17.11.1981
Sameinað þing: 20. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 849 í B-deild Alþingistíðinda. (646)
331. mál, gróði bankakerfisins
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Út af þeim ummælum, sem hv. 11. þm. Reykv. viðhafði áðan um samstöðu sína og Steingríms Hermannssonar í gjaldeyrismálum, vil ég rifja upp þau ummæli hæstv. sjútvrh. sem hann viðhafði hér 28. okt., en þá sagði hann, með leyfi hæstv. forseta: „Ég hygg að hv. þm. skilji það mætavel, að í 40% verðbólgu verður ætíð að breyta gengi annað slagið.“ Þetta er kjarni málsins og um það eru þeir Ólafur Ragnar Grímsson sammála. Þeir vilja að sjálfsögðu ekki gefa yfirlýsingar um þetta fyrir fram og reyna að þræta fyrir það á eftir. Samt sem áður liggur nú þessi stefna ljóst fyrir. Og ef við rifjum upp önnur ummæli hæstv. sjútvrh. Steingríms Hermannssonar sjáum við að gengið mun síga mjög hratt til áramóta. Má í þeim efnum vitna til s. l. árs og þeirrar gjaldeyrisþróunar sem varð síðari hluta desembermánaðar.
Vegna ummæla þessa hv. þm. um nýgerða kjarasamninga vil ég aðeins rifja það upp, að einhvern tíma hefði það ekki verið talinn mikill sigur fyrir verkalýðshreyfinguna í 50% verðbólgu að semja um 3% grunnkaupshækkanir og ekkert annað, í sömu viku og gengið var fellt um 6%. Þetta hefði einhvern tíma ekki verið talið kræsilegt.
Ég vil enn fremur láta í ljós ánægju mína yfir því, að hv. 11. þm. Reykv. skuli nú loksins vera farinn að skilja hver var kjarninn í efnahagsráðstöfunum Geirs Hallgrímssonar 1. mars 1978, því að þessir samningar bera mjög svipmót af þeim og eru undir beinum áhrifum frá þeim samningum. Þannig er annars vegar gert ráð fyrir að það verði sérstök lágmarkslaun fram hjá bónus og öllum slíkum töxtum. Þetta er það sama og Geir Hallgrímsson beitti sér fyrir 1978. Í öðru lagi er gert ráð fyrir að lægstu stéttirnar fái skerta eftir- og næturvinnu. Lægst launaða fólkið, iðnverkafólkið, verkafólkið, verslunarmennirnir. skrifstofumennirnir fá skerta eftir- og næturvinnu. Þetta er það sama og var í efnahagsráðstöfunum 1. mars 1978. Fleira mætti nefna þarna til, en allt sýnir þetta okkur að verkalýðsforustan hefur lært síðan þá. Hún er farin að skilja að hún fór þá rangt að. Sú niðurfærslustefna, sem verkalýðshreyfingin talaði mest um, er týnd og tröllum gefin, og í raun er búið að ýta þeim verkalýðsforingjum til hliðar sem höfðu forustuna um „samningana í gildi“. Það eru allt aðrir menn, hógværari menn og gætnari sem ráða verkalýðshreyfingunni núna. Og það frumkvæði, sem forseti Alþýðusambands Íslands, Ásmundur Stefánsson, hefur haft við gerð nýju samninganna, sýnir að hann hefur lært af mistökunum 1978 og lætur ekki lengur menn eins og hv. 11. þm. Reykv. eða hæstv. félmrh. rugla sig í ríminu. Ég vona að þessi lækning muni einnig duga þegar Alþb. er komið í stjórnarandstöðu, þó að ég óttist að svo kunni ef til vill ekki að verða.