17.11.1981
Sameinað þing: 20. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 847 í B-deild Alþingistíðinda. (643)

331. mál, gróði bankakerfisins

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Ég tel að í þessum umr. hafi komið fram ein yfirlýsing sem er mjög mikils virði. Það er yfirlýsing hæstv. viðskrh. um að gjaldeyrisvarasjóðurinn verði ekki notaður til úthlutunar til einstakra atvinnufyrirtækja í landinu. Það er viðurkenning á því, að þessi sjóður sé sameign og öryggi þjóðarinnar. En ég verð reyndar að taka undir með hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni um það, að ekki gat ég skilið hæstv. sjútvrh. Steingrím Hermannsson öðruvísi en að hann væri á sömu buxunum og hv. þm. Ólafur Ragnar um það, að í þennan sjóð ætti að sælast. En það getur vel verið að það hafi verið óviljandi hjá hæstv. sjútvrh. Það gerist nú á þeim bæ. En hvort heldur sem er, að það hafi verið óviljandi ellegar þá að hæstv. viðskrh. hafi tekist að snúa sjútvrh., þá fagna ég því, að hæstv. viðskrh. skuli gefa þá yfirlýsingu hér og nú, að þessi leið verði ekki farin. Og ég fagna því enn frekar úr því að hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson talar enn um það afdráttarlaust, að hann telji að nota eigi gjaldeyrisvarasjóðinn í þessu skyni, eins og hann gerði rétt áðan, og talaði m. a. niðrandi um „nafngiftir“ og því um líki til frekari áherslu um að það væri ekkert að marka þó að sjóðir bæru einhver nöfn og átti þar við gjaldeyrissjóðinn. En hér er um algjört grundvallaratriði að ræða, og ég ætla bara að vona að það verði að marka þessa yfirlýsingu frá Framsfl., vegna þess að við erum svo langþreyttir á því, hv. þm., og reyndar þjóðin öll, að gefnar séu yfirlýsingar af hálfu Framsfl. en þveröfugt sé svo framkvæmt. Með tilliti til þess, hvað djúpt við erum sokknir sem þjóð, og með tilliti til þess, að nú liggur mikið við, þá skora ég á hæstv. viðskrh. og Framsfl. að standa nú einu sinni við orð sín.