17.11.1981
Sameinað þing: 20. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 821 í B-deild Alþingistíðinda. (605)

326. mál, stytting á forystugreinum dagblaða í Ríkisútvarpi

Fyrirspyrjandi (Vilmundur Gylfason):

Herra forseti. Á þskj. 39 leyfi ég mér að bera fram eftirfarandi spurningar til hæstv. menntmrh.:

„a) Hvað greiða skattgreiðendur mikið fyrir þá styttingu á forustugreinum dagblaða sem fram fer í Ríkisútvarpinu?“ — Þá er átt við annaðhvort á grundvelli mánaðar eða grundvelli árs. Það skiptir auðvitað ekki höfuðmáli.

„b) Hvers eru ekki blöðin sjálf látin sjá um þetta verk?“

Því má bæta við þessa fsp., að um þetta hefur oft verið spurt í lesendadálkum dagblaða. Þetta er vitaskuld ekki útgjaldaliður hjá ríkisvaldinu sem einum eða neinum sköpum skiptir, en engu að síður eitt af þeim smáatriðum sem fólk tekur eftir.

Sú er önnur ástæða fyrir þessari fsp., að það er þekki úr dagblöðum að iðulega hefur komið upp ágreiningur af því tagi, að þeir, sem forustugreinar hafa ritað, eða þau dagblöð, sem að þeim hafa staðið, hafa lýst sig ekki alls kostar ánægð með það, með hverjum hætti hér hafi verið unnið. Það skal auðvitað sagt til sanngirni öllum aðilum að þetta er eitt af því sem efalítið er ekki hægt að gera svo að öllum líki, en óánægja hefur oft komið upp. Þess vegna vaknar sú spurning, úr því að þessi dagskrárliður er hafður, hvers vegna blöðin sjálf séu ekki látin sjá um þessa styttingu, á þar til gerðum eyðublöðum væntanlega sem mundu afmarka lengd og tíma, og hvort með þeim hætti væri ekki hægt að gera tvennt: gera blöðunum til geðs og spara skattgreiðendum álitlega fjárupphæð.