16.11.1981
Neðri deild: 12. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í B-deild Alþingistíðinda. (582)

70. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Flm. (Vilmundur Gylfason):

Herra forseti. Vegna orða hv. 2. þm. Norðurl. e., Stefáns Valgeirssonar, í þá veru að það væri verið að rýra áhrif bændastéttarinnar um eigin málefni, eins og hann komst að orði, þá vil ég undirstrika það, að að minni hyggju er hér um mikinn misskilning hjá hv. þm. að ræða. Framleiðendur þess varnings eða þeirra matvæla, sem hér er um að ræða, eru auðvitað sérstök stétt af þeirri einni ástæðu að þeir stunda nefnda framleiðslu. Þeir hafa auðvitað hin fyllstu áhrif á það, með hverjum hætti þeirra vöru er komið á markað eftir sem áður.

Það, sem verið er að leggja til, er að sú miðstýring, sem gilt hefur í þessum efnum, hún og hún ein verði afnumin. Þegar um er að ræða að leggja af einokun eins og þá sem hér er um að ræða, þá er þetta auðvitað ekki spurning um að svipta einhvern ákveðinn hóp manna valdi yfir eigin málefnum. Þetta er spurning um hvort þessi ákvarðanataka eigi að vera miðstýrð í einum punkti eða hvort hún eigi að vera fjöldreifð. Á þessu tvennu verðum við að gera glöggan greinarmun. Þetta er frv. til laga um að sú miðstýring, sem falist hefur í því fyrirkomulagi sem gilt hefur um Grænmetisverslun landbúnaðarins, verði afnumin en valdið fært til framleiðendanna sjálfra sem búa víða, framleiða mismunandi vöru og við mismunandi skilyrði, — valdið sé fært til þeirra og ákveðið á milli þeirra og neytenda.

Það er mikill misskilningur, að þegar verið er að leggja til að draga úr þessu miðstýrða stofnanavaldi, feli það í sér að verið sé að svipta hagsmunasamtök, í þessu tilfelli bændasamtökin, einhverju valdi. Mér er raunar mjög til efs að þessir miðstýringarkontóristar séu betri talsmenn þeirra framleiðenda, sem hér er um að ræða, heldur en framleiðendurnir sjálfir. Það er kjarni málsins. Þetta snýst um miðstýringu og einokun annars vegar og valddreifingu hins vegar. Svo ber þess einnig að gæta, að þó svo við skilgreinum þetta — sumpart réttilega — sem landbúnaðarframleiðslu, þá er hér um nýja landbúnaðargrein að ræða, grein sem hér hefur auðvitað mikla vaxtarmöguleika. Það má færa fyrir því gild rök, að það miðstýringarkerfi, sem gilt hefur, hefur beinlínis kippt vaxtarbroddinum úr þessari framleiðslu og þessi grein mundi blómstra miklu frekar ef frjálsræði væri aukið. Er þá aðeins verið að tala um framleiðsluna innanlands, ekki innflutning sem þetta tekur auðvitað til jöfnum höndum.

Ég undirstrika þess vegna að það er mikill misskilningur, að þetta sé frv. um að rýra áhrif bændastéttarinnar eða stéttar framleiðenda matvæla um eigin málefni. Þetta er aðeins frv. um breytt fyrirkomulag, hvernig hinar efnahagslegu ákvarðanir í þessum efnum eru teknar.