16.11.1981
Neðri deild: 12. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 778 í B-deild Alþingistíðinda. (543)

93. mál, atvinnuréttindi útlendinga

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir um atvinnuréttindi útlendinga, var flutt á Alþingi s. l. vor, en hlaut þá ekki endanlega afgreiðslu þar sem niðurstaða þingnefndar lá ekki fyrir fyrr en undir lok þingsins og ekki var kostur á því í því mikla stappi, sem þá var, að koma því fram ásamt mörgum öðrum málum sem þá voru seint á ferðinni, eins og gengur.

Frv. felur í sér þær breytingar helstar, að það gerir ráð fyrir að skilyrði þess, að atvinnuleyfi megi veita útlendingi samkv. lögunum, séu, auk þess að fyrir liggi umsögn verkalýðsfélags á staðnum í hlutaðeigandi starfsgrein, að fyrir liggi undirskrifaður ráðningarsamningur milli atvinnurekanda og viðkomandi starfsmanns til tiltekins tíma eða verkefnis. Þessi ráðningarsamningur verður að tryggja erlendum starfsmanni laun og önnur starfskjör til jafns við heimamenn ásamt tilvísun til kjarasamnings sem um starfið gildir. Í ráðningarsamningi skulu enn fremur vera ýmsar upplýsingar sem varða starfskjör útlendings hér á landi, m. a. um ferðakostnað og heimflutning, ákvæði um húsnæði og hvernig með skuli fara þegar atvinna kann að falla niður af óviðráðanlegum ástæðum. sbr. 3. gr. laga nr. 19/1979, um uppsagnarfrest. Í ráðningarsamningi þeim, sem gert er ráð fyrir að liggi fyrir undirskrifaður þegar sótt er um atvinnuleyfi, skal vera ákvæði þess efnis, að viðkomandi starfsmaður hafi kynnt sér þær upplýsingar sem nú er lagt til að félmrn. gefi út og dreifi erlendis, sbr. 5. gr., áður en skrifað er undir samninginn.

Hér er um að ræða nýmæli í þessu frv. sem skipta verulegu máli til þess að tryggja starfskjör úflendinga þannig að þau séu í einu og öllu sambærileg við það sem ákveðið er í kjarasamningum. Ég tel að það sé mjög nauðsynlegt að móta fastar reglur í þessum efnum þannig að ekki komi til árekstra hér á landi, en menn þekkja ástandið erlendis þar sem iðulega hefur komið til verulegra árekstra milli erlendra verkamanna og innlendra.

Við meðferð málsins í hv. félmn. í fyrra komu fram nokkrar athugasemdir frá dómsmrn. til að samræma þetta frv. lögum um eftirlit með útlendingum, nr. 45/1965. Félmn. tók tillit til þessara ábendinga. Sömuleiðis hafa fleiri ábendingar borist til samræmingar við lög um eftirlit með útlendingum, og hafa ákvæði frv. að öllu leyti verið samræmd þeim sjónarmiðum sem þar er nauðsynlegt að taka tillit til. Það má segja að lykilsetningin í þá veru í þessu lagatrv. sé síðasta málsgr. 3. gr., en þar segir: „Atvinnuleyfi er jafnan bundið því skilyrði að útlendingur hafi leyfi til að dveljast hér á landi samkv. lögum nr. 45/1965, um eftirlit með útlendingum.“

Herra forseti. Ég tel ekki, með tilliti til þess að fram fóru um þetta mál ítarlegar umr. hér ekki alls fyrir löngu, í maímánuði s. l., ástæðu til að fara rækilega út í þetta mál hér og legg til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. félmn.