15.10.1981
Sameinað þing: 4. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í B-deild Alþingistíðinda. (53)

Umræður utan dagskrár

Fjmrh. (Ragnar Arnalds:

) Herra forseti. Eins og fram kom í máli hv. þm. Alberts Guðmundssonar hafa verið uppi nokkrar deilur og ágreiningur um tollvörslu í Tollvörugeymslunni. Þessi ágreiningur rekur sig nokkur ár aftur í tímann og hefur vissulega gengið á ýmsu í þessu sambandi þó að fyrst syði alvarlega upp úr nú fyrir fáum dögum. Afleiðingin varð sú, að starfsemi Tollvörugeymslunnar stöðvaðist um nokkurra daga skeið, en eins og fram kom hjá hv. þm. Albert Guðmundssyni er deila þessi leyst nú. Ég vænti þess, að það sé endanleg lausn málsins, og veit ekki til að það sé neitt það vandamál, sem snýr að framtíðinni, sem leysa þurfi þarna úr þar sem fullt samkomulag er um þær reglur og vinnubrögð sem viðhöfð verða í framtíðinni og þá fyrst og fremst varðandi niðurfellingu, lækkun eða endurgreiðslu aðflutningsgjalda vegna vöntunar í vörusendingum og vegna skemmda, eyðileggingar eða rýrnunar á vörum, sem settar eru í tollvörugeymsluna, og um tollvörslu á þessum stað. Hitt er ljóst, að það eru ýmis atriði sem snúa að fortíðinni sem eru óleyst. Þar ber hæst ýmsar yfirlýsingar sem fram hafa komið í blóðum frá deildinni og þeim, sem viðriðnir hafa verið þessi átök, og þar er oft og tíðum um að ræða mjög alvarlegar ásakanir sem eðlilegt er að kannað sé nánar hvort einhver fótur er fyrir.

Ég tel að meginatriði málsins sé það, að deilan er leyst til frambúðar, og menn megi ekki gera aðalatriði úr fortíðinni þó að vissulega sé þar um ýmsar alvaralegar fullyrðingar að ræða.

Eins og fram kom h já hv. 3. þm. Reykv. hefur Matthías Andrésson tollvörður fyrir nokkrum dögum fullyrt í dagblaðinu Tímanum að hann hafi lent í ónáð fyrir það að taka smygl sem ekki mátti taka, það stóð í viðtali við hann í þessu blaði. Matthías hefur ekki gefið okkur neina skýrslu um málsatvik eða atburði sem ummæli hans beinast að, en hins vegar hefur tollstjórinn í Reykjavík ákveðið að krefjast opinberrar rannsóknar á þessum ummælum. Mér sýnist að við hljótum að láta við svo búið standa og bíða eftir því, að sú rannsókn eigi sér stað og hafi farið fram áður en neitt frekar er um það mál sagt.

Í öðru lagi vitnaði hv. þm. til ummæla tollgæslustjóra, Kristins Ólafssonar, sem hann hafi viðhaft í einu dagblaðanna, þar sem hann hefði komist að orði eitthvað á þá leið, að það væri ekki mál tollgæslunnar hvort Tollvörugeymslan væri opin eða lokuð. Ég vil taka það fram, að þau ummæli, sem fallið hafa af hálfu starfsmanna og embættismanna tollstjóraembættisins og tollgæslunnar, hafa ekki fallið í neinu samráði við mig og eru ekki komin frá mér. Ég held að viðkomandi embættismenn verði að sjálfsögðu bara að standa fyrir þeim ummælum sem þeir hafa látið frá sér fara. En þetta virðist ekki í sjálfu sér vera neitt stórmál. Það segir sig sjálft að tollgæslan og yfirstjórn tollamála í landinu hljóta að hafa yfirumsjón með því, hvernig tollvörslu er háttað, hvort heldur eru í Tollvörugeymslunni eða annars staðar. Svo eru það auðvitað aðrir sem meta það og vega, hvort viðunandi starfsskilyrði séu, m. a. hjá Tollvörugeymslunni. Það hefur sem sagt hver sitt starfssvið, og ef ummæli tollgæslustjóra eru skilin á þennan veg sýnist mér e. t. v. ekki ástæða til að gera of mikið úr því að hann hafi farið út fyrir verksvið sitt.

Í þriðja lagi er vitnað til ummæla Björns Hermannssonar tollstjóra í Tímanum 15. okt. s. l. um það, að viðkomandi tollvörður, sem hafði fullyrt að hann hefði fallið í ónáð af áður tilgreindum ástæðum, hafi þegið laun fram hjá tollstjóra og tollgæslunni, beint frá Tollvörugeymslunni. Það er rétt að skýra hér aðeins betur hvernig þessu máli er varið. Tollvörugeymslan hefur greitt tollgæslunni laun þessa starfsmanns með fullu samkomulagi beggja aðila að sjálfsögðu. En síðan mun það hafa verið svo að Tollvörugeymslan hefur greitt þessum starfsmanni aukalega fyrir yfirvinnu og þær greiðslur munu ekki hafa gengið í gegnum tollstjóraembættið. Ég verð að segja alveg eins og er, að mér finnst eðlilegt að greiðslur til starfsmanns, sem starfar hjá Tollvörugeymslunni, gangi með formlegum hætti allar í gegnum tollstjóraembættið. Ég held, að annað sé ekki viðeigandi eða við hæfi, enda er um að ræða opinberan starfsmann og hann hlýtur að þiggja laun sín fyrir það starf, sem hann innir þarna af hendi, formlega frá ríkinu, enda er hann á launataxta opinberra starfsmanna. Ég sé ekkert til fyrirstöðu að þessu sé hagað með þeim hætti. En mér sýnist að þarna sé e. t. v. ekki um mjög stórt mál að ræða út af fyrir sig, nema þessar greiðslur munu ekki hafa átt sér stað með samþykki tollstjórans. Ég tel auðvitað að varðandi tollvörslu í Tollvörugeymslunni hljóti að verða að vera fullt samkomulag um störf þess manns, sem þar starfar, og þær launagreiðslur, sem hann fær. Allir aðilar verða auðvitað að vera ásáttir um hvernig á þessum málum skuli haldið.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál, en vek á því athygli, að málið er leyst til frambúðar. Nokkur atriði, sem snúa að fortíðinni, eru hins vegar enn óuppgerð, en ég held að við ættum ekki að tefja tíma þingsins með mjög löngum umr. um mál sem fyrst og fremst tilheyrir liðinni tíð.