12.11.1981
Sameinað þing: 18. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 740 í B-deild Alþingistíðinda. (521)

Umræður utan dagskrár

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Um leið og ég þakka hæstv. forseta fyrir það þolgæði sem hann hefur sýnt með því að sitja hér án þess að hafa 2. varaforseta sér til hjálpar eða aðalforseta sameinaðs þings, þá vil ég einnig þakka fyrir það sem mjög greinilega hefur komið í ljós í þessum umr., en það er þetta:

Í ræðum allra þm. lýðræðisflokkanna, sem hér hafa talað, hefur komið fram mjög sterkur einhugur í afstöðunni til varna Íslands. Þetta tel ég vera miklu, miklu meira virði en það, að menn deili mjög innbyrðis um almennar flokkspólitískar linur. Ég tel að þetta atriði geti orðið til þess að styrkja almenning í þeirri trú, að á Alþingi sitji menn sem eru sér ábyrgðar sinnar meðvitandi og tali um alvarlegustu mál þjóðarinnar af fullri alvöru og fullri einlægni. Þess vegna held ég að þær umr., sem hér hafa farið fram, geti orðið sjálfstæði og öryggi þjóðarinnar til styrktar á þeim erfiðu tímum sem nú eru í veröldinni.

Ég vil sérstaklega þakka hæstv. utanrrh. og hæstv. dómsmrh. fyrir þær ræður sem þeir hafa flutt og fólu í sér svör við þeim spurningum sem ég beindi til hæstv. utanrrh. í upphafi máls míns í fyrradag. Hæstv. utanrrh. gerði glögga grein fyrir því, hvernig sú hætta gæti vissulega verið hér á landi að atvik eins og þau, sem upp komu í Danmörku, kynnu að gerast. Hæstv. ráðh. vakti athygli á því, að viðbrögð við slíku væru ef til vill öllu fremur í hendi dómsmrh. eða á hans málefnasviði, enda tók hæstv. dómsmrh. þannig á málunum í dag að það var alveg ljóst að hann gerði sér glögga grein fyrir þessum vanda og þekkir það vel, hvernig á að bregðast við lögbrotum. Þetta er hans fag frá gamalli tíð, ef ég má segja svo. Hæstv. dómsmrh. hefur fengist mikið við lögreglustjórn fyrr á sínum starfsferli og gerir sér því mætavel ljósan þennan vanda. Ég vil taka undir hans ósk, sem fram kom í ræðunni í dag, og vil leyfa mér að hvetja þm. til að ganga til móts við hæstv. ráðh. í þeirri viðleitni að fá auknar fjárveitingar til löggæslunnar í landinu svo og almannavarna.

Það væri ef til vill eðlilegt að ég svaraði nokkuð öllum þeim persónulegu ásökunum sem á mér dundu hér fyrr í dag. Hins vegar taldi ég ekki rétt að gera það í dag, þó ef til vill væri full þörf á og fullt tilefni til, vegna þess að ég óttaðist að þá féllu þessar umr. um of í þann farveg, sem stundum hefur viljað vera um mikilvæg mál, að verða að karpi í stað víðtækrar málefnalegrar umræðu. Sem betur fer varð úr víðtæk málefnaleg umr. Svo er fyrir að þakka mörgum skynsamlegum ábendingum sem fram hafa komið í dag. Engu að síður vil ég þó aðeins víkja að þeim löngu ræðum hv. Alþb.-þm. sem þeir fluttu fyrr í dag.

Ég vil í því sambandi vekja athygli á einu, sem raunar kom fram í ræðu hæstv. utanrrh. nú í kvöld, og það var satt að segja eina atriðið sem ég hnaut um í þeirri annars ágætu ræðu. Hæstv. utanrrh. sagði: Það er auðvitað alveg rétt og ekkert leyndarmál, að það eru ólík viðhorf til varna landsins, til öryggismála landsins, innan ríkisstjórnarinnar. — Það var efnislega þetta sem hæstv. ráðh. sagði. Það er líka rétt, að hvergi er minnst á áframhaldandi veru í Atlantshafsbandalaginu eða áframhaldandi dvöl varnarliðs í landinu eða varnarstöð í stjórnarsáttmálanum. Hins vegar taldi hæstv. ráðh., — og nú kem ég að því atriði sem ég hnaut um, — að þetta hefði Alþb. samþykkt með þögninni svo ekki yrði um villst. Ég verð að segja að mér fannst ekki síst í dag, fram undir kaffitímann að minnsta kosti, þessi þögn vera ærið hávaðasöm, svo ekki sé meira sagt. Hinu geri ég ráð fyrir, að hæstv. utanrrh. hafi átt við að aðild að Atlantshafsbandalaginu og vera varnarliðsins í landinu væri samþykkt af Alþb. hálfu með áframhaldandi setu þess í ríkisstjórn. Það liggur alveg ljóst fyrir, hversu háværar ræður sem þeir halda hér á Alþingi og halda þar öðru fram. Það er mál fyrir sig.

Það er mjög sérkennilegt að athuga hverjum tökum Alþb.-menn hafa tekið það málefni sem hér hefur verið rætt. Í fyrsta lagi ganga hv. þm. Alþb. jafnan fram hjá aðalatriði málsins. Þegar rætt er um þessa nýliðnu atburði á Norðurlöndum, í Svíþjóð og í Danmörku, er vert að horfa aftur um nokkra mánuði. Í sumar hafa klingt mjög í eyrum fréttir af friðarhreyfingum og blasað við á síðum málgagna þeirra. Allt í einu ber svo við nýlega, að við blasir í Danmörku að friðarhreyfingar þar í landi virðast vera meira og minna fjármagnaðar af sovésku fé. Þá fer umræða Alþb.-manna fram hjá þessu atriði. Menn hafa ef til vill tekið eftir því, að vissulega hafa Alþb. menn og Þjóðviljinn fordæmt athæfi Rússa og undið sér síðan í það að draga af því þá ályktun, að svona séu stórveldin. Þeir komast m. ö. o. að þeirri niðurstöðu, að athæfi Rússa í sænska skerjagarðinum sé sönnun þess, að Bandaríkjamenn hagi sér á tiltekinn veg eða NATO-þjóðir hagi sér á tiltekinn veg, athæfi Rússa sé sönnun um að stórveldin, eins og einn hv. þm. Alþb. benti á hér í kvöld, séu álíka viðsjárverð. Hitt er annað mál, að í þessum yfirlýsingum sínum sleppa þeir að ræða um hitt atriðið, sem er hið stórvarasama athæfi sem fram hefur farið í Danmörku. Menn geta velt fyrir sér af hverju.

Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson veifar fram og aftur fylgiskjali með fjárlagafrv. úr Bandaríkjunum, les upp úr því kafla og kafla og telur sig sanna með því eitthvað sem hann telur stórvarasamt athæfi. Ég skal ekki leggja dóm á það. Ég hef ekki lesið þetta skjal. En þá sleppir hv. þm. því að fjalla á nokkurn hátt um eða taka afstöðu til þess sem verið hefur til umræðu í Danmörku og menn hafa áhyggjur af um öll Norðurlönd og jafnvel víðar. Hv. þm. er meðal þeirra fáu sem ekki hafa áhyggjur af þessu athæfi. (ÓRG: Þetta er rangt hjá þm.) Það er gott ef hv. þm. hefur fordæmt þetta atriði, en einhvern veginn var það nú svo, að ræða hans fjallaði aðeins um önnur atriði. Hún gerði það. Hv. þm. þorir ekki að ræða um efni þessa máls. (ÓRG: Það er alveg velkomið að taka heilan dag í viðbót með þm.) Það er svo, herra forseti, að það fór ekki hjá því þegar hv. 11. þm. Reykv. flutti hér ræðu sína í dag, og raunar öllu fremur í kvöld, eftir að hv. þm. hafði hlustað á öll þau efnislegu rök sem fram hafa komið í ræðum þm. hér í dag, að aftur og aftur kom upp í huga minn þetta vísubrot: „Númi skundar, Númi hræðist, Númi undan víkur sér.“ — Þetta er afar skiljanlegt. Mér finnst mjög skiljanlegt að Alþb. sé órótt þessa dagana, og eðlileg er sú ósk sem hv. þm. setti fram í seinni ræðu sinni í kvöld, að við þurfum að hugsa margar gamlar hugsanir upp á nýtt. Það er einmitt það. Hv. þm. Alþb. þurfa einmitt að hugsa margar gamlar hugsanir upp á nýtt. (ÓRG: Þm. þarf það ekki.) Herra forseti. Þar sem hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson hefur nú fengið nokkrar klukkustundir til umráða í dag væri mér kannske heimilt að hafa nokkrar mínútur nú þegar komið er fram yfir miðnætti til að ljúka ræðu minni.

Að því er varðar gamlar hugsanir hefur varnar- og friðarstefna Atlantshafsbandalagsins sannað gildi sitt. Því er það, að sá, sem hugsar þær gömlu hugsanir upp á nýtt, kemst að þeirri niðurstöðu, að þær voru réttar.

Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson minntist í kvöld á ræður nokkurra þm. sem hann taldi vera þess eðlis að þeir þm., sem fluttu þær ræður, væru sennilega hæfir til að ræða við hann. Vel má það vera og er vel ef þessi hv. þm. hafa fengið hv. 11. þm. Reykv. til þess að hugsa sínar gömlu hugsanir upp á nýtt. Ég veit að hv. þm. er þaulæfður í því og að komast að nýjum niðurstöðum. Þetta getur enn þá gerst.

Í þessari umr. kom fram og það af eðlilegum ástæðum, að margir hafa áhyggjur af því sem um var rætt, meiri og minni tengslum ýmissa aðila hér í landinu við Ráðstjórnarríkin. Hv. þm. Alþb. hafa kosið að bregðast við þessu á þann veg að tala almennt um tengsl við erlenda aðila. Hitt er rétt og skiptir miklu máli, sem margir hv. þm. hafa bent á í dag, m. a. hv. 3. þm. Norðurl. e., Lárus Jónsson, og hv. 9. þm. Reykv., Vilmundur Gylfason, að það er mikil blekking að leggja að líku öll erlend ríki sem við eigum skipti við. Mesta blekkingin er að leggja að líku, eins og Alþb.-menn gera, Atlantshafsbandalagið annars vegar og Sovétríkin hins vegar. Þetta er rangt af tveimur ástæðum: Annars vegar vegna þess, að lagt er að líku algjört einræðisríki, einræðisherveldi annars vegar, og svo aftur opin lýðræðisríki. (ÓRG: Eins og Tyrkland?) Það er rangt einnig vegna þess, að í Atlantshafsbandalaginu eru Íslendingar af fúsum og frjálsum vilja. Það er lögleg vörn þjóðarinnar, lögleg aðferð íslenska ríkisins til að verja öryggi sitt og sjálfstæði. Hitt er annað mál, að Sovétveldið er andstætt, er andsnúið þessari vörn íslenska ríkisins. Af þessari ástæðu er einnig alrangt að leggja þetta tvennt að líku. (Gripið fram í: Hvað um lýðræðið í Tyrklandi?) Ef hv. þm., með allan þann kennslutón sem hann hefur talað við okkur í í dag, þarf að spyrja um stjórnarfar í Tyrklandi til að átta sig á því, hvaða stjórnarfar er í vestrænum lýðræðisríkjum, þá tel ég að ekki sé verið að tala á þeim grundvelli sem hv. þm. hefur þó sagst vilja tala á.

Ég veit að hv. þm. vill helst tala um Írland, Tyrkland eða eitthvert annað ríki. Hv. þm. vill ekki að það komi fram að hann og hans flokkur reka þá utanríkispólitík sem er þóknanleg Sovétríkjunum. Þannig er þetta og á þetta hafa margir hv. þm. bent í dag. Þetta er því miður staðreynd. Nú dettur mér ekki í hug að nokkur þm. Alþb., þó ég sé ekki sérlega hrifin af þeim sumum hverjum, geri slíkt af meðvitaðri óþjóðhollustu. Þeir halda einfaldlega að þetta sé skynsamlegt. Jafnvel þegar þeir sjá blekkingarnar afhjúpaðar halda þeir að þetta sé skynsamlegt.

Sömu dagana og kafbátinn rak í skerjagarðinn í Svíþjóð birtist þetta úr einkunnarorðum miðstjórnar Kommúnistaflokks Sovétríkjanna á 64 ára afmæli októberbyltingarinnar: „Þjóðir Evrópulanda! Berjist gegn staðsetningu nýrra bandarískra kjarnorkueldflauga á landsvæði Vestur-Evrópu. Friðarinnar! Margfaldið krafta ykkar í helgri baráttu fyrir hinum æðsta rétti — réttinum til lífsins. Verið þar af leiðandi fylgjandi því, að nifteindavopn og önnur gereyðingarvopn verði bönnuð! Kjarnorkustyrjöld — nei!“ Þetta stendur í þessu innrammaða ávarpi úr einkunnarorðum miðstjórnar Kommúnistaflokks Sovétríkjanna sem framkvæmir þessa stefnu sína með þeim hætti sem lýðum er ljós. Það var því von að hroll setti að Svíum þegar þeir heyrðu seinasta skeytið frá sovéska kafbátnum sem hljóðaði svona: „Við sjáum ykkur aftur.“ Og rétt eftir að kafbáturinn var kominn heim ítrekuðu Sovétríkin enn á ný ósk sína um kjarnorkulaus Norðurlönd og „kröfu sína“ — var reyndar sagt í fréttum útvarpsins. Einum eða tveim dögum síðar kom ásökun í garð Svía fyrir að þeir stunduðu „njósnir gegn Sovétríkjunum“. Svo mörg voru þau orð. Þetta var það sem þessi fyrirmynd Alþb. hafði að segja um þetta mál.

Þetta minnir ofurlítið á sögu sem norskur stjórnmálamaður sagði einu sinni um atvik sem kom fyrir í Noregi fyrir nokkrum árum. Þá höfðu Norðmenn nýlega aukið mannafla sinn á Finnmörk, rétt hjá landamærum Sovétríkjanna. Þessi norski stjórnmálamaður, sem var ráðamaður þar í landi þá, fékk mótmæli frá Sovétríkjunum vegna þess að með þessu töldu Sovétríkin öryggi sínu ógnað. Í barnaskap mínum spurði ég þennan Norðmann, sem um var að ræða, hver hefðu orðið viðbrögðin. Hann sagði og brosti við: „Ég fullvissaði bara Sovétmanninn um það, að Norðmenn hefðu ekki í hyggju að leggja undir sig Sovétríkin.“ Sovétmanninum létti og með það skildu þeir. Svona er hugsanagangurinn sérkennilegur og eðlilegt að það sé erfitt að ganga til samninga þegar þvílíkt hyldýpi virðist vera milli afstöðu og rökfærslu manna sem þarna kemur fram, ef þetta lýsir einhverju um viðhorf valdhafanna í viðkomandi stórveldi.

Í ræðum, sem hér voru haldnar af hv. Alþb.-mönnum, var það mjög greinilegt að þeim var sérlega órótt, að ekki sé meira sagt. Talað var um alvarlegar ásakanir er ég hefði beint að þeim í ræðunni í fyrradag. Það var að vísu ekki nákvæmlega skýrt í hverju þær voru fólgnar. Aldrei datt mér í hug að kenna þeim um siglingu kafbátsins. Hitt má vera, að það hafi verið að ég leiddi fram þeirra eigin vitni um tengsl við Sovétríkin, las upp úr málgagni Sovétríkjanna þar sem vissir framámenn úr Alþb. höfðu skýrt frá sambandi sínu og hinum góðu tengslum við Sovétríkin. Nú er að sjálfsögðu ágætt að hafa gott samband þjóða í milli, en það, sem um var að ræða, var að mér fannst þurfa að liggja ljóst fyrir í hverju þessi tengsl væru fólgin.

Það, sem ég geri ráð fyrir að hæstv. félmrh. hafi talið ásökun, var að ég spurði í hvers boði hæstv. ráðh. hefði farið til Sovétríkjanna, en það ætti að vera eftir atvikum sakleysisleg spurning. Upphófust þá mikil frammíköll. (Gripið fram í: Þm. fullyrti, en spurði ekki.) Ef hv. þm. vill lesa ræðu mína getur hann séð þetta þar. — Þá upphófust frammíköll, rétt eins og nú. Hér sat aðeins einn Alþb.-þm. og greip fram í núna. En þá kölluðu margir þm. Alþb. fram í og bentu á að formaður Sjálfstfl. hefði farið boðsferð til Sovétríkjanna. Ég sagði þá að hann hefði ekki farið í boði Kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Meira ræddi ég ekki um það atriði. Í dag segir hæstv. félmrh. að hann hafi verið í boði ríkisstjórnar Sovétríkjanna, og rétt á eftir segir hv. þm. Stefán Jónsson að það sé nú þannig að í því landi sé ekki mikill munur á flokknum og stjórninni. Víst er það rétt að svo mun vera í raun, enda sjálfur Brésnev mesti valdamaður ríkisins og flokksins. En það er dálitið erfitt fyrir borgara í lýðræðisríki að gera ekki mun á því, hvort menn koma fram sem embættismenn í nafni síns ríkis eða hvort menn koma fram sem leiðtogar stjórnmálaflokks. Ég lít svo á að það skipti töluverðu máli fyrir íslenska ríkið. Nú liggur fyrir fullyrðing hæstv. ráðh. sjálfs hér í dag. Víst má það vera óvenjuleg opinber heimsókn sem þarna hefur verið um að ræða því ekki mun utanrrn. hafa komið nálægt þessu fyrirtæki né heldur sendiráð Íslands í Moskvu, fyrr en ef til vill að ráðh. kann að hafa haft samband við það er þangað var komið. Eftir því sem ég hef heyrt mun þessi heimsókn ekki hafa farið fram með þeim hætti sem venjulega tíðkast um opinberar heimsóknir ráðamanna fyrir tilstilli eða milligöngu utanrrn. með einhverjum hætti. Vel má vera að þarna sé aðeins ný aðferð viðhöfð og læt ég útrætt um það efni. En aðallega var það einkennilegt, að menn virðast ekki þar á bæ gera mun á hinu pólitíska valdi og sjálfum embættunum.

Hér talaði hv. 11. þm. Reykv. í dag mikið um ferðalög manna til hins stærsta meðal NATO-ríkjanna, lét hins vegar fátt uppi um ferðalög sín og boðsferðir til ýmissa annarra ríkja á friðarstefnur og sitthvað sem hann hefur átt erindi til undanfarið. Það mætti kannske spyrja í því sambandi hver hafi fjármagnað för hv. þm. á friðarráðstefnuna á Álandseyjum. Það er aðeins spurt um það til fróðleiks sem eitt dæmi um ferð. Annars fylgist ég ekki gjörla með ferðum hv. þm. Ég hef fróðleik minn meira úr þeim ræðum sem hér hafa verið fluttar.

Ég held, herra forseti, að sú ætlun hv. þm. Alþb., að þeir gætu með hávaðasömum ræðum um annað en efni málsins kæft þær hugmyndir, sem lágu að baki þessari fyrirspurn, og kæft þann hug, sem er í þm. almennt um þessi efni, hafi farið út um þúfur. Ég mun ekki nú fara nákvæmlega út í ræður þeirra þótt mörg atriði hafi komið fram. Mér fyndist það misnotkun á tíma þm. og þolinmæði hæstv. forseta. Ég vil hins vegar ítreka það, að mér finnst mjög ánægjulegt og auka álit á Alþingi, hve málefnalega allir lýðræðissinnar, allir þm. lýðræðisfokkanna, hafa tekið á þessum málum nú í umr. og bent á ýmis efnisatriði sem verulegu máli skipta í þessu sambandi öllu. Þessi umr. hefur færst inn á víðara svið en hin upphaflega fsp. gaf beint tilefni til. Hins vegar var mjög eðlilegt að í sambandi við þetta mál kæmu upp hinar almennu áhyggjur um öryggi og framtíð Íslands, eins og fram hefur komið hér í dag. Það er ljóst að hv. þm., sem á Alþingi sitja, eru vissulega menn til að ræða af einlægni um þessi málefni og taka ábyrga afstöðu, en eru ekki smeykir við að segja meiningu sína.