17.11.1981
Sameinað þing: 20. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í B-deild Alþingistíðinda. (602)
322. mál, starfsskilyrði myndlistarmanna
Fyrirspyrjandi (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 25 að flytja svohljóðandi fsp. til menntmrh.:
„Hvers vegna hefur nefnd til að kanna starfsskilyrði myndlistarmanna ekki verði skipuð, svo sem Alþingi fól ríkisstj. með ályktun sinni hinn 21. maí s. l.“
Sú ályktun var svohljóðandi, með leyfi hæstv. forseta: „Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að skipa sex manna nefnd, er kanni starfsskilyrði myndlistarmanna hér á landi og geri tillögur um, hversu hið opinbera geti best örvað sjálfstæða listsköpun með því að myndlistarmönnum sé skapaður viðunandi starfsgrundvöllur. Nefndin skal hafa samráð við félög myndlistarmanna og þær stofnanir, sem starfa að myndlistarmálum.
Menntmrh. skal skipa nefndina samkv. tilnefningu þingflokka og Sambands ísl. sveitarfélaga er tilnefni sinn nefndarmanninn hvert. Formaður nefndarinnar skal skipaður án tilnefningar.
Kostnaður við störf nefndarinnar skal greiddur úr ríkissjóði.“
Þegar Alþingi kom saman hafði þessi nefnd ekki verið sett á laggirnar. Það vakti að sönnu nokkuð furðu mína þar sem ég vissi að hæstv. menntmrh. hafði látið uppi áhuga á því að málefnum myndlistarmanna yrði sinnt, sem ég taldi mjög jákvætt. Þess vegna hafði þetta komið mér á óvart. Síðan þessi fsp. var lögð fram hefur þessi nefnd hins vegar verið skipuð, þó að fundur hafi ekki verið kallaður saman, og er þess að vænta að ekki dragist lengi úr þessu að nefndin geti hafið störf.
Ég vil aðeins rifja upp í þessu sambandi nokkur atriði, sem ollu því, að þáltill. var flutt, til þess að undirstrika nauðsyn þess að hún hraði störfum. Í grg. þáltill. segir m. a. svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Nauðsynlegt er að kanna starfsgrundvöll myndlistarmanna, svo sem það, hversu skattlagningu á efni til listsköpunar er háttað.
Listaverk í opinberum byggingum styrkja tilfinningu fólks fyrir þjóðerni sínu og uppruna. Það er menningar- og þjóðernismál, að opinberar byggingar séu skreyttar listaverkum, og nauðsynlegt að þau séu talin til byggingarkostnaðar. Ekki þarf að tíunda uppeldislegt gildi slíks umhverfis.
Sjálfsagt þykir að tónskáld fái umbun sé verk þess flutt í útvarpi eða rithöfundur sé bók lánuð af bókasafni. Fyrirkomulagsatriði er hversu samsvarandi greiðslum skuli háttað til myndlistarmanna vegna verka, sem eru til sýnis í söfnum eða á vegum opinberra aðila. Þessi málverk eða höggmyndir eru á sinn hátt lífeyrissjóður aldraðra myndlistarmanna. Ekki er vansalaust að þess skuli finnast dæmi, að fremstu listamenn okkar búi við framfærsluvandamál í elli sinni eftir að heilsan hefur gefið sig.
Norðmenn hafa löngum haft tilhneigingu til þess að eigna sér fornbókmenntir okkar með ríkulega myndskreyttum útgáfum, t. d. af Heimskringlu. Hér á landi sýndi Ragnar í Smára lofsvert frumkvæði í þessa veru, m. a. með útgáfu Grettissögu og Brennu-Njálssögu, myndskreyttra af okkar fremstu listamönnum. Ekkert sambærilegt hefur síðan gerst.
Á Austurvelli er stytta Einars Jónssonar af Jóni forseta. Í þinghúsinu er málverk Gunnlaugs Blöndals af þjóðfundinum. Og í fundarsal borgarstjórnar Reykjavíkur hangir uppi veggteppi Vigdísar Kristjánsdóttur af landnámi Ingólfs Arnarsonar, ofið eftir teikningu Jóhanns Briem. Í Valhöll hefur Einar Hákonarson dregið fram úr Njálu hvernig Skarphéðinn spottar Brennu-Flosa á Þingvöllum.
Áfram verður að gera listaverk úr sögu þjóðarinnar, markverðum atburðum eða táknrænum. Það er ekki síður gott yrkisefni góðum myndlistarmanni en umhverfið, landið sjálft. Nærtækt dæmi er kristnitakan og aldamótaárið 2000
Á tímum litasjónvarps vekur þvílíkt listrænt framtak heilbrigðan þjóðernislegan metnað. Í holu fjölmiðlaflæðinu er ekkert eins lifandi og listaverk, þar sem það hangir uppi á vegg og er kyrrt á sínum stað.
Sendiráð okkar erlendis eru gluggi Íslands út á við. Erlendur maður, sem villist þangað inn, fær að vísu hugmyndir um að Íslendingar séu sérfræðingar í vondum eftirprentunum, en of lítið er um frummyndir eftir okkar fremstu málara.“ (Forseti hringir.)
Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri eftir áminningu hæstv. forseta, en fagna því, að fsp. hefur í raun svarað sér sjálf, að þessi nefnd hefur verið skipuð. Ég vænti þess, að hún komi hið fyrsta saman.