16.11.1981
Efri deild: 12. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í B-deild Alþingistíðinda. (530)
90. mál, Hæstiréttur Íslands
Finnur Torfi Stefánsson:
Herra forseti. Dómstólarnir eru meginstoð í okkar þjóðfélagsskipan. Það skiptir því mjög miklu máli að þeim sé að öllu leyti mjög vel farið. Einn mælikvarði á réttarríki er hægt að segja að sé hversu auðveldlega hinn venjulegi borgari geti komið málum sínum til dómstóla og fengið ágreiningsefni leyst sem hann kann að eiga við sína samborgara. Ég held að hægt sé að segja það með sanni, að því miður hefur réttarkerfið hér á Íslandi verið mjög seinvirkt og hér er áreiðanlega fjöldi fólks sem hefur kannske lögmæt málefni að bera undir dómstóla, en gerir það ekki vegna þess að það veit að það tekur of langan tíma og verður of dýrt. Þjóðfélagsþróunin hefur raunverulega gert það brýnna en nokkru sinni fyrr að dómstólameðferðin sé hröð. Bæði gerast allir hlutir mun hraðar, menn geta síður beðið lengi eftir úrslitum í málum, og svo kemur hið sérstaka íslenska fyrirbrigði, óðaverðbólgan, inn í það mál einnig, því að verðbólgan hefur gert það að verkum að hagsmunir manna verða að engu í dómsmálum ef málin dragast mjög lengi.
Ég er þeirrar skoðunar, að aðbúnaður dómstóla, bæði Hæstaréttar og annarra dómstóla, sé ákaflega lakur hjá okkur. Alþingi og íslensk yfirvöld hafa verið mjög treg til að gera dómstólunum kleift að fylgjast með og aðlagast nýjum aðstæðum. Aðbúnaður Hæstaréttar er t. d. ákaflegar lakur. Húsakynni hans eru þröng og öll vinnuskilyrði dómaranna eru fyrir neðan það sem maður skyldi telja eðlilegt og heilbrigt. Ég er á þeirri skoðun, að þingið hefði tilefni til þess að taka nokkuð til hendinni og athuga þau mál og reyna að bæta verulega úr.
Það frv., sem hér er til umr., er, eftir því sem mér skilst, aðallega sprottið af þeim ástæðum að nú hefur safnast upp hjá Hæstarétti töluvert mikið af ódæmdum málum. Þetta er tilraun til að leysa þann væntanlega tímabundna vanda og enn fremur að koma á betri skipan upp á framtíðina svo að dómstóllinn geti afkastað meiru en hann hefur gert hingað til. Að mínu áliti er frv. verulega til bóta.
Menn hafa í þessum umr. minnt á frv. um lögréttu sem að mínu áliti er ákaflega athyglisvert frv. og þær hugmyndir sem þar liggja að baki. Staðreyndin er hins vegar sú varðandi lögréttufrv. og þá leið sem lagt er til að farin verði til þess að auka afköst dómstólanna, að það er alls ekki öruggt að lögréttulögin tryggi meiri afköst. það er hinn stóri veikleiki lögréttumálsins. Ýmis önnur sjónarmið, sem eru ágæt og góðra gjalda verð, koma fram í lögréttumálinu, en það er mikið álitamál hvort hraði málsmeðferðarinnar vaxi nokkuð við lögréttuna. En eins og kom fram hjá hæstv. dómsmrh. er alls ekki meiningin með þessu frv. að það víki lögréttumálinu neitt til hliðar. Þetta mál á að sinna öðru hlutverki, sem er fyrst og fremst að auka afköst Hæstaréttar.
Það hefur komið fram ágreiningur um lögmæti frv., eins og menn orða það. Menn eru auðvitað að hugsa um það, hvort lögin, ef þetta frv. verður að lögum, kunni að brjóta í bága við stjórnarskrána. Það er alveg ljóst að það er almenn túlkun, sem ég hygg að njóti nú fylgis flestra löglærðra manna, að 61. gr. stjórnarskrárinnar feli í sér, að dómendur Hæstaréttar, þ. e. umboðsstarfalausir dómendur, verði einungis ráðnir til ótiltekins tíma. Það tel ég eðlilegt að skilja svo. Það er hin almenna regla að dómendur almennt verða að vera ráðnir með þeim hætti. En eins og lagt er til með þessu frv., þá er hugmyndin sú, að tilteknir, fáir dómendur verði ráðnir til skamms tíma til ákveðinna verkefna. Jafnvel þó að þetta frv. verði samþykkt og verði að lögum sýnist mér alls ekki að slík undantekning, ef svo má segja, þ. e. ráðning við þessar tilteknu, sérstöku aðstæður til tiltekinna verka, brjóti í bága við hina almennu reglu sem geti gilt eftir sem áður og ég tel að sé rétt regla. M. ö. o.: mér finnst alls ekki hafa verið sýnt fram á og fellst ekki á að þetta frv. brjóti í bága við hina almennu reglu og hina viðteknu skýringu á 61. gr. stjórnarskrárinnar.
Ég sé að hv. 11. þm. Reykv. er kominn hér í þingsalinn. Þá er ágætt að nota tækifærið og víkja að nokkrum af aths. hans, sem voru sumar hverjar skynsamlegar þó ég sé e. t. v. ekki sammála þeim.
Þá er fyrst spurningin um þetta: Þýðir fjölgun dómaranna meiri afköst? Þetta er auðvitað álitaefni sem erfitt er að svara með einhverri vissu. Það, sem fyrir liggur, er að Hæstiréttur sjálfur metur það svo, að hann þurfi frekari starfskrafta. Frá mínum sjónarhól styðja almennar líkur það, að ef afköst eru ekki nægjanleg í dómstólnum og hann telur sig þurfa meiri starfskrafta hljóti meiri starfskraftar að tryggja meiri afköst. Sá talnalestur sem hér var fluttur úr grg. frv. um fjölda mála sem dæmd hafa verið á nokkrum árum, segir okkur náttúrlega óskaplega litið um afköst, vegna þess að bæði er málafjöldi breytilegur eftir afköstunum og eftir því, hversu mál eru viðamikil, og vegna fleiri þátta. Enn fremur er sá hali svonefndur, sem Hæstiréttur hefur við að stríða, ekki endilega til kominn á þessum árum. Hann á sér gamlar rætur. Ég veit að vísu ekki hve gamall hann er, en hann hefur verið að safnast fyrir á alllöngum tíma.
Hv. þm. verða að sætta sig við að bera nokkra virðingu og nokkurt traust til Hæstaréttar, vegna þess að í stjórnarskránni er Hæstiréttur jafnsettur Alþingi, og mér finnst það vera nokkuð langt gengið, þegar menn vilja ekki einu sinni leyfa Hæstarétti að hafa sjálfdæmi í því, hvað hann telur sig þurfa að hafa af starfskröftum.
Annað álitaefni, sem hv. 11. þm. Reykv. tæpti á hér, var sú deildaskipting sem gert var ráð fyrir í frv., og hafði hv. þm. ýmsar skoðanir uppi í því sambandi. það er alþekki viðfangsefni í réttarfari að velta annars vegar fyrir sér vönduðum málflutningi og hins vegar hröðum málflutningi, eða vandaðri málsmeðferð og hraðri málsmeðferð. Auðvitað getur það stangast á og menn verða alltaf að finna ráð til að bræða það saman, finna málamiðlun með þessum tveimur sjónarmiðum, og það ræðst að sjálfsögðu eftir málum. En í þjóðfélagi nútímans er oft mun mikilvægara og dýrmætara fyrir málsaðila að hafa málsmeðferð hraða en vandaða. Málin verða að ganga tiltölulega fljótt, annars er niðurstaðan og úrlausnin einskis virði. Ég held að íslenskir dómstólar verði alls ekki gagnrýndir almennt fyrir skort á vandaðri málsmeðferð, gagnrýnin sé miklu frekar af hinu taginu, að meðferðin sé ekki nægilega hröð. Þetta ræðst líka, eins og ég sagði áðan, af því, hvers eðlis mál eru. Sumum málum, einkum smærri málum, þar sem hagsmunir eru ekki mjög miklir, nægir tiltölulega hröð málsmeðferð sem þarf ekki að vera mjög vönduð. Hins vegar verður að leggja meiri vinnutíma og fé í önnur stærri mál þar sem hagsmunir eru meiri.
Samkv. frv. er gert ráð fyrir þriggja manna dómi sem dæmi minni kærumál. Þarna er náttúrlega stefnt að hagræðingu sem ég held að sé alveg óhjákvæmileg. Menn verða að geta beitt skjótari og hraðvirkari meðferð við hin smærri mál. Hugleiðingar hv. 11. þm. Reykv. um mismunandi dóma eftir mönnum bar það greinilega með sér, að hann hefur lesið sér eitthvað til um amerískt réttarfar og er sennilega ekki eins kunnugur hinu íslenska. Staðreyndin er sú, að hér dæma dómstólar mjög stíft eftir lögunum og það ræðst ekki eins mikið af persónulegum viðhorfum dómaranna hver niðurstaðan verður og er t. d. í Ameríku. Það er töluverður munur á réttarfarinu að því leyti. Hér leyfir dómari sér ekki að taka inn í dóma t. d. þjóðfélagsleg viðhorf, en það er algengt í Ameríku. Ég held að það sé lítil ástæða til að ætla það, jafnvel þótt dómi sé deildaskipt og kunni að vera breytilegt hvaða menn eru í dómi hverju sinni, að það muni hafa veruleg áhrif á þróun réttarins eða skapa ósamræmi. Það er ákaflega litið tilefni til að ætla það vegna þess hve dómvenjur hér eru miklu fastari í sniðum og menn eru harðari á því að fylgja lögum og öðrum nokkurn veginn skýrum réttarheimildum en er t. d. í Ameríku. Ég held að þessi deildaskipting sé óhjákvæmileg bara af hagræðingarástæðum. Þetta er fyrirkomulag sem verður að viðhafa ef menn vilja að Hæstiréttur bjóði þjóðinni þá þjónustu, að einstaklingur geti borið ágreiningsefni sín undir dómstólinn með sæmilega greiðum og öruggum hætti.
Ég er sömuleiðis ákaflega hlynntur þeim ákvæðum frv. sem gera ráð fyrir að aðstoðarmenn verði ráðnir. Ég hef engar áhyggjur af því þótt dómararnir geti ráðið sér aðstoðarmenn. Ég held þvert á móti að það sé bráðnauðsynlegt til þess að auka afköstin hjá Hæstarétti. Hv. L 1. þm. Reykv. hafði áhyggjur af því, en ég held að þær áhyggjur séu líka á misskilningi byggðar. Ég held að það hafi farið fram hjá þm., að jafnvel þótt hæstaréttardómarar ráði sér aðstoðarmenn bera þeir eftir sem áður alla ábyrgð á störfum þeirra. Þeir bera ábyrgðina jafnvel þótt einhverjir aðrir vinni hluta verksins eða hjálpi þeim við vinnuna. (Gripið fram í.) Það eru allt önnur viðhorf í Hæstarétti en í ríkisstjórn Íslands, sérstaklega þeirri ríkisstj. sem nú situr. (ÓRG: Að hvaða leyti eru önnur viðhorf hjá Hæstarétti en ríkisstjórn Íslands?) T. d. því, að virðing hæstaréttardómara fyrir lögunum er miklu strangari og eindregnari en hjá stjórnmálamönnum. (ÓRG: Í hvaða dómum hefur það komið fram?) Við skulum ekki fara út í almennar samræður. Hv. þm. getur komið í ræðustól á eftir. En ef hann hefur lesið íslenska hæstaréttardóma og yfirleitt kynnt sér einhverja dómstólastarfsemi, þá held ég að hann þurfi ekki að efast mikið um það, að dómstólarnir — a. m. k. yfirleitt og almennt — reyna að fylgja lögunum mjög strangt.
Hv. þm. kvartaði líka undan því, að ekki væru tiltækar reglur um hvernig ætti að ráða í þessa starfsemi. Það kemur fram í frv. þar segir svo í 4. gr.: „Hæstiréttur skipar dóminum ritara og ræður sérfróða aðstoðarmenn“ o. s. frv. Svo eru líka til almenn lög sem gilda um ráðningu starfsmanna til ríkisins. Ég held því að það sé enginn skortur á reglum og engin þörf á því að bæta við þær.
Úr því að ég er farinn að ræða við hv. 11. þm. Reykv. get ég bætt því við, að hann setti fram í máli sínu áðan ýmsar órökstuddar dylgjur um störf dómaranna. Hann fullyrðir hér í Alþingi að dómararnir vinni ekki sín störf og vanræki þar með lagaskyldu og starfsskyldu sína. Maður er auðvitað vanur að heyra svona lagað hjá stjórnmálamönnum, menn dylgja um ýmislegt. En nú vill svo til að hv. 11. þm. Reykv. þarf ekki að láta við dylgjurnar sitja. Honum er opin leið að fá þessum sjónarmiðum sínum komið í framkvæmd. Ef þm. telur að dómarar Hæstaréttar séu að brjóta lög og starfsskyldur, þeir sinni ekki sínum störfum, þá gera lögin einmitt ráð fyrir að þm. geti fengið þessum dómurum vikið frá. Það er auðvitað skylda hv. þm., ef hann telur að dómararnir séu að brjóta lög og svíkja sínar skyldur, að láta sér ekki nægja að dylgja um það hér í Alþingi. Hann á að koma þessu til framkvæmda, láta reyna á sannleiksgildi þess sem hann er að segja. Lögin bjóða einmitt upp á úrræði fyrir hann til að gera þetta. Það eru sérstök lagaákvæði einmitt fyrir þetta gerð. Ósköp væri gaman að fylgjast með því, hvort hv. þm. vill láta taka mark á orðum sínum og láta verkin fylgja.