Íslandi úr Atlantshafsbandalaginu.

Það er hverjum manni ljóst sem skoðar söguna, að utanríkisstefna íslenskra kommúnista, hvað sem þeir hafa kallað sig, hvort sem þeir hafa kallað sig Alþb., Sameiningarflokk alþýðu eða kommúnista, hefur verið endurspeglun stefnu sovétstjórnarinnar. Hún er það ekki í dag með eins áberandi hætti og verið hefur, en hún er það engu að síður í orði og verki.

Það er ýmislegt fleira sem til mætti taka í þessu sambandi. En víst er að þeir atburðir, sem nú hafa gerst, breyta allri umræðu um þessi mál á Norðurlöndunum. Umræðan er komin í annan farveg. Það er auðvitað þess vegna sem Alþb.-menn kappkosta nú að tala um stórveldin. Auðvitað er það eðlilegt. Nú á að beina athyglinni frá Sovétríkjunum. Út á það hefur öll umr. í dag gengið. Það er það sem er á bak við það sem hefur verið að gerast í þessum ræðustól í dag af hálfu Alþb. Það er verið að beina athyglinni að því sem hentara þykir. Við skulum líka koma að þeim málum á eftir. En hver getur tekið alvarlega tal Sovétríkjanna núna um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum? Allt slíkt tal er auðvitað marklausar blekkingar, hræsni og. sýndarmennska.

Hv. þm. Guðrún Helgadóttir ræddi í ræðu sinni á þriðjudaginn um fjárstuðning við friðarhreyfingar. Það fannst mér athyglisverður kafli ræðu hennar. Hún sagði þar orðrétt, með leyfi forseta:

„Menn tala hér um fjárstuðning við friðarhreyfingar. Mér vitanlega er engin friðarhreyfing hér í þessu landi orðin til á borð við ýmsar þær sem hafa verið stofnaðar erlendis. Ekki hef ég hugmynd um hvort Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna hafa einhvern tíma fengið peninga frá útlöndum. Aldrei hef ég orðið vör við það og hef ég verið félagi í þessum samtökum mjög lengi.“ Síðan hélt hún áfram: „En ég man ekki betur en fyrir nokkrum árum viðurkenndu íslenskir jafnaðarmenn að þeir hefðu þegið peninga frá „kollegum“ sínum í Svíþjóð. Ég hef ekki heyrt hingað til að það eigi að draga þá fyrir lög og dóm fyrir það.“

Hvers vegna kýs hv. þm. að draga nafn Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna inn í þessa umr.? Það er mér nokkur furða. Hefur hún ástæðu til að ætla að þessi samtök njóti með einhverjum hætti stuðnings erlendis frá? Gæti verið að formaður þessara samtaka væti launaður starfsmaður sendiráðs Sovétríkjanna? Gæti það verið? Gæti fjárstuðningur hugsanlega verið í þeirri mynd? Hún víkur að því, að íslenskir jafnaðarmenn hafi viðurkennt að hafa fengið fjárstuðning frá jafnaðarmönnum á Norðurlöndum. Alþjóðlegt samstarf jafnaðarmanna hefur ekki verið neitt pukursmál. Alþfl. er aðili að Alþjóðasambandi jafnaðarmanna. Alþfl. fékk nokkurn styrk frá norrænum jafnaðarmönnum. Það var aldrei neitt pukursmál. Frá því var greint opinberlega. Það varð til þess að Alþingi bannaði íslenskum aðilum að þiggja slíka aðstoð. Gott og vel. Að þeim lögum hefur Alþfl. farið. En þegar nafn samtaka eins og Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna er af þm. Alþb. dregið inn í þessa umr. með þessum hætti vakna auðvitað ýmsar spurningar. Auðvitað er margt í þessum efnum sem ástæða er til að velta fyrir sér. Það er ástæða til að efast og það er ástæða til að spyrja margra spurninga þó að svör fáist kannske ekki við þeim öllum. En hvernig er starfsemi þessara samtaka fjármögnuð? Það væri vissulega fróðlegt að fá svör við því. Það væri líka fróðlegt að vita eitt og annað um peningaumsvif þeirra sem gefa út Fréttir frá Sovétríkjunum á Íslandi. Það væri fróðlegt að fá að sjá reikninga fyrir því, hverjum er greitt, hve mikið, fyrir hvað. Það væri fróðlegt að vita eitt og annað um fjárhagsleg umsvif sovéska sendiráðsins og ýmissa fyrirtækja hér sem annast viðskipti við Austur-Evrópu. Það væri vissulega fróðlegur lestur. Hvernig skyldi t. d. standa á því, að þegar íslensk kaupskip koma til Sovétríkjanna er íslenskum skipafélögum gert að greiða hér í banka í íslenskum krónum hafnargjöld, losunar- og lestunargjöld. Þau gjöld, sem falla á íslensk kaupskip í höfnum í Sovétríkjunum, eru greidd í íslenskum krónum í íslenskum bönkum. Hvað verður um þá peninga þar á eftir er væntanlega hulið svokallaðri bankaleynd. Sjálfsagt fara þeir peningar allir úr landinu aftur. Það er áreiðanlega engin ástæða til að efast um það. En það eru vissulega margar spurningar sem vakna og það er vissulega margt sem ástæða væri til að fá nánari skýringar á.

Við höfum talað hér um kjarnorkuvopnalaus svæði á Norðurlöndunum. Þau orð úr munni Sovétmanna eru marklaus hér eftir sem hingað til. Þegar fulltrúar Sovétríkjanna tala um þetta er eingöngu verið að tala um Norðurlönd. En þegar víð erum að tala um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum, gott og vel, hvað eigum við þá við? Þá viljum við auka öryggi þeirra sem búa á þessu svæði. Hvernig getur það gerst? Það getur gerst með þeim hætti, að yfirlýsing um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum að alþjóðalögum yrði þáttur af stærra máli sem tæki til Evrópu allrar og þá ekki þeirrar Evrópu sem Sovétríkin tala um vegna þess að sú Evrópa nær aðeins að landamærum Sovétríkjanna. Hún nær ekki austur að Úralfjöllum, eins og hinn gamli landfræðilegi skilningur á því, hvað Evrópa er, er hjá flestum. Nei, Sovétríkin undanþiggja sitt landssvæði og víghreiðrið á Kólaskaga, en hvergi í veröldinni er saman komið annað eins magn morðtóla og drápstækja og á Kólaskaga, við þröskuld Norðurlanda, við bakdyr Norðurlanda, ef svo mætti að orði komast. Þetta er ekki í myndinni. Það, sem Sovétríkin og talsmenn þeirra hér hafa verið að tala um mörg umliðin ár, hefur verið einhliða afvopnun. Enn tala margir þeirra friðarhópa í Evrópu, sem hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni varð svo tíðrætt um áðan, um einhliða afvopnun,-ekki allir, það er alveg rétt. En það er fyrst núna sem Samtök herstöðvaandstæðinga og Alþb. tala um meira en einhliða afvopnun. Fram til þessa hefur öll þeirra umræða og allt þeirra tal snúist um einhliða afvopnun. Það er núna á þessu ári, það er núna síðsumars sem þetta hefur verið að breytast vegna þess að hitt þykir ekki handhægt lengur, hentar ekki. Það er talað um stórveldin og aftur stórveldin núna vegna þess að það þykir best henta.

Ýmsir hv. þm., þ. á m. hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson og hv. þm. Guðrún Helgadóttir, hafa gert hér að umtalsefni aukafund Allsherjarþingsins sumarið 1978 þar sem fjallað var um afvopnunarmál. Þau hafa rætt um kjarnorkuvopnalaus svæði sem koma við sögu í ályktun þessa fundar. Þau hafa hins vegar bæði tvö látið undir höfuð leggjast að geta þess, að á þessum fundi Allsherjarþingsins lýstu Bandaríkin, Bretland og Sovétríkin yfir að þau mundu ekki beita kjarnorkuvopnum gegn ríkjum sem hefðu heitið því að verða sér ekki úti um kjarnorkuvopn. Bandaríkin, Bretland og Sovétríkin lýstu því yfir á þessu aukaþingi Allsherjarþingsins, sumarið 1978, sem fjallaði um afvopnunarmál, að þau mundu ekki beita kjarnorkuvopnum gegn ríkjum sem hefðu heitið því að verða sér ekki úti um kjarnorkuvopn. Hver hefur brotið þetta samkomulag? Hvaða ríki fór með kjarnorkuvopn inn í landhelgi hlutlauss ríkis, inn í landhelgi ríkis sem hefur ekki nein kjarnorkuvopn? Það eru Sovétríkin sem hafa rofið þá samþykkt sem gerð var á aukafundi Allsherjarþingsins sumarið 1978. Þetta ættu menn að hafa í huga og þ. á m. hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson. Eina ríkið, sem hefur brotið þá samþykkt, sem þar var gerð, og rofið þann sáttmála, sem þar var gerður, er Sovétríkin. Það er vissulega umhugsunarefni og ekki síst fyrir okkur Íslendinga.

Nýlega hefur verið birt á vegum Sameinuðu þjóðanna skýrsla sem til er orðin fyrir frumkvæði Norðurlandanna, — skýrsla um afvopnunarmál. Þessa skýrslu hafa 27 sérfræðingar á þessu sviði unnið í framhaldi af aukaþinginu um afvopnunarmál sumarið 1978. Þessi skýrsla verður væntanlega rædd á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á þessu hausti. Þar kemur ýmislegt athyglisvert fram. Auðvitað greinir okkur ekki á um að við viljum berjast gegn kjarnorkuvopnum og vígbúnaði. Um það er ekki nokkur minnsti ágreiningur. En okkur greinir á um hvar við eigum að berjast og hvernig við eigum að bera okkur til.

Þeir Alþb.-menn virðast vera þeirrar skoðunar, að Vestur-Evrópa eigi hér að ganga á undan og afvopnast, þá muni allt verða gott af sjálfu sér. Ég er á allt annarri skoðun. Einhliða afvopnun er hættuleg, ekki aðeins öryggi okkar, heldur öryggi allra lýðfrjálsra ríkja í Vestur-Evrópu. Við eigum að berjast fyrir afvopnunarmálum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þar eigum við að leggja okkar lóð á vogarskálarnar eins og við höfum gert. Við eigum að vera raunsæ. Við eigum að horfa á þann veruleika sem er í kringum okkur. Það getur verið gott að láta sig dreyma, en það getur líka verið hættulegt. Einn daginn kunna menn eins og hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson að vakna upp við vondan draum. Vonandi á það ekki fyrir honum né öðrum að liggja. — Okkur greinir sem sagt á um það, hvernig við eigum að bera okkur til við að ná þessu markmiði.

Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna, sem ég var að víkja að og samin er að frumkvæði Norðurlandanna, — það var Svíi, Inga Thorson, sem var formaður þessa sérfræðingahóps, — þar kemur fram að hvernig svo sem á málið er litið, ekki aðeins út frá sjónarmiði hættunnar, óttans og ógnarinnar, þá sé það hagkvæmt fyrir öll ríki veraldar að afvopnast. Það er efnahagslega hagkvæmt. Á það er hægt að færa beinar sönnur og um það þarf ekki að deila. Vígbúnaðurinn hefur neikvæð áhrif á hagvöxt, verðbólgu, atvinnustig, alþjóðaviðskipti og varðveislu heilnæms umhverfis, svo að nokkuð sé nefnt. Það er lögð rík áhersla á það í þessari skýrslu Sameinuðu þjóðanna, að sú fullyrðing, að afvopnun hljóti að leiða til atvinnuleysis í iðnvæddu ríkjunum, sé röng. Vissulega verða þær iðngreinar, sem fást við vígtólaframleiðslu og framleiðslu hernaðartækja, að fá aðlögunartíma. Auðvitað eru allir sammála um að afvopnun gerist ekki á einni nóttu. Hún gerist á löngum tíma. Við skulum líka hafa hugfast hversu gífurlegir fjármunir eru hér í húfi. Við skulum hafa það í huga, að í fyrra var varið 500 mill jörðum dollara til vígbúnaðar í veröldinni. Þetta svarar til verðmætis um það bil 6% af allri framleiðslu í veröldinni. 6% fara til vígbúnaðar. Þetta eru óhugnanlegar tölur. Þetta er nítjánföld sú upphæð sem vestræn ríki verja til aðstoðar þróunarlöndunum, Austur-Evrópuríkin gera hins vegar ekki mikið af slíku. Ef vígbúnaðarkapphlaupið heldur áfram að vaxa eins og það hefur gert er líklegt að þessi upphæð verði orðin 900 milljarðar Bandaríkjadala eftir 19 ár, árið 2000. Við skulum hafa í huga að 50 millj. manna í veröldinni eru beint eða óbeint í tengslum við störf sem hafa hernaðarlegan tilgang. Í þessari tölu eru 25 millj. manna sem eru hermenn, sem eru undir vopnum í veröldinni. Það eru 10 millj. í varaliðssveitum og 4 millj. borgara sem starfa á skrifstofum í varnarmálaráðuneytum eða við starfsemi tengda þeim. Það eru 500 þús. vísindamenn og tæknimenn sem eingöngu vinna að rannsóknum á hernaðarsviði og að þróun vígtóla, og það eru a. m. k. 5 mill j. manna sem hafa beina atvinnu af framleiðslu vopna og vígbúnaðar. Útgjöld til hernaðarrannsókna og tækniþróunar í herbúnaði eru talin hafa verið á árinu 1980 u. þ. b. 35 milljarðar dollara. Þetta er 114 þeirra upphæðar sem varið er til allra rannsókna í veröldinni. Og þessir 500 þús. vísindamenn og tæknimenn eru u. þ. b. 20% allra starfsmanna á þessu sviði í veröldinni.

Í þessari Thorson-skýrslu, sem svo er kölluð og verður til umræðu núna á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, eru settar fram ýmsar tillögur til ríkisstjórna aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna. Það er lögð áhersla á að ríkisstjórnir láti vinna og birta skýrslur sem sýna efnahagslegan og félagslegan kostnað sem er samfara vígbúnaðarkapphlaupinn. Þessu er ekki hvað síst beint til stærstu herveldanna. Þar að auki er lögð áhersla á að ríkisstjórnirnar láti vinna gögn til að sýna fram á hvað mætti vinna á sviði félagsmála og efnahagsmála með því að verja þessu fjármagni á annan hátt. Og það er skoðun þessarar sérfræðinganefndar að vígbúnaðarkapphlaupið eins og það er sé ekki til þess fallið að auka öryggi í veröldinni, sé þvert á móti sóun á auðlindum og sóun á fjármagni. Þá er lagt til í þessari skýrslu, að ríkisstjórnir hefji þegar í stað undirbúning þess að breyta hernaðarframleiðslunni í venjulega framleiðslu og gefi Sameinuðu þjóðunum skýrslu um árangur þeirrar viðleitni.

Nú má auðvitað spyrja sem svo: Eru tillögur í þessa átt yfirleitt raunhæfar? Þeir sérfræðingar, sem sömdu þessa skýrslu, eru yfirleitt í mikilvægum stöðum hver í sínu landi. Þeir voru tilnefndir at ríkisstjórnum landa sinna. Það er vert að leggja á það ríka áherslu, að í þessari sérfræðinganefnd áttu sæti fulltrúar bæði Bandaríkjanna og Sovétríkjanna og niðurstöður þær, sem ég hef nú vitnað til, niðurstöður þessa sérfræðingahóps, voru samhljóða.

Vissulega eigum við að berjast fyrir afvopnun, eins og ég hef áður sagt, en við eigum fyrst og fremst að gera það á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og við eigum að horfast í augu við veruleikann. Sovéski kjarnorkuvopnaði kafbáturinn, sem strandaði við strönd Svíþjóðar, er hluti þess raunveruleika sem við verðum að horfast í augu við, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Þeir, sem vilja einhliða afvopnun lýðræðisríkjanna, eru beinlínis að þjóna hagsmunum og utanríkisstefnu Sovétríkjanna. Það held ég að sé kjarni þessa máls.

Það er auðvitað ekki nýtt, eins og ég hef rakið í ræðu minni, að saman fari stefna Alþb., hverju nafni sem það kýs að nefna sig á hverjum áratug, hvort sem það eru kommúnistar, Sameiningarflokkur alþýðu eða Alþb., og utanríkisstefna Sovétríkjanna. Þetta höfum við reynt hér í gegnum tíðina. En það er ekki sú stefna sem við eigum að sameinast um að vinna að. Við eigum vissulega að gera það sem við getum til að stuðla að friði og afvopnun í veröldinni, en við eigum jafnframt að gera það þannig að það sé raunveruleg afvopnun, en ekki einhvers konar sýndarmennska. Við eigum ekki aðeins að gera kröfur til annars aðilans, eins og venja er til þegar þessi mál eru til umr. Við eigum að gera kröfur til þeirra beggja. Á þann eina hátt náum við því markmiði, sem við viljum keppa að, að draga úr þeirri hættu, sem er á kjarnorkustyrjöld, og því, að slíkum vopnum verði beitt. Það gerum við best með því að vinna innan þeirra alþjóðasamtaka þar sem við getum beitt okkur.