17.11.1981
Sameinað þing: 21. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 872 í B-deild Alþingistíðinda. (666)
88. mál, kalrannsóknir
Steinþór Gestsson:
Herra forseti. Ég vil taka undir það, að hér er hreyft mjög miklu máli og þarft að finna leiðir til að geta varist því, að kal verði með jafnstórfelldum hætti og oft hefur viljað brenna við hér á Íslandi. Ég verð að segja það, að ég hef ekki kynnst kali mjög mikið. Á kaldari tíma, fyrir og um 1920, heyrði ég mikið um það talað, að kal hefði verið stórvægilegt á því svæði þar sem ég ólst upp. Það var þá alveg jafnt á gömlum túnum og úthaga eins og á nýrri sléttum. Slíkur var kuldinn á þeim árum.
En ég verð að segja það, að sjálfur hef ég í raun og veru ekki séð kal fyrr en á þessu nýliðna sumri, ekki sem gæti heitið kal. Á Suðurlandi var það svo á mörgum bæjum, að heyfengur mun ekki hafa verið yfir 50% af því sem hann var í fyrrasumar. Mörg tún varð að vinna upp og setja í grænfóður að þessu sinni til þess að hafa einhver not af þeim. Ég vil því taka undir það sem fram kemur í þessari till., að það er mikil nauðsyn að kanna, með hverjum hætti verður hægt að forðast kal, og efla rannsóknir til þess að vinna að því að finna leiðir. Við vitum um nokkur atriði sem eru bersýnilega til þess fallin að kal komi fram. Kannske þurfa þau öll að vera samvirk, kannske þarf hluta af þeim, og þá á ég við kólnandi eða kalt tíðarfar, áfreða, hvernig túnin hafa verið unnin, hvað túnin hafa verið þjöppuð þjösnalega, hverjar áburðartegundir eru notaðar og hversu þolnar jurtategundirnar eru sem við er að fást og notaðar hafa verið.
Ég held að ég verði þó að finna að einu í þessari till. Mér finnst hún bera svolítinn keim af því, að það eigi að taka þarna verulegt tillit til kjördæmasjónarmiða þar sem segir hér: „Gerð verði sérstök áætlun um eflingu þessara rannsókna og stefnt að því að miðstöð þeirra verði að Möðruvöllum í Hörgárdal.“
Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar, að miðstöð rannsókna eigi að vera hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Hún á ekki að vera annars staðar. Þó að tekið sé fram hér að það skuli vera gert í fullu samstarfi og samráði við Rannsóknastofnunina, þá er það mitt álit að þar eigi miðstöðin að vera. Hins vegar er full þörf á að aðstaða sé til að geta gert athuganir víðar en á einum stað í landinu. Þar koma Möðruvellir sjálfsagt vel til greina og fleiri staðir. Og ég vil aðeins benda á það, að þetta er mjög andstætt því, hvernig ég vil láta byggja upp rannsóknastarfsemi í landinu.
Ég tek undir það, að Bjarni E. Guðleifsson er virtur sérfræðingur á þessu sviði. Ég hygg að hann sé að hluta til ráðinn hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins, en að hluta til annaðhvort hjá Ræktunarfélagi Norðurlands ellegar Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. Mér er ekki alveg ljóst hvort heldur er og er þar kannske stutt á milli. Ég hefði því getað vænst þess, að hann gæti unnið út frá miðstöð hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins ekkert síður en frá Möðruvöllum í Hörgárdal, þar sem hann væri einnig einn að starfi. Maður getur varla vænst þess, að hann hafi þar jafnmarga sérfræðinga sér við hlið til þess að fá til aðstoðar og hjálpar við þetta margbrotna rannsókarverkefni, sem að sjálfsögðu hefur verið nokkuð sinnt á undanförnum árum og áratugum, þótt heildarniðurstöður hafi ekki verið teknar saman um þetta efni.
Það er eitt sem ég hnýt um í þessari grg., skil ekki almennilega hvers vegna þar er tekið fram eitt atriði. „Þess má geta,“ segir á bls. 2,“ að Bjarni E. Guðleifsson er nú að vinna að uppgjöri á eftirtöldum rannsóknum og mun væntanlega birta niðurstöður í erlendum tímaritum.“ Hvers vegna þar? Hvers vegna ekki í rannsóknaskýrslum frá rannsóknastofnunum hér á landi? Það hélt ég að væri enn þá mikilvægara, a. m. k. fyrir þá sem eiga kalin tún á Íslandi.