17.11.1981
Sameinað þing: 20. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (633)
331. mál, gróði bankakerfisins
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Það er athyglisverð kennslustund sem hv. f 1. þm. Reykv. er hér í. Það hefur nokkuð komið fram í þessum umr., og ég held að það sé óhætt að slá því föstu. að innan ríkisstj. hafi verið gert samkomulag um að skerða ekki eigið fé Seðlabankans frá endurmatsreikningi upphæðar þess um síðustu áramót þannig að það sé sama raunvirði sem þar stendur. Í öðru lagi er ljóst að það fjármagn, sem þarna verður til ráðstöfunar, er ákaflega lítið, ef eitthvað. Kannske verður eignin í raun minni en hún var um síðustu áramót þegar búið er að greiða þær 75 millj. sem fóru til endurgreiðslu vegna gengismunar á lánum sem gengu til útflutningsatvinnuveganna, annarra en þeirra sem versluðu í dollurum. Í þriðja lagi er það ljóst og hefur komið hér fram, að ef gengið er á gjaldeyrisvarasjóðinn er þar um að ræða hreina seðlaprentun sem leiðir til verðbólgu. Það, sem er hins vegar athyglisvert, er að hér stendur formaður þingflokks Alþb. og virðist ekki skilja að Alþb. stendur nú í þeim sporum að hafa skert laun eða efnt til kaupráns, eins og það heitir á máli Alþb., að hafa staðið að gengisfellingum sýknt og heilagt eða íhaldsúrræðum, eins og Alþb. hefur gjarnan nefnt slík úrræði, og í þriðja lagi hafa þm. þess verið kosnir í stjórn 1978 til að koma samningum í gildi og nú eru liðin árin 1978, 1979, 1980 og 1981 að líða og ljóst að samningarnir koma ekki í gildi á næstu tveimur árum ef fram heldur sem horfir. Alþb. stendur frammi fyrir þessari staðreynd. Og hér stendur síðan Ólafur Ragnar Grímsson, leitar að gulli og þykist hafa fundið í Seðlabankanum. Hann minnir mann satt að segja á auglýsingu frá Útvegsbankanum sem er eitthvað á þá leið: Í kolli mínum geymi ég gullið. — Ég held að gullið, sem hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson er að leita að, sé í hans eigin kolli og hvergi annars staðar. Var einhver að nefna orðið glókollur?