16.11.1981
Neðri deild: 12. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 776 í B-deild Alþingistíðinda. (540)

66. mál, iðnráðgjafar

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Ég vil lýsa stuðningi við þetta frv. Það er nú einu sinni svo, að allt, sem er gert til að vekja áhuga manna í sambandi við ýmsa atvinnustarfsemi, hlýtur að vera af því góða.

Menn hafa verið sammála undanfarið um það, að eitt af því, sem liggur mest á í sambandi við atvinnuuppbyggingu okkar, sé að örva iðnaðaruppbyggingu í landinu, og segja jafnan eitthvað fallegt í sambandi við það mál. Mér finnst að hér sé um raunhæfa aðgerð að ræða til að vinna að skipulagningu þeirra mála. Ég vísa þar í þann árangur sem þegar hefur náðst í sambandi við iðnráðgjafa sem hafa verið að störfum víðs vegar um landið á þessu ári.

Mér er kunnugt um t. d. árangur sem þegar hefur komið í ljós á Vesturlandi í sambandi við iðnráðgjafa sem ráðinn var á árinu til starfa. Þó að hann sé ekki búinn að starfa nema í nokkra mánuði hefur þegar orðið mikill árangur af veru hans. Hann hefur vakið upp umræður og þegar safnað nauðsynlegum upplýsingum sem þarf til að marka þá stefnu sem þarf að taka í þeim landshluta í sambandi við þessi mál. Þetta kemur heim og saman við það sem við þm. Vesturl. fengum samþykki á síðasta Alþingi, þ. e. iðnþróunaráætlun fyrir Vesturland.

Ég er alveg viss um að starf iðnráðgjafa er til góðs. En ég vil leggja sérstaka áherslu á að ég tel mjög brýnt að störf þessara ráðgjafa og það, sem samtök sveitarfélaga eða iðnþróunarfélög í landshlutum koma til með að gera í þessum málum, verði unnið í mjög góðri samvinnu við Iðntæknistofnun og aðrar stofnanir og sjóði iðnaðarins. Í sambandi við stöðu iðnaðarins vil ég taka undir með hv. 10. þm. Reykv., að það er brýn nauðsyn að leiðrétta, sem ég kalla, það sem er í fjárlagafrv. að því er varðar fjárveitingu til Iðntæknistofnunarinnar. Fjármagnið er allt of litið í frv., því þessi stofnun hefur miklu þýðingarmeira hlutverki að gegna á þessu sviði en menn gera sér kannske almennt grein fyrir. Ég vil lýsa yfir stuðningi við að reyna að vinna að því að þetta verði leiðrétt í frv.

Að öðru leyti er ekki ástæða til að halda hér langa ræðu. Ég vil endurtaka það, að ég tel að sporið, sem hér á að stiga, sé mjög nauðsynlegt fyrir iðnaðinn í landinu og ekki síst fyrir atvinnuuppbyggingu um land allt.