12.11.1981
Sameinað þing: 18. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 707 í B-deild Alþingistíðinda. (508)

76. mál, afnám tekjuskatts af almennum launatekjum

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Aðeins örfá orð. Ég vildi láta í ljós að mér finnst þetta vera góð till. til þál. Ég vil einnig, eins og hv. síðasti ræðumaður, lýsa því yfir, að okkar flokkur, Sjálfstfl., hefur á sinni stefnuskrá að tekjuskattar verði afnumdir af almennum launatekjum svo að það virðist nú vera nokkuð góður hópur hér innan Alþingis sem hefur þetta á sinni stefnuskrá. Hins vegar er ég ekki bjartsýn á að það takist að fá núv. hæstv. ríkisstj. til að setja lög eða flytja frv. um þetta efni. En ég vildi lýsa stuðningi mínum við þessa fram komnu tillögu.